Morgunblaðið - 10.11.2000, Side 8

Morgunblaðið - 10.11.2000, Side 8
8 FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Hún er búin að verða fyrir svo miklum pólitískum árásum að hún þorir ekki út fyrir dyr nema í lögreglufylgd. Missti barnabætur vegna búsetu erlendis HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest lögraæti úrskurðar ríkisskattstjóra, sem felldi niður skattskyldu ís- lenskrar konu hér á landi þar sem hún bjó í Bretlandi. Úrskurður ríkis- skattstjóra hafði í för með sér að konan var endurkrafin um bama- bætur að upphæð tæplega ein millj- ón króna. Konan fluttist til Bretlands með börn sm þrjú vorið 1996, en kom aft- ur til íslands vorið 1999, auk þess sem hún dvaldist hér á landi um tíma árið 1997 þegar hún fæddi fjórða barn sitt. Hún var allan tímann skráð með lögheimili í Reykjavík. Með úrskurði sínum í júlí 1998 felldi ríkisskattstjóri niður fulla og ótakmarkaða skattskyldu konunnar hér á landi, á þeim forsendum að hún væri heimilisföst í Bretlandi og aflaði sér þar tekna. Skattskyld í Bretlandi sam- kvæmt tvísköttunarsamningi I málinu kom fram að konan greiddi hvorki skatta í Bretlandi né naut þar bóta, en hún hafi verið skattskyld þar samkvæmt tvískött- unarsamningi íslands og Bretlands. Ráðstefna löggiltra endurskoðenda Er líf eftir vinnu? Símon Á. Gunnarsson DAG hófst tveggja daga ráðstefna Fé- lags löggiltra endur- skoðenda á Hótel Loftleið- um. Símon A. Gunnarsson er formaður Félags lögg- iltra endurskoðenda. Hann var spurður hvað væri að- alefni ráðstefnunnar? „Aðalefnið í dag er verð- bréfamarkaðurinn og fjár- málamarkaðurinn á ís- landi. Þar erum við sérstaklega að fjalla um þrjá meginþætti. í fyrsta lagi hvaða reglur gilda um innherjaviðskipti á ís- lenskum hlutabréfamark- aði. Við skoðum einnig sið- ferðilega þáttinn á því máli og hvernig eftirliti er hátt- að. í öðru lagi erum við að velta fyrir okkur áhrifum fjármálamarkaðar á hagkerfið, þ.e. hvaða áhrif hafa vaxandi við- skipti með innlend og eriend hlutabréf á hagkerfið í heild sinni. í þriðja lagi munum við skoða er- lend fjárfestingafélög, hvernig ís- lendingar eru að nota þau og hvort nauðsynlegt sé að gera breytingar á skattareglum hér á landi til þess að standast sam- keppni við eriend fjárfestingafé- lög.“ -Hvað ætlið þið að gera á morgun? „Þá ætlum við að ræða málefni sem standa nær hinum hefð- bundnu verkefnum endurskoð- enda. Fjallað verður um stefnu stjómvalda í skattamálum, mæl- ingar á mannauði íyrirtækja, verðbólgureikningsskil og loks eru endurskoðendur að velta fyrir sér spumingunni „Er líf eftir vinnu?“ - Hvemig er mannauður mæld- ur? „Endurskoðendur em að skoða spurninguna hvernig hægt sé að lýsa þeim verðmætum sem felast í mannauði fyrirtækja í ársreikn- ingum þeirra. Engar leiðir em enn viðurkenndar í þessum efnum en það er vaxandi þörf fyrir slíkar mælingar þegar markaðurinn er farinn að meta þessi verðmæti þegar t.d.fyrirtæki em verðlögð." - Hvað með verðbólgureikn- ingsskilin? „Þar verður sú spm-ning áleitn- ari hvort íslendingar eigi að laga sig að reikningsskilum annarra þjóða með því að fella niður þær verðbólguleiðréttingar sem gerð- ar hafa verið í íslenskum reikn- ingsskilum í rúmlega 20 ár.“ - Eru þau mjög frábrugðin því sem annars staðar gerist? „Við höfum endurmetið eignir og reiknað það sem kallað er verð- breytingafærsla inn í rekstrar- reikning en það hafa aðrar þjóðir ekki gert. Úpphaflega var þetta gert á þeim tíma sem verðbólgan mældist í tugum prósenta á ári. En eftir því sem verðbólgan hefur minnkað og alþjóðleg samskipti fyrirtækja hafa aukist hefur þetta valdið ákveðnum vandkvæðum í samanburði milli landa.‘ - Hver er þín skoðun á áhrifum fjármála- markaðar hér á hag- kerfið? „Mín skoðun er að eftir því sem alþjóðleg samskipti hafa aukist í peningamálum séu það fleiri hagstærðir sem skipta máli heldur en áður voru notaðar. Fjármagnsflutningar hafa ekki minni áhrif en flutning- ur á milli landa á vörum og þjón- ustu og breytingar, t.d. í gengis- málum, sýna svo ekki verður um villst að við erum að upplifa nýja tíma.“ ► Símon Á. Gunnarsson fæddist í Reykjavík 30. desember 1953. Hann lauk stúdentsprófi frá Verslunarskóla íslands 1964 og cand. oecon-prófi frá Háskóla Is- lands 1978. Þá lauk hann MBA- námi frá University of Southern California árið 1981. Hann fékk löggildingu sem endurskoðandi 1980. Hann hefur starfað sem endurskoðandi frá 1974, fyrst hjá endurskoðunarskrifstofu Manscher & Co en nú hjá KPMG- endurskoðun. Símon er kvæntur Guðrúnu Maríu Benediktsdóttur skrifstofumanni og eiga þau þrjú börn. - Telur þú að viðskipti íslend- inga við erlend fjárfes tinga l'élög hafímikil áhrif á hagkcrfíð hér? „Ég tel að að sumu leyti sé þessi umræða á villigötum vegna þess að menn hafa lagt það að jöfnu að íslendingar stofni erlend fjárfest- ingafélög og að peningar séu á leiðinni út úr íslensku atvinnulífi. Þar á millli þarf alls ekki að vera samasemmerki, hins vegar er það staðreynd að fjármagnseigendur munu reka starfsemi sína á þeim stöðum þar sem skattlagning er hagstæðust. Fyrir Islendinga er því mikilvægt að taka ákvörðun um það hvort við ætlum að standa í samkeppni á þessu sviði eða ekki. Til þess að íslensk félög standist samanburð við erlend fjárfest- ingafélög þarf að laga reglur um skattlagningu hér á landi.“ - Hvernig þá? „Algengasti samanburður hér er við eignarhaldsfélög í Luxem- burg, þar sem fjárfestingafélög sem kaupa og selja verðbréf eru nánast skattlaus á sama tíma og íslensk félög sem stunda sam- bærileg viðskipti borga 30% tekjuskatt og 1,45% eignaskatt.“ - Þið ætlið að velta sérstaklega fyrir ykkur í dag hvort það sé „líf eftir vinnu?" Hvert er þitt álit á því? „Sú ímynd sem að við teljum að sé í hugum fólks á endurskoðend- um er að þeir vinni myrkranna á milli og eigi sér vart neitt einkalíf. Við teljum þessa ímynd ekki rétta og viljum þar af leið- andi breyta henni. Við erum meðal annars að velta því fyrir okkur hvort þeir endurskoð- endur sem horfið hafa til annarra starfa sjái endurskoðendastarfið með þessum augum eftir að hafa skipt um starfsvett- vang. Um það fáum við upplýsing- ar í dag. Jafnframt eru endur- skoðendur að skoða hvernig breyta megi vinnuumhverfinu þannig að þessi ímynd eigi alls ekki við og starfið verði álitlegra í hugum ungs fólks. Teljum ímynd endurskoð- enda ekki rétta og vilj- um breyta henni

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.