Morgunblaðið - 10.11.2000, Blaðsíða 51
i
!
I
Kristján Eðvarðsson at-
skákmeistari Reykjavíkur
SKAK
II e 11 i s h e i m i 1 í ð
UNGLINGAMEISTARA-
MÓT ÍSLANDS
8.10-4.11.2000
KRISTJÁN Eðvarðsson er at-
skákmeistari Reykjavíkur 2000.
Hann sigraði nokkuð örugglega á
Atskákmóti Reykjavíkur sem lauk
nú í vikunni. Sigur á mótinu ti’yggði
Kristjáni reyndar tvöfaldan titil, því
mótið var jafnframt Atskákmót
Hellis og þar sem Kristján er félagi í
Taflfélaginu Helli er hann einnig at-
skákmeistari Hellis 2000. Kristján
hlaut 6Vt vinning í 7 skákum. Arnar
E. Gunnarsson varð annar með 5%
vinning. Röð efstu manna:
1. Kristján Eðvarðsson 6V4 v.
2. Arnar E. Gunnarsson 5'á v.
3. -5. Björn Þorfmnsson, Davíð Ól-
afsson og Bragi Þorfinnsson 5 v.
6.-8. Ólafur ísberg Hannesson,
Guðjón Heiðar Valgarðsson og
Gunnar Björnsson 4‘/2 v.
9.-11. Sigurður Ingason, Kristján
Halldórss. og Valdimar Leifss. 4 v.
12.-14. Guðmundur Kjartansspn,
Vigfús Ó. Vigfússon og Grétar Áss
Sigurðsson 3% v.
Alls tóku 26 keppendur þátt í mót-
inu. Skákstjórar voru Gunnar
Bjömsson, Vigfús Ó. Vigfússon og
Davíð Ólafsson
Bragi Þorfínnsson ungl-
ingameistari í skák
Bragi Þorfinnsson er unglinga-
meistari íslands í skák árið 2000.
Sigur hans á mótinu var mjög glæsi-
legur, en hann lagði alla sjö andstæð-
inga sína og varð IV2 vinningi fyrir
ofan Davíð Kjartansson sem lenti í
öðm sæti. Röð efstu manna varð
þessi:
1. Bragi Þorfinnsson 7/7 v.
2. Davíð Kjartansson 5V4 v.
3. Guðni Stefán Pétursson 5 v.
4. Guðjón Heiðar Valgai-ðsson 5 v.
5. Sigurður Páll Steindórss. 4'/2 v.
6. Guðmundur Kjartansson 4v.
7. -10. Ólafur ísberg Hannesson,
Halldór B. Halldórsson, Björn ívar
Karlsson og Stefán Bergsson 3/2 v.
Þátttakendur vom 17, sem er tölu-
verð fjölgun frá síðasta ári. Skák-
stjórar voru Sigurbjöm Bjömsson,
Vigfús Ó. Vigfússon og Haraldur
Baldursson. Mótið var haldið í fé-
lagsheimili Taflfélagsins Hellis.
Bragi Þorfínnsson efstur
í úrslitakeppni Haustmótsins
Bragi Þorfinnsson er efstur í úr-
slitakeppninni um titilinn skákmeist-
ari Taflfélags Reykjavíkur 2000.
Þeir Bragi, Sigurður Daði Sigfússon
og Sævar Bjarnason urðu efstir og
jafnti í meistaraflokki Haustmóts
TR og tefla nú tvöfalda umferð um
sigur á mótinu. Öllum skákum fyrri
hluta keppninnar lauk með jafntefli,
en Bragi sigraði Sævai- Bjarnason í
fyrstu skák seinni hlutans. Sigurður
Daði þarf að sigra Sævar í síðustu
skák keppninnar til að knýja fram
aukakeppni milli sín og Braga. Stað-
an er nú þessi: 1. Bragi Þorfinnsson
2/2 v. af 4 2. Sigurður D. Sigfússon
IV2 v. af 3 3. Sævar Bjamason 1 v. af
3.
Keppninni lýkur í kvöld.
Skákklúbba-
keppni TR
Skákklúbbakeppni TR verður
haldin föstudaginn 10. nóvember nk.
kl. 20:00 i félagsheimili Taflfélags
Reykjavíkur, Faxafeni 12. Tefldar
verða 2x7 umferðir eftir Monrad-
kerfi með 5 mínútna umhugsunar-
tima og skal hver sveit skipuð fjómm
skákmönnum auk varamanna. Þátt-
taka í klúbbakeppninni er ekki ein-
göngu fyrir rótgróna skákklúbba,
heldur ereinnig heimilt að mynda
sveitir að eigin ósk. Þátttökugjald
fyrir hverja sveit er kr. 1.000. Veitt
verða þrenn verðlaun auk þess sem
keppt er um veglegan farandbikar.
Þátttöku má tilkynna með tölvupósti
(rz@itn.is) eða í síma 896-3969.
Kristján Bragi
Eðvarðsson Þorfinnsson
íslandsmót
drengja- og telpna
Keppni í drengja- og telpnaflokki
á Skákþingi íslands (fædd 1985 og
síðar) verður dagana 11.-12. nóvem-
ber. Tefldar verða 9 umferðir eftir
Monrad-kerfi og er umhugsunartími
30 mínútur á skák fyrir keppanda.
Mótið mun fara fram á Akureyri
og er Skákfélag Akureyrar fram-
kvæmdaraðili. Teflt verður í sal
Brekkuskóla við Laugargötu. Einnig
er boðið svefnpokapláss í skólanum.
Tilkynna þarf fjölda í svefnpoka-
pláss með góðum fyrirvara. Taflið
hefst laugardaginn 11. nóvember kl.
13:30. Þátttökugjald er kr. 800.
Þátttökutilkynningar berist Skák-
sambandi Islands í síma 568 9141,
netfang: siks@itn.is. Einnig má til-
kynna þátttöku til Skákfélags Akur-
eyrar s. 462 7655, Þórs Valtýssonar
s. 462 3635, Gylfa Þórhallssonar s.
462 3926 eða netfang ghka@simnet-
.is
íslandsmótið í
netskák 2000
Taflfélagið Hellir, Strik.is og ICC,
alþjóðlegi skákþjónninn, bjóða til
íslandsmótsins í netskák sunnudag-
inn 12. nóvember kl 20:00, en mótið
er nú haldið í fimmta skipti. Tefldar
verða 9 umferðir eftir Monrad-kerfi,
fjögurra mínútna skákir með
tveggja sekúndna viðbót við hvem
leik (4 2). Þetta er í fimmta sinn sem
mótið er haldið, en núverandi Is-
landsmeistari í netskák er Davíð
Kjartansson.
Boðið er upp á glæsileg verðlaun í
boði Strik.is. Einnig býður ICC upp
á frímánuði fyrir verðlaunahafa.
Mótið fer fram með sama hætti og
undanfarin ár þ.e. keppendur tefla
undir dulnefnum og vita þeir því ekki
hvort andstæðingur þeirra er byrj-
andi eða stórmeistari. Veitt verða
verðlaun fyrir þrjá flokka: opinn
flokk, undir 1800 skákstigum og
stigalausa.
Mótið verður að þessu sinni haldið
á stærsta skákþjóni heims, ICC.
Mótið er öllum opið hvort sem þeir
eru félagar á ICC eða ekki. Þátttak-
endur, sem ekki eru skráðir á ICC,
fá frían aðgang í einn mánuð í boði
ICC.
Skylda verður að nota nýjasta
Blitzin hugbúnaðinn (Blitzin 2.31) í
mótinu, en hann er með innbyggðan
hugbúnað til að útiloka að skákmenn
noti sér tölvu til aðstoðar sem er
stranglega bannað og kostar brott-
rekstur úr mótinu. Hellir áskilur sér
jafnframt rétt til að útiloka viðkom-
andi frá netskákmótum á vegum
Hellis í framtíðinni.
