Morgunblaðið - 10.11.2000, Síða 39
38 FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2000 39
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík.
Framkvœmdastjóri: Hallgrímur B. Geirsson.
Ritstjórar: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
SJÓNARMID FORMANNS LÍÚ
KRISTJÁN Ragnarsson, for-
maður LÍÚ, gerði skýrslu
auðlindanefndar að umtals-
efni í setningarræðu sinni á aðalfundi
LIÚ í gær og sagði m.a.: „Svo virðist
að megináherzla nefndarstarfsins
hafi snúizt um auðlindir í sjó, þótt í
þingsályktunartillögunni, sem er er-
indisbréf nefndarinnar, sé henni ekki
síður ætlað að fjalla um orku í renn-
andi vatni og jarðhita. Aðkoma
nefndarinnar að þessu viðfangsefni
er með gjörólíkum hætti. Annars
vegar er lagt til, varðandi auðlindir í
sjó, að farin verði afskriftarleið, þ.e.
að útgerðinni verði gert að skila til
ríkisins hluta af aflaheimildum í
áföngum og þær síðan seldar á upp-
boði og andvirðið renni til hins opin-
bera eða veiðigjaldsleið er standi
undir tilkostnaði við rannsóknir og
eftirlit og að hluta renni gjaldið til
hins opinbera ... Viðhorf nefndarinn-
ar til vatnsorku og jarðhita er, að
engin auðlindagjöld eigi að taka af
núverandi orkuverum og rökin eru
þau, að þau séu í eigu ríkis og sveitar-
félaga.“
Þessi ummæli formanns LIÚ
benda til þess, að hann telji að jafn-
ræðis sé ekki gætt í skýrslu auðlinda-
nefndar á milli atvinnugreina.
í ályktun stjórnar LIÚ frá 29. sept-
ember sl. segir hins vegar í 3. tölulið:
„Stjórn LÍÚ er sammála nefndinni og
fagnar því, að umræða um auðlinda-
gjald snúizt um að fullkomins jafn-
ræðis atvinnugreina verði gætt varð-
andi greiðslu slíks gjalds.“
í ræðu sinni vitnaði Kristján Ragn-
arsson til samþykktar stjórnar LIÚ
og sagði: „Stjórnin telur mikilvægt
að ná sátt um fiskveiðistjórnunina og
fellst því á að mæta þessum sósíal-
ísku viðhorfum með því að greiða hóf-
legt gjald ef og þegar aðstæður gera
það mögulegt."
í samþykkt stjórnar LÍÚ segir:
„Þrátt fyrir ofangreint er stjórn LÍÚ
reiðubúin til viðræðna við stjórnvöld
um greiðslu hóflegs auðlindagjalds
enda megi það verða til að ná víð-
tækri sátt um stjórn fískveiða.“
Hvað sem líður vangaveltum um
sósíalísk viðhorf er ljóst af ræðu
Kristjáns Ragnarssonar að hann,
sem forystumaður samtaka útgerðar-
manna í áratugi, er ásamt samstarfs-
mönnum sínum í stjórn LÍÚ tilbúinn í
viðræður við stjórnvöld á grundvelli
tillagna auðlindanefndar og því ber
sérstaklega að fagna.
Kristján Ragnarsson hefur alveg
rétt fyrir sér í umfjöllun sinni um Is-
land ogESBÍ setningarræðunni á að-
alfundi LÍÚ. Hann segir m.a. um það
efni: „Enginn deilir um það, að aðild
fylgdi að ákvörðun um leyfilegan
hámarksafla á miðum við Island yrði
tekin af ráðherraráði sambandsins í
Brussel. Hvað sem sagt er um mögu-
legar undanþágur er deginum ljósara
að þær fást ekki varðandi þetta atriði
enda reyndi sérstaklega á þær þegar
Norðmenn sóttu um aðild að sam-
bandinu og fengu ekki undanþágur
nema um örstuttan tíma.“
Um þetta atnði eru Morgunblaðið
og formaður LIÚ algerlega sammála.
