Morgunblaðið - 10.11.2000, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 10.11.2000, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2000 35 Ljósmynd/Halldór B. Runólfsson Eitt af verkum Sigmars Vil- helmssonar í Gallerí Reykjavfk. Innri barátta MYIVDLIST Gallerí Rcykjavfk MÁLVERK & TEIKN- INGAR SIGMAR VILHELMSSON Til 12. nóvember. Opið virka daga frá kl. 10-18. Laugardaga frá kl. 11-16, og sunnudaga frá kl. 14-17. SIGMAR Vilhelmsson sýnir liðlega fjörutíu myndir í Gallerí Reykjavík við Skólavörðustíg. Það má sjá í myndum hans mikla undirliggjandi ólgu sem brýst út í rómantísku flæði með draumkenndum, táknsæjum yf- irtónum. A heildina litið skortir tölu- vert á tæknilega samstillingu verka hans. Svo mikið virðist Sigmari niðri fyrir að tjáningin tekur öll völd og útkoman glatast í ofhlaðinni tilfinn- ingasemi. Narkissískar táknmyndir eru vandmeðfarnar og vilja gjarnan hafna í ofsögum þar sem of mikið er látið uppi með of litlum áhrifamætti. Fléttur og samspeglanir ganga út í öfgar og yfirskyggja raunverulegt myndefni. Það er ekki öfundsvert að róa á miðum Einars heitins Jónsson- ar og ætla sér að afla betur en hann. Það er hætt við að slíkir sjómenn komi heim með öngulinn í rassinum. Teir listamenn, hvor með sínum hætti, gætu vísað Sigmari veginn til gifturíkari árangurs. Annar er finnski aldamótamálarinn Magnus Enckell sem kom sjálfspeglunum sínum til skila með einföldum en af- arnæmum hætti. Hinn er bandaríski postmódern- istinn Ross Bleckner, en táknheimur hans er öllu óræðari, hlaðinn sértæk- um birtingarformum sem búa yfir þeirri vitundardýpt sem Vilhelm vh'ðist sækjast eftir að tjá. En - nota bene - báðir áðurnefnd- ir listamenn veðjuðu á næmleikann í stað tilfinningaseminnar og höfðu þar af leiðandi erindi sem erfiði. Það virðist nokkuð langt í slíka ögun hjá Sigmari, en hana verður hann að rækta. Enginn verður óbarinn bisk- up. Halldór Björn Runólfsson M-2000 JCL (10. nóvember Unglist í Reykjavík: HLAÐAN í GUFUNESBÆ (GRAFARVOGI) KL. 20-23.30 Glundroði og harðkjarnarokk ísam- vinnu við dordingull.com. Hljómsveit- irnar Mínus, Snafu, Forgarður helvít- is, Elexirofl. auk Length oftime frá Belgíu. Unglist Akureyri: SJALLINN KL. 20-02 Hljómsveitadjamm, fantasíuförðum og verðlaunaafhending í maraþoni. www.hitthusid.is Kirkjusöngur söngskólanema SÚ HEFÐ hefur skapast að nem- endur Söngskólans í Reykjavík gleðji kirkjugesti í Reykjavík annan sunnudag nóvembermánaðar ár hvert. Söngvarar frá Söngskólanum syngja einsöng og dúetta við guð- þjónustur í öllum kirkjum Reykja- víkurprófastdæmanna, Fríkirkj- unni í Reykjavík og kirlg'um Kópavogs, nk. sunnudag. I Grafarvogskirkju syngur Bylgja Dís Gunnarsdóttir, í Fella- og Hóla- kirkju Helga Magnúsdóttir og í Neskirkju Kristveig Sigurðardóttir. Gissur Páll Gissurarson syngur í Hallgrímskirkju þar sem útvarpað verður frá messunni. I Langholts- kirkju syngfur Svana Berglind Karlsdóttir, í Dómkirkjunni Guðríð- ur Þ. Gísladóttir og í Árbæjarkirkju syngja Hjördís Elín Lárusdóttir og Sólveig Unnur Ragnarsdóttir dúett. Magnea Gunnarsdóttir syngur í Seljakirkju, Hólmfríður Jóhannes- dóttir í Fríkirkjunni í Reykjavík, Þórunn Marinósdóttir í Breiðholts- kirkju, Dagný Þ. Jónsdóttir í Bú- staðakirkju. í Áskirkju syngur fvar Helgason, í Háteigskirkju Margrét Árnadóttir og í Grensáskirkju Sig- urlaug Jóna Hannesdóttir. í Laug- arneskirkju syngja Aðalsteinn Bergdal, Hulda Björg Vfðisdóttir, Hafsteinn Þórólfsson og Ragnheið- ur Hafstein og munu þau leiða safn- aðarsöng. Elísabet Ólafsdóttir og Pétur Örn Þórarinsson syngja dúett í Kópavogskirkju, Auður Guðjohn- sen syngur í Digraneskirkju og María Jónsdóttir í Hjallakirkju. Nemendur Söngskólans í Reykjavík. LANCÖME PAfitlS RÉNERtp^*# CONTOÚR LIFT Besti stuðningur húðarinnar 1 | www.lancomo.com }ji] Kynnum stórkostlegar nýjungar fyrir andlit. Viðskiptavinir Lancöme fá veglega kaupauka. Kynning í dag og á morgun laugardag. H Y G E A énýflisSru i'étíUín Laugavegi sími 511 4533 íslenska sem annað mál Málræktarþing 2000 í hátíðasal Háskóla íslands 11. nóvember í tilefni af degi íslenskrar tungu efnir íslensk málnefnd til málræktarþings í hátíðasal Háskóla íslands. Yfirskrift þingsins er „íslenska sem annað mál“ og verður fjallað um sambúð fólks af erlendum uppruna við íslenskuna, jafnt þeirra sem sest hafa að á íslandi og þeirra sem nema íslensku á erlendri grundu. Dagskrá 10.30 Setning 10.35 Ávarp menntamáiaráðherra, Björns Bjarnasonar. Afhentur nýr styrkur Mjólkursamsölunnar til háskólanema sem vinnur að lokaverkefni um íslenskt mál 10.45 Verðlaunahafar úr Stóru upplestrarkeppninni lesa upp 10.50 Ávarp borgarstjóra, Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur Ræðumenn: 11.00 Dr. Birna Arnbjörnsdóttir, Háskóla íslands: Tvítyngi og skóli: Áhrif tvítyngis á framvindu í námi 11.30 Ingibjörg Hafstað kennsluráðgjafi, Fræðslu- miðstöð Reykjavíkur: Tvítyngdir nemendur í íslenskum grunnskólum 12.00 Hádegishlé og veitingar 12.30 Þóra Björk Hjartardóttir dósent, Háskóla ísiands: íslenska fyrir útlendinga í Háskóla íslands 12.45 Úlfar Bragason, forstöðumaður Stofnunar Sigurðar Nordals: íslenskukennsla við erlenda háskóla 13.00 Þóra Másdóttir talmeinafræðingur, Talþjálfun Reykjavíkur: Tvítyngi og frávik í málþroska 13.30 Matthew Whelpton lektor, Háskóla íslands: Að tala íslensku, að vera íslenskur. Mál og sjálfsmynd frá sjónarhóli útlendings 14.00 Þingslit ÍSLtHSgfAAmtTHt) Málræktarþingið er öllum oþið á meðan húsrúm leyfir "W
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.