Morgunblaðið - 10.11.2000, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 10.11.2000, Blaðsíða 16
16 FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ I h HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Tveir nýir leikskólar og nýr grunnskóli verða teknir í notkun í Hafnarfírði á næsta ári Nýtt fimleikahús byggt við Flatahraun Deiliskipulagstillaga um breikkun Miklubrautar kærð til úrskurðarnefndar skipuiags- og umferðarmála Morgunblaðið/Árni Sæberg íbúar í Safamýri vilja að öryggi vegfarenda við Miklubraut verði tryggt með undirgöngum. Ibúar við Safa- mýri vilja göng undir Miklubraut Safamýri ÍBÚAR í Safamýri 34 hafa kært deiliskipulagstUlögu um breikkun Miklubrautar og af- náms göngustígs yfir hana frá Framheimilinu til úrskurðar- nefndar skipulags- og um- ferðarmála. Fara íbúamir fram á það að gerð verði göng undir Miklubraut til að tryggja öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda. Þá segja þeir að framkvæmdimar hafi aldrei verið kynntar íbúum. I greinargerð sem fylgir kæranni segir að þeir íbúar, sem hyggist fara í Kringluna eða taka strætisvagn sunnan Miklubrautar við Kringluna muni ekki geta farið yfir göt- una við Framheimilið, þar sem fyrirhugað sé að setja þar uppjárngirðingu. Ibúarnir segjast hafa þrjá kosti til þess að komast yfir Miklubrautina ef járngirðing- in verði sett upp. í fyrsta lagi að ganga upp að gatnamótum Háaleitisbrautar, en þeir segja að sú leið sé 0,8 km löng og viðmiðunarmörk SVR um fjarlægð frá heimili að stoppi- stöð séu 400 m i þéttri byggð. I öðru lagi að fara um undir- göngin, sem staðsett séu vest- an megin, við gatnamót Kringlumýrarbrautar, en þeir segja að sú leið sé 0,7 km löng. Þriðji kosturinn er síðan að aka þessa leið. Göng fyrir kýr „Fyrir liggur að Mikla- brautin er þjóðvegur og heyr- ir undir Vegagerðina og sam- göngumálaráðherra,“ segir í greinargerðinni. „Við þjóðveg 1 að Hálsi í Kjós era göng þar sem kýmar geta gengið undir þjóðveginn. Eins er þetta við þjóðveg 1 undir Hafnarfjalli. Þar getur búsmalinn rölt und- ir veginn að vild sinni. Er til of mikils mælst að sama gildi um mannfólkið? Hugmyndin um göngubrú er góðra gjalda verð en tæplega er pláss fyrir hana og hugsanlegt að hún spilli yfirbragði nýja miðbæj- arins, auk þess er hátt upp á þessar brýr og getur verið vindasamt fyrir böm og eldra fólk. Göng undir Miklubraut- ina era vafalaust ódýrast og öruggust. Hægt er að hugsa sér að þau séu gerð úr for- steyptum einingum með dren- lögn. Vafalaust er til verk- fræðiþekking í landinu til þess að hægt sé að fram- kvæma slíka aðgerð með góðu skipulagi þegar umferðarálag er lítið, t.d. um verslunar- mannahelgina næsta sumar.“ Hafnarfjördur Á NÆSTA ári verður nýr grunnskóli og tveir nýir leik- skólar teknir í notkun í Hafn- arfirði og einnig er gert ráð fyrir því að hefja framkvæmd- ir við nýtt fimleikahús í bæn- um en tilboð í það verða opnuð innan fárra daga. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í ijárhagsáætlun bæjarsjóðs Hafnarfjarðar fyrir árið 2001. í áætluninni er fjallað um helstu áhersluþætti í rekstrin- um og þar kémur fram að stefnt er að því að ljúka deili- skipulagi íbúðabyggðar á Völl- um og deiliskipulagi fyrir at- vinnustarfsemi í Hellnahi'auni á næsta ári. Þá á að ljúka við deiliskipulag miðbæjarsvæðis- ins en gert er ráð fyrir aukinni verslunar- og þjónustu- starfsemi við Strandgötu og Fjarðargötu. Vinna við deiliskipulag á at- hafnasvæðinu á norðurbakk- anum verður hafin þar sem gert er ráð fyrir blandaðri byggð með áherslu á menning- arstarfsemi og íbúðir. I byrjun Seltjarnarnes UNDIRRITAÐUR hefur verið samningur milli Línu.- Nets og Seltjamamesbæjar, um uppbyggingu ljósleiðaran- ets á Seltjamarnesi. Sigur- geir Sigurðsson bæjarstjóri sagði að verkinu miðaði vel áfram. „Þeir byrjuðu fyrir viku og ég held að þeir séu komnir á fullan kraft,“ sagði bæjar- stjóri. „Við gerðum samning við þá í vor og þeir era búnir að leggja svona innra net, fyr- ir bæjarfyrirtæki, þannig að við eram farin að vera sjálfum okkur nóg í því efni. Þeir eru næsta árs mun, samkvæmt áætluninni, liggja fyrir hvort byggt verður undir starfsemi Listaháskóla Islands á norður- bakkanum. Nýr leikskóli á Sólvangssvæðinu Næsta haust er ráðgert að taka í notkun nýjan grunn- skóla í nýju íbúðahverfi í Ás- landi og einnig verður unnið að undirbúningi framkvæmda við nýjan Lækjarskóla á Sól- vangssvæðinu sem ráðgert er að taka í notkun haustið 2002. Á árinu 2001 verða teknir í notkun tveir nýir leikskólar við Háholt og í Áslandi og endur- byggður leikskóli við Norður- berg. Þá er unnið að hönnun nýs leikskóla á Sólvangssvæð- inu sem kemur í stað núver; andi leikskóla við Hörðuvelli. í Hafnarfirði era nú starfræktir 12 leikskólar með 37 deildum fyrir alls um 1.100 böm og á árinu 2001 mun leikskólarým- um í Hafnarfirði því fjölga um 230. I mars lýkur smíði íþrótta- miðstöðvar á íþróttasvæði núna að leggja ljósleiðara um bæinn, sem þeir ætla síðan að bjóða bæjarbúum afnot af.“ Hjá Línu.Neti fengust þær upplýsingar að ekki væri enn komið endanlegt verð á teng- ingu við heimilin en búast mætti við að grannþjónustan kostaði um 5.500 kr. og stofn- gjald yrði um 28.900 kr. Inn- ifalið í verðinu er lagning inn í fjölbýlishús og inn í sérhverja íbúð, ásamt endabúnaði á ljós- leiðarann. Það sama á við um sérbýli, en þar verða íbúar sjálfir að útvega jarðvinnu á lóð; Lína.Net sér um fram- haldið, að leggja rör og bora inntak ásamt því að koma upp Hauka á Ásvöllum. Stefnt er að enn frekari uppbyggingu íþróttamannvirkja í bænum því innan fárra daga verða opnuð tilboð í byggingu og rekstur nýs fimleikahúss Bjarkanna sem fyiú'hugað er að reisa við íþróttahús Hauka við Flatahraun. Bæjarbókasafnið flytur Um mitt næsta ár verður tekin í notkun ný þjónustumið- stöð bæjarins í Hellnahrauni sem taka mun við hlutverki áhaldahússins við Flatahraun. Þá verður unnið að innréttingu nýs húsnæðis bæjarbókasafns að Strandgötu 1 og er stefnt að því að bókasafnið flytjí þar inn fyrir árslok2001. Vegna fjölda umferðarslysa á Reykjanesbraut frá Kapla- krika og vestur íýrii' Hvamma- braut er gert ráð fyrir því að ljúka úrbótum á kaflanum frá gatnamótum Lækjargötu og að Hvammabraut á næstu ár- um en verkið er á vegaáætlun 2000 til 2004. Heildarkostnað- ur þess verks er áætlaður um 1.060 m.kr. búnaðinum. Inni í grannþjón- ustunni verður ljósleiðara- s tenging með allt að 100Mb/ sek. sítengdu netsambandi; það merkir að símagjöld vegna netnotkunar hverfa. Ymsa viðbótarþjónustu er svo hægt að fá ef menn vilja, og má þar til dæmis nefna úr- val sjónvarpsrása, öryggishólf fyrir gögn, talþjónustu og margt fleira. Fyrir viðbótar- þjónustuna þurfa notendur að greiða aukalega. Alls koma 120 manns að þessu verki. Jarðvinnan er unnin af ístaki en tenging ljósleiðarans er í höndum fyrirtækisins Cab- lux-Ljósvirkis. Lína.Net og Seltjarnarnesbær undirrita samning Ljósleiðarar um Seltj arnarnesbæ Flutningur 7. bekkjar á Seltjarnarnesi og í Mosfellsbæ gekk vel að sögn foreldraráðsmanna Höfuðborgarsvæðið Sértækar aðgerðir skiluðu árangri FLUTNINGUR 7. bekkjar Mýrarhúsaskóla yfir í Val- húsaskóla hefur gengið ágæt- lega að sögn Atla Árnasonar, sem átti sæti í foreldraráði Mýrarhúsaskóla og skóla- nefnd Seltjamamess, þegar tekin var ákvörðun um að flytja bekkinn í haust. Atli sagði að gripið hefði verið til sértækra aðgerða og að það hefði skilað sér. í Mosfellsbæ hefur einnig gengið ágætlega að hafa 7. bekkinga með 8. til 10. bekkingum, segir Hilmar Bergmann, formaður foreldra- ráðs Varmárskóla, en þar fór flutningur fram fyrir 4 árum. í Morgunblaðinu í gær var fjallað um fund foreldra í Laugameshverfinu vegna flutnings 7. bekkjar úr Laug- ames- í Laugarlælqarskóla en á fundinum var skorað á borg- aryfirvöld að falla frá flutn- ingnum. Atli sagði að sú umræða sem nú væri komin upp á meðal foreldra á Laugamesinu minnti mikið á umræðuna úti á Seltjamamesi síðasta vetur því þar hefðu foreldrar líka verið á móti því að flytja 7. bekkinn. Foreldrar beittu svipuðum rökum Atli sagði að e.t.v. væri erfitt að bera saman aðstæður á Seltjamamesi og Laugamesi. „Það var verið að leysa nokkuð mörg mál með þessu héma á Nesinu," sagði Ami. „Það var t.d. mikill munur á stærð skólanna og nokkrir erf- iðleikar með yfirstjóm og hús- næði í Mýrarhúsaskóla.“ Að sögn Atla beittu foreldr- ar í Mýrarhúsaskóla svipuðum rökum og foreldrar Laugar- nesskóla gera nú þegar þeir vora að mótmæla flutning- num. Hann sagði að þeir hefðu haft áhyggjur af aldurs- og þroskamun, þá giltu aðrar reglur fyrir 11 til 12 ára böm en 13 til 15 ára börn, t.d. væri mismunur á útisvistartíma. „Sonur minn var í þessum hópi sem fluttist yfir í Valhúsa- skóla í haust og það er enn þá tregi í nemendunum yfir því að hafa ekki fengið að vera elsti árgangurinn einu sinni. Þetta virðist samt ganga vel og er það ekki síst starfsfólk- inu og skipulaginu í Valhúsa- skóla að þakka. Hugsanlega er ástæðan sú að þetta er lítill skóli og auðveldara að halda utan um hlutina. Krakkamir finna samt að- eins fyrir stríðni frá hinum eldri, það er verið að senda þá út í sjoppu, fá lánaðan pening og borga hann aldrei aftur og þess háttar. í heildina held ég samt að þetta hafi gengið ágætlega og þá skiptir miklu máli að það var gripið til sértækra aðgerða til að vernda þessa nemendur. Þeir eru hafðir á dálítið af- mörkuðum stað. Umsjónar- kennaramir úr Mýrarhúsa- skóla fylgdu þeim yftr og kenna þeim núna í Valhúsa- skóla en það var gert vegna þrýstings frá foreldram.“ Oldumar hefur lægt í Mosfellsbæ Hilmar Bergmann, formað- ur foreldraráðs Vai-márskóla í Mosfellbæ, sagði að á sínum tíma hefðu foreldrar í Varm- árskóla verið mjög ósáttir við flutning 7. bekkjar í gagn- fræðaskólann, ekki síst þar sem málið hefði verið illa kynnt. „Síðan hefur öldumar lægt,“ sagði Hilmar. „Ég hef ekki heyrt mikla óánægju frá foreldum undanfarið.“ Hann sagði að 7. bekkurinn væri enn í gagnfræðaskólan- um þó að upphaflega hefði ver- ið talað um flutninginn sem tímabundna ráðstöfun. „Reyndar hefur þessu verið haldið svolítið aðskildu, sér- staklega félagslega, að því leyti að 7. og 8. bekkur eru hafðir saman og 9. og 10. bekk- ur saman. Þetta virðist hafa heppnast ágætlega, það eina sem maður hefur heyrt foreldra hafa áhyggjur af er að krakkarnir verði unglingar of snemma."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.