Það er ljóst, að Island gæti ekki orðið
aðili að ESB án þess að formleg yfir-
ráð yfir fiskveiðilögsögu okkar færð-
ust til Brussel og það er einfaldlega
óhugsandi.
Af yfirlýsingum ýmissa forystu-
manna í sjávarútvegi nú í haust um
erlendar fjárfestingar í sjávarútvegi
er ljóst, að um það mál eru skiptar
skoðanir innan LIÚ. I ræðu sinni
lýsti Kristján Ragnarsson þeirri
skoðun, að engin ástæða væri til að
heimila erlendar fjárfestingar í sjáv-
arútvegi og bætti við: „Aðalatriðið er
að við höfum ekki þörf fyrir erlendar
fjárfestingar í íslenzkum sjávarút-
vegi.“
I umræðum á aðalfundi Samtaka
fiskvinnslustöðva fyrir nokkrum vik-
um sagði Róbert Guðfínnsson, stjórn-
arformaður Þormóðs ramma-
Sæbergs, að erlend eignaraðild
mundi styrkja íslenzk sjávarútvegs-
fyrirtæki fjárhagslega.
Á sama fundi sagði Gunnar Tómas-
son, stjórnarformaður Þorbjarnar hf.
í Grindavík, að þótt útlendingum yrði
heimiluð eignaraðild að íslenzkum
sjávarútvegsfyrirtækjum þyrfti ekki
að óttast yfirtöku erlendra stórfyrir-
tækja og vísaði í þeim efnum til
reynslu Norðmanna.
Á sama fundi lýsti Björgólfur Jó-
hannsson, forstjóri Síldarvinnslunn-
ar hf. í Neskaupstað, þeirri skoðun,
að sjávarútvegurinn gæti ekki staðizt
samkeppni á hlutabréfamarkaði án
erlendrar fjárfestingar.
Forystumenn sjávarútvegsfyrir-
tækja, sem töluðu nokkrum dögum
áður á fundi greiningadeildar Kaup-
þings um sjávarútveg, töluðu flestir
með áþekkum hætti um þetta atriði.
Af þessu er ljóst, að umtalsverður
stuðningur er innan LÍÚ við þá hug-
mynd að leyfa erlendar fjárfestingar
í sjávarútvegi.
Þótt menn láti ýmis ummæli falla
um skýrslu auðlindanefndar fer tæp-
ast á milli mála, að með þeim tillög-
um, sem þar eru lagðar fram og sam-
staða náðist um innan nefndarinnar,
er lagður grundvöllur að friði um
fiskveiðistjórnarkerfið. Það er mikil-
vægt fyrir sjávarútveginn að slíkur
friður verði. Þess vegna var sam-
þykkt stjórnar LÍÚ frá 29. septem-
ber, sama dag og skýrslan var gerð
opinber, sérstakt fagnaðarefni. Hún
var staðfesting þess, að útgerðar-
menn væru tilbúnir til að leggja sitt
af mörkum til þess að sættir gætu
tekizt. Tillögur auðlindanefndar
varðandi sjávarútveginn eru alveg
skýrar. Nefndin leggur áherzlu á að
greiðsla auðlindagjalds taki mið af af-
komu greinarinnar hverju sinni og að
sjávarútvegurinn fái eðlilegan aðlög-
unartíma áður en til greiðslu auð-
lindagjalds komi. Vonandi staðfestir
aðalfundur LÍÚ með samþykktum
sínum afstöðu stjórnar samtakanna
frá 29. september sl.
Þeir menn eru vafalaust til bæði í
sjávarútvegi og ekki síður í stjórn-
málum, sem vilja fyrir hvern mun að
þessar deilur haldi áfram. Þeir hinir
sömu bera ekki þjóðarhagsmuni fyrir
brjósti heldur sérhagsmuni eða
þrönga pólitíska eiginhagsmuni.
Engum þarf að koma á óvart þótt
slíkar raddir heyrist en þær eiga ekki
að fá að ráða ferðinni.
Samþykki allir aðilar að reisa nýtt hús við norðurenda Kringlