Morgunblaðið - 10.11.2000, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 10.11.2000, Qupperneq 30
30 FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Mikill ótti við kúariðusmit í Frakklandi og sala á nautakjöti hrapar Bændur vilja slátra meira en milljón gripum París. AFP. Nautsskrokkar á kjötmarkaði í París. Nautakjötssala í frönskum versl- unum hefur sums staðar minnkað um meira en helming. VAXANDI ótti er við útbreiðslu kúariðu í Frakklandi og fyrir franskan landbúnað er hann þegar farinn að hafa mjög alvarlegar af- leiðingar. Er Spánn nú kominn í tölu þeirra ríkja, sem bannað hafa innflutning á sumu frönsku nauta- kjöti, og franskir bændur hafa hvatt til, að meira en milljón grip- um, sem komnir eru á ákveðinn aldur, verði slátrað og eytt. Óttinn við kúariðuna og hugsan- legar afleiðingar hennar, Creutz- feldt-Jakob-sjúkdóm í mönnum, hefur farið eins og eldur í sinu um allt Frakkland. Margir skólar hafa bannað nautakjöt í mötuneytum, í verslunum hefur sala á nautakjöti minnkað um allt að 60% og reglu- lega berast fréttir um ný kúariðu- tilfelli. Eru þau um 170 alls og þar af 89 á þessu ári. Vitað er með vissu um tvo menn, sem látist hafa af völdum Creutzfeldt-Jakob-sjúk- dómsins. Yfirvöld á Spáni hafa bannað innflutning á kjöti af frönskum nautgripum, sem eru eldri en 20 mánaða, en áður höfðu Ungverjar, Pólverjar og Rússar gripið til sömu ráða. Spánska bannið er þó sýnu alvarlegra fyrir franska bændur því að Spánn er Evrópu- sambandsríki og hluti af innra markaðinum. Ný stofnun fylgist með öryggi matvæla Framkvæmdastjórn Evrópusam- bandsins lagði til í fyrradag, að komið yrði á fót sérstöku matvæla- eftirliti fyrir öll ESB-ríkin til að tryggja öryggi vegna matvæla. Yrði það skipað sérfræðingum og vísindamönnum og talið er, að allt að 330 menn muni starfa við þessa nýju stofnun og árlegur kostnaður við hana verði um 5,2 milljarðar ís- lenskra króna. Árlegt framleiðslu- verðmæti í evrópskum matvæla- iðnaði er meira en 44.000 milljarðar ísl. króna. Kúariðukreppan í Frakklandi hófst fyrir alvöru fyrir þremur vik- um þegar það fréttist, að átta tonn af hugsanlegu kúariðukjöti hefðu verið seld í frönskum stórverslun- um. Það varð síðan ekki til að slá á kreppuna þegar franski heilbrigð- isráðherra sagði sl. þriðjudag, að líkega ættu tugir manna eftir að deyja úr Creutzfeldt-Jakob-sjúk- dómnum. Viðbrögð bænda voru að krefjast þess, að meira en milljón gripum, sem bornir hefðu verið eftir 15. júlí 1996, yrði slátrað en á þessum tíma var gripið til mikils eftirlits með kúariðusmiti, jafnt í lifandi gripum sem í fóðri. Jean Glavany, landbúnaðarráð- herra Frakklands, segir að slátr- unin myndi kosta allt að 200 millj- örðum ísl. króna en málið verði skoðað í samráði við bændur. Robin Cook, utanríkisráðherra Bretlands, var í Frakklandi í gær og skoraði þá á frönsk yfirvöld að aflétta banni við innflutningi á bresku nautakjöti. Það hafa þau ekki gert þótt framkvæmdastjórn ESB hafi skipað þeim að gera það fyrir rúmu ári. Sagði hann, að ekki kæmi til þess, að Bretar bönnuðu innflutning á frönsku nautakjöti þrátt fyrir kúariðumálið þar. í Bretlandi hefur 81 maður látist úr Creutzfeldt-Jakob-sjúkdómn- um, þar af flmm í litlu þorpi á Mið- Englandi, Queniborough. Langlík- legast þykir, að ástæðan sé kúa- riðusmitað kjöt þótt ekki sé það fullsannað. Síamstvíburinn Jodie Lausúr öndunarvél London. AP. UNGBARNIÐ Jodie, sem var samvaxin systur sinni Mary en var skilin frá henni með skurðaðgerð í Bretlandi, er nú á batavegi, að sögn lækna í gær. Mary lést við aðgerðina eins og vitað var fyrir fram að myndi gerast. Ákvörðunin um að skilja systurnar að olli miklum deilum um siðferðis- legt réttmæti hennar en for- eldarnir voru andvígir aðgerð af trúarlegum ástæðum. Jodie er ekki lengur í önd- unarvél og nærist með eðlileg- um hætti en er þó enn í lífs- hættu. En læknar hennar segja að líkurnar á því að hún nái fullum bata aukist dag frá degi. Jodie mun þurfa að gangast undir margar aðgerð- ir en lifi hún af er sagt að hún verði með eðlilega greind, geti gengið og jafnvel eignast börn. Stúlkurnar fæddust með samvaxnar mænur og voru fastar saman á neðri hluta líkamans. Mary var hvorki með eigin lungu eða hjarta. Læknar fullyrtu að ef ekki yrði gripið til aðgerðar myndu þær báðar deyja fljótlega en stúlkurnar fæddust fyrir þremur mánuðum. Þjóðverjar minnast örlagadagsins 9. nóvember Fjöldaganga í Berlín geg n nýnazisma Berlín. Reuters, AFP. Reuters Þátttakandi í inótmælagöngunni gegn nýnazisma í Berlín í gær heldur á táknrænni mynd af yfirmáluðum hakakrossi við upphaf göngunnar fyr- ir framan bænahús gyðinga, sem nazistar skemmdu á „kristalsnóttinni** fyrir 62 árum. Réttarhöld í stóru smyglmáli í Kína Talið að háttsett- um embættismönn- um verði hlíft Peking. AFP. TUGÞUSUNDIR þýzkra borgara tóku í gær þátt í fjöldagöngu í Berlín til að lýsa áhyggjum sínum af ofbeldisbrotum nýnazista gegn útlendingum og öðrum minnihluta- hópum í landinu. Gerhard Schröder kanzlari og Paul Spiegel, formaður samtaka gyðinga í Þýzkalandi, fóru fyrir göngunni frá bænahúsi gyðinga við Oran- ienburger-stræti að Brandenborg- arhliðinu, en dagsetningin 9. nóv- ember vekur minningar um skin og skúrir í sögu Þýzkalands á 20. öld: Þennan dag árið 1938, „kristals- nóttina** svokölluðu, náðu ofsóknir nazista gegn gyðingum í fyrsta sinn svo langt, að guðshús og verzlanir gyðinga um allt Þýzka- land voru eyðilagðar (í „hefndar- skyni“ fyrir morð á þýzkum stjórnarerindreka í París sem gyð- ingur framdi). Þennan dag árið 1918 lagði keisari Þýzkalands, Vil- hjálmur II, niður völd og fyrsta þýzka lýðveldið var stofnað, og þennan dag árið 1923 gerði Adolf Hitler valdaránstilraun í Munchen, sem hann var dæmdur til fangels- isvistar fyrir, en meðan á henni stóð skrifaði hann bókina Mein Kampf. Síðast en ekki sízt var það þennan dag árið 1989 sem Berlín- armúrinn féll og járntjaldið í Evrópu þar með. „Níundi nóvember er dagsetning í þýzkri sögu, sem minnir okkur á skyldu okkar til að standa vörð um lýðræðið," sagði í tilkynningu þeirra sem að fjöldagöngunni stóðu. „Við stöndum fyrir mannúð- legt og umburðarlynt Þýzkaland, sem er opið fyrir heiminum." „Hinn pólitíski lærdómur sem okkur ber að draga af þessum degi (í sögu Þýzkalands) er skyldan til að gera allt sem við getum til að hindra að öfgamönnum takist nokkru sinni aftur að komast til áhrifa í landinu," sagði Angela Merkel, leiðtogi stjórnarandstöðu- flokks kristilegra demókrata. í fyrradag ákvað þýzka stjórnin að fela stjórnarskrárdómstólnum að skera úr um hvort banna skuli „Þjóðernislega lýðræðisflokkinn**, NPD, lítinn flokk hægri öfga- manna. Stjórnin sakar flokkinn um að hvetja ofbeldishneigð ung- menni, einkum í austurhluta lands- ins, til árása á útlendinga, helgar byggingar gyðinga og minnismerki um helförina. Sambandsráðið, efri deild þýzka þingsins, tekur afstöðu til þess í dag hvort það fari einnig fram á að NPD verði bannaður. FYRSTU umferð réttarhalda, í tengslum við eitt umfangsmesta spillingarmál sem upp hefur komið í Kína í rúmlega 50 ára stjórnartíð Kommúnistaflokksins, er lokið. 