Morgunblaðið - 10.11.2000, Síða 24
24 FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2000
VIÐSKIPTfl
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðiö/Sverrir Vilhelmsson
Guðrún Ragnarsdóttir, Valur Valsson, heiðursfélagi Gæðastjórnunarfélagsins, og Guðjón Reynir Jóhannesson.
Gæðavika Gæóastjórnunarfélags íslands
Valur Valsson val-
inn heiðursfélagi
NÚ stendur yfír gæðavika Gæða-
stjórnunarfélags íslands og ber hún
yfírskriftina: Skiptir starfsumhverfí
máli? Á miðvikudaginn hélt félagið
námstefnu sem nefndist Líkami og
sál og á ráðstefnu í gær var fjallað
um heimilið ogvinnustaðinn.
Valur Valsson, forstjóri íslands-
banka-FBA, var útnefndur sérstakur
heiðursfélagi Gæðastjómunarfélags-
ins á ráðstefnunni í gær en þetta er í
annað skipti sem það er gert.
Valur hlaut útnefningu fyrii- að
hafa verið frumkvöðull að því að taka
Fyrsti erlendi
þingaðilinn ^
skráður á VÞÍ
STJÓRN Verðbréfaþings ís-
lands samþykkti í vikunni um-
sókn fyrsta erlenda þingaðilans
um skráningu á þinginu. Þetta
er dótturfélag Unibank í Dan-
mörku sem gengur undir nafn-
inu ArosMaizels.
Finnur Sveinbjörnsson,
framkvæmdastjóri Verðbréfa-
þings, segir góðar vonir um að
fleiri erlend fyrirtæki sæki um
aðild að þinginu nú þegar ísinn
hafi verið brotinn.
upp gæðastarf hjá íslandsbanka fyr-
ir um áratug síðan en á þessum tíma
hefur Valur verið mjög virkur þátt-
takandi og mikill talsmaður gæða-
hugsunar og íslandsbanki er þekktur
fyiir að hafa unnið mjög gott gæða-
starf á liðnum árum.
Við val á heiðursfélaga koma til
greina þeir sem hafa unnið mjög gott
starf fyrir félagið, þeir sem unnið
hafa að rannsóknum og kennslu á
þessu sviði, frumkvöðlar sem inn-
nleitt hafa nýjungar á sviði gæða-
mála og starfsmenn og stjómendur
sem hafa unnið að gæðamálum af
heilum huga innan fyrirtækja sinna.
félagsblað, Dropann, sem kemur út
þrisvar til fjórum sinnum á ári. Guð-
rún segir að það séu einkum íyrir-
tæki sem eigi aðild að félaginu. Alls
séu í félaginu um 270 fyrirtæki með
samtals 700 einstaklingum sem flest-
ir tengist fyrirtækjunum á einn eða
annan hátt.
SH með 217 millj
onir í hagnað
HAGNAÐUR af rekstri SH sam-
stæðunnar fyrstu níu mánuði ársins
nam 217 milljónum króna en á sama
tímabili í fyrra nam tap félagsins 81
milljón króna. Hagnaður fyrir fjár-
magnsliði nam 841 milljón króna en í
fyrra nam hann 488 milljónum og
hagnaður af reglulegri starfsemi
nam 225 milljónum samanborið við
146 milljónir króna í fyrra. Rekstrar-
tekjur námu 33,1 milljarði og veltufé
frá rekstri 504 milljónum en það var
459 milljónir allt árið 1999.
Afkoma þriðja ársfjórðungs
undir væntingum
I fréttatilkynningu kemur fram að
afkoma þriðja ársfjórðungs nam
þannig 28 milljónum og er það undir
væntingum. Rekstrarafkomu tíma-
bilsins má í meginatriðum skipta í
tvennt. Annars vegar starfsemi dótt-
urfélaga, markaðs- og framleiðslu-
fyrirtækjanna, sem skilaði 89 milljón
króna hagnaði, og hins vegar eignar-
haldsstarfsemi en á henni varð 60
milljón króna tap. Það má rekja til
hækkunar fjármagnskostnaðar og þá
sér í lagi til gengistaps að fjárhæð 37
milljónir króna sem myndaðist vegna
þess að skuldir móðurfélags í erlend-
um gjaldmiðlum voru umfram pen-
ingalegar eignir. „Eins og áður hefur
komið fram var um sl. áramót gerð sú
breyting á starfsemi móðurfélagsins
að það er nú eingöngu eignarhaldsfé-
lag. Félagið hefur leitast við að draga
úr gengisáhættu með því að hafa
eignir og skuldir í erlendum gjaldm-
iðlum sem næst því í jafnvægi. Þann-
ig hafa eignir félagsins, sem að mestu
eru eignarhlutar í erlendum dóttur-
félögum, að hluta til verið fjármagn-
aðar með lánum í erlendum myntum.
Við gerð reikningsskila fá eignar-
hlutirnir og skuldirnar ekki sömu
meðferð. Gengistap vegna skulda er
fært í rekstrarreikning og nam það
66 m. króna á árinu. Þess má geta að
óinnleystur gengishagnaður vegna
eignarhluta í öðrum félögum, sem
færður er beint á eigið fé, nam 268 m.
króna. Veiking krónunnar á árinu
hefur þannig haft neikvæð áhrif á af-
komu SH hf,“ að því er fram kemur í
fréttatilkynningu. Þar kemur enn
fremur fram að gengissveiflna muni
enn gæta þótt dregið hafi verið úr
vægi þeirra meðal peningalegra
eigna og skulda og ljóst er að áhrif
nýlegra fjárfestinga í erlendum sjáv-
arútvegsfyrirtækjum, 1,8 milljarðar,
munu koma fram í auknum fjár-
magnskostnaði á næstu misserum
hjá samstæðunni auk þess sem vextir
hafa almennt verið að hækka.
Gert er ráð fyrir að hagnaður af
reglulegii starfsemi á síðasta árs-
fjórðungi verði svipaður og á þeim
þriðja.
----------------------
Afkomuviðvör-
un Fiskiðjusam-
lags Húsavíkur
AFKOMA Fiskiðjusamlags Húsa-
víkur hf. á síðasta reikningsári, frá 1.
september til 31. ágúst 2000, verður
mun lakari en áætlanir ársins gerðu
ráð fyrir, samkvæmt tilkynningu til
Verðbréfaþings íslands. Megin-
ástæður fyrir slakri afkomu má
rekja til niðurfærslu á kröfum og
eignarhlutum í öðrum félögum,
gengismun vegna gengistryggðra
lána og lækkandi framlegðar í
rækjuvinnslu.
Aðilar eru 270 fyrirtæki með
samtals 700 einstaklingum
Gæðastjómunarfélag íslands var
stofnað árið 1986 og að sögn Guðrún-
ar Ragnarsdóttur, formanns stjórnar
félagsins, er eingöngu um sjálfboða-
starf að ræða innan félagsins, menn
standi í þessu af hreinum áhuga og
eins vegna þess að þeir vilji vinna að
framgangi gæðamála hér á íslandi.
Árið 1997 hafi starfsemi félagsins
verið útvíkkuð og það sé nú fagfélag
um stjómun almennt og heiti þess
lýsi því starfseminni ekki fyllilega
eins og hún er nú. Á vegum Gæðast-
jórnunarfélagsins era starfandi tólf
faghópar sem halda fræðslufundi en
auk þess heldur félagið námstefnur,
ráðstefnur og námskeið og gefur út
Bankastarfsmenn á
Islandi vel upplýstir
„ÉG er sammála manninum um það
að starfsmenn verði að vera með frá
upphafi," sagði Stefán Pálsson, aðal-
bankastjóri Búnaðarbankans, þegar
hann var inntur álits á ummælum
Dag Áme Kristensen, formanns Fé-
lags starfsmanna á fjármálamarkaði
á Norðurlöndum, um samrana
banka. Kristensen segir að til að ár-
angur verði af samrana banka þurfi
starfsmenn að vera vel upplýstir um
gang mála og taka þátt í samrana-
ferlinu frá upphafi.
Kristensen lýsir einnig þeirri skoð-
un sinni að ekíd hafi verið nægilega
vel staðið að sameiningu Búnaðai'-
banka og Landsbanka að þessu leyti
og að starfsmenn virðist hafa fengið
upplýsingar um einstaka þætti í
gegnum fjölmiðla. Um þetta segist
Stefán vera algerlega ósammála og
segir þessu þveröfugt farið við það
sem Kristensen heldur fram. „Við
höfðum formann starfsmannafélags-
ins inni í málum alveg frá upphafi og
ég vona að okkur takist að halda góðu
sambandi við starfsfólk í gegnum
ferlið,“ sagði Stefán.
Oréttmæt gagnrýni
Halldór J. Kristjánsson, banka-
Hátíð ársins!
ICELANDAJR HöTELS
Upplýslngar og bókanlr f sfma 50 50 9 10
stjóri Landsbankans, sagði það rétt
hjá Kristensen að starfsmenn eigi að
taka þátt í samrunaferli frá upphafi.
Hann segir þetta vera grandvallar-
atriði til að samruni gangi vel fyrir
sig og að í bönkunum hafi verið byrj-
að fyrir allnokkru að búa starfs-
mennina undir þetta og reyna að
upplýsa þá sem allra best um gildi
samrunans. Þetta sé starf sem hafi
farið fram mánuðum saman í Lands-
bankanum, enda segist hann telja að
starfsmenn bankans séu jákvæðir
gagnvart breytingunum og vel undir
það búnir að taka þátt í því umbreyt-
ingarferli sem samraninn sé.
„Um leið og hið eiginlega sam-
ranaferli hefst koma allir starfsmenn
bankans inn í það af fullum þunga, en
það hefst ekki fyrr en niðurstaða
Samkeppnisstofnunar liggur fyrir og
það er kannski það sem veldur ein-
hverjum misskilningi," sagði Hall-
dór.
Hann sagðist hafa orðið hissa á
þeim sjónarmiðum sem Kristensen
setti fram um samrana Búnaðar-
banka og Landsbanka. Kristensen
hefði ekki haft samband við stjóm-
endur Landsbankans til að kynna sér
hvaða starf hefði farið fram innan
bankanna til undirbúnings samran-
anum og sagðist Halldór álíta gagn-
rýnisvert fyrir mann í stöðu Kristen-
sens að koma fram með slíka
gagnrýni án þess að kynna sér málið.
„Við höfum ávallt gætt þess,“ sagði
Halldór, „að starfsmenn fái umfjöll-
un og kynningu á öllum ákvörðunum
fyrst innan bankans áður en þær eru
kynntar utan hans. Umræður í fjöl-
miðlum eða getgátur era hins vegar
atriði sem ekki era á ábyrgð bank-
anna.“
Valur Valsson, forstjóri íslands-
banka-FBA, sagði að það gengi ekki
þegar ákvörðun væri tekin um að
sameina íyrirtæki á fjármálamarkaði
að hafa samráð við stóran hóp, til
dæmis alla starfsmenn. Þegai*
ákvörðun um samrana hefði verið
tekin væri hins vegar nauðsynlegt að
starfsmenn væra vel upplýstir.
Framkvæmd samrana sagði hann
byggjast á mikilli vinnu mjög stórs
hóps starfsmanna og að slík vinna
væri nauðsynleg til að samruninn
heppnaðist.
Valur sagði einnig nauðsynlegt að
sem skemmstur tími líði frá því að
ákvörðun hefur verið tekin um sam-
rana og þar til starfsmenn viti hver
staða þeirra sé. Ákveðin óvissa um
tiltekinn tíma sé óhjákvæmileg, en
nauðsynlegt sé að hún sé sem minnst.
Valur hefur farið í gegnum tvo
bankasamrana, annan fyrir rúmum
áratug þegar Alþýðubankinn, Iðnað-
arbankinn, Útvegsbankinn og Versl-
unarbankinn voru sameinaðir undir
nafninu Islandsbanki og hinn fyrr á
þessu ári er íslandsbanki og FBA
sameinuðust undir nafninu Islands-
banki-FBA. Valur sagði að nokkur
munur hefði verið á þessum samran-
um því í fyrra tilvikinu hefði verið
ljóst að stefnt væri að fækkun starfs-
fólks en slíkt hefði ekki verið í mynd-
inni síðastliðið vor í samrana íslands-
banka og FBA. Hins vegar hefði
aðkoma starfsfólks að málinu og upp-
lýsingar til þess verið mjög svipuð.