Glæsileg verðlaun verða í boði
Striks.is. Allir þrír íslandsmeistar-
amir fá farsíma, nánar tiltekið verða
verðlaunin sem hér segir:
Opinn flokkur
1. vl. Ericsson-R380 (Verðgildi um
kr. 70.000) + sex mán. frítt á ICC
2. vl. Þrír mán. frítt á ICC
3. vl. Tveir mán. frítt á ICC
Áhugamenn undir 1800 stigum
1. vl. Nokia-8210 (Verðgildi um kr.
45.000) + þrír mánuðir frítt á ICC
Byrjendaflokkur (stigalausir)
1. vl. Nokia-8210 (Verðgildi um kr.
45.000) + þrír mánuðir frítt á ICC
Verði menn jafnir í efsta sæti ein-
hvers flokksins verður teflt um titil-
inn. Verði tveir efstir og jafnir verða
teflt tveggja skáka einvígi með sömu
tímamörkum og í mótinu sjálfu.
Verði enn jafnt verður tefldur bi-áða-
bani. Verði fleiri en tveir jafnir verð-
ur tefld einföld umferð, verði enn
jafnt, þá bráðabani.
Til að skera úr um önnur verðlaun
verða reiknuð stig. Ekki er útilokað
að fleiri verðlaun bætist við.
Nánari upplýsingar um mótið eins
og t.d. um skráningu má nálgast á
vefsíðu mótsins: www.simnet.is/hell-
ir/netskak2000.htm. Einnig má finna
upplýsingar um mótið á skak.is.
Atkvöld á
mánudag
Taflfélagið Hellir heldur eitt af
sínum vinsælu atkvöldum mánudag-
inn 13. nóvember 2000 og hefst mótið
kl. 20:00.
Fyrst verða tefldar 3 hraðskákir
þar sem hvor keppandi hefur 5 mín-
útur til að ljúka skákinni og síðan
þrjár atskákir með tuttugu mínútna
umhugsun.
Sigurvegarinn fær verðlaun, mat
fyrir tvo frá Pizzahúsinu. Þá hefur
einnig verið tekinn upp sá siður að
draga út af handahófi annan kepp-
anda, sem einnig fær máltíð fyiir tvo
hjá Pizzahúsinu. Þar eiga allir jafna
möguleika, án tillits til árangurs á
mótinu.
Þátttökugjald er kr. 300 fyrir fé-
lagsmenn (kr. 200 fyrir 15 ára og
yngri) og kr. 500 fyrir aðra (kr. 300
fyrir 15 ára og yngri).
Daði Örn Jónsson
Hraðfrystihús Eskifjarfjarðar hf.
hefur birt viðauka við
útboðs- og skráningariýsingu sína.
Viðaukinn verður sendur þeim hluthöfum sem skráðir voru í hluta-
skrá félagsins í lok viðskiptadags 19. október 2000 og öðrum þeim
sem fengu lýsinguna senda í pósti. Hægt er að nálgast viðaukann á
heimasíðu Landsbankans: www.landsbanki.is.
Landsbanki Islands
Hraðfrystihús
Eskifjarðar hf
FÖSTUDAGÚR 10. NÓVEMBER 2000 51
HÖRPU
TILBOÐ
Gæða innimafnmi
Vönduð íslensk
innimálning á
einstöku tilboðsverði.
Verð á 4 lítra dós
1.990i i.
í verslunum HÖRPU veita reyndir
sérfræðingar þér góða þjónustu og
faglega ráðgjöf við val á hágæða
málningarvörum.
HARPA MÁLNINGARVERSLUN,
BÆJARLIND 6, KÓPAVOGI.
Sími 544 4411
HARPA MÁLNINGARVERSLUN,
SKEIFUNNI 4, REYKJAVÍK.
Sími 568 7878
HARPA MÁLNINGARVERSLUN,
STÓRHÖFÐA 44, REYKJAVÍK.
Sími 567 4400
HARPA MÁLNINGARVERSLUN,
DROPANUM, KEFLAVÉK.
Sími 421 4790
MÁLNINGARUERSLANIR
1«C