84 voru sóttir til saka í þessari umferð og voru 14 dæmdir til dauða. Þrátt fyrir það efast stjórnmálaskýrendur um að Kína sé þess reiðubúið að láta hæstsettu embættismennina sem málinu tengjast, svara til saka. Spillingarmálið snýst um um- fangsmikla smyglstarfsemi Yan- Hua-fyrirtækisins. Það hefur haft höfuðstöðvar sínar í Hong Kong en smyglstarfsemin hins vegar farið um höfn borgarinnar Xiamen í Fuj- ian-héraði í suðurhluta Kína. Um gífurlegar upphæðir hefur verið að ræða, t.d. er talið að á fjögurra ára tímabili hafi fyrirtækið smyglað eldsneyti, tóbaki, bílum og öðrum varningi að virði 6 milljarða dollara. Það þýðir 3,5 milljarða tap fyrir rík- issjóðinn. Allt að 600 ríkisstarfsmenn eru taldir tengjast smyglinu, þar á með- al sumir æðstu leiðtoga Kína. Talið er að um 200 verði sóttir til saka, og sagði Bob Bradfoot, sem rekur ráð- gjafafyrirtæki á sviði stjórnmála og hagfræði í Hong Kong, í samtali við AFP að honum sýndist enginn veru- lega háttsettur hafa verið sóttur til saka enn. Hann telur að um 200 rík- isstarfsmenn verði yfirheyrðir. Bradfoot telur þó mjög mikilvægt að tekið hafí verið á málinu, a.m.k að einhverju leyti. „Þetta hefur mikla þýðingu vegna þess að þetta sýnir að æðstu leiðtogar eru mjög á móti spillingu." Bradfoot segir að nú skipti öllu máli að sjá hvort yfirvöld muni halda rannsókn áfram eða láta sér nægja réttarhöld yfir lægra settum ríkis- starfsmönnum. Önnur umferð réttarhalda hefst bráðlega. Þrátt fyrir að yfirmaður lögreglu og yfirmaður leyniþjónustu hersins verði sóttir til saka er talið að haldið hafi verið hlífiskildi yfir fjölskyldum nokkuri’a annarra mjög háttsettra yfirmanna. He Yong, sem leiddi rannsókn Xiamen-málsins, heldur því fram að hún sanni að Kommúnistaflokkurinn sé staðráðinn í að koma í veg fyrir misferli og smygl. Andy Xie, hag- fræðingur í Hong Kong tekur undir það og segir að herferðin gegn smyglurum hafi þegar skilað um- talsverðum árangri og dregið úr smygli og því vandamáli sem fjár- magnsflótti er. Hann segir að út- reikningar sýni að á síðustu árum hafi vörum að andvirði um 20 millj- arða dollara verið smyglað inn í landið árlega en á síðasta ári hafi sú upphæð fallin niður. Minnkandi viðskiptahalli og fjármagnsflótti benda til að dregið hafi úr smygli Þessar tölm- byggjast á minnk- andi viðskiptahalla Hong Kong, sem er um sex milljarðir dollara nú, bor- ið saman við átján, þegar upp komst um smyglið 1998. Hægt er að nota viðskiptahalla í Hong Kong til að mæla smygl í Kína þar sem margar vörur eru fluttar inn til Hong Kong, einungis til að „hverfa" og skilja þar með eftir viðskiptahalla. Fjármagnsflótti frá Kína, sem er önnur óbein mæling á spillingu, minnkaði um 40 milljarða í ár, borið saman við 1999, þá minnkaði hann um 55 milljarða í samanburði við 1998, segir Xie. „Ef litið er á þessar tölur má segja að herferðin gegn spillingu hafi verið mjög áhrifarík.“ Andófsmaðurinn Bao Tong sagði að hann væri sleginn yfir umfangi misferlisins en sagði að eingöngu pólitískar umbætur og sjálfstætt dómsvald myndu leysa vandamálið. „Spillingin er vandamál kerfisins, án endurbóta á kerfinu er ekki hægt að uppræta spillinguna." Xie tekur undir það og segir einsýnt að spill- ingarmál muni koma upp aftur, verði ekki gerðar umbætur á lögum Kína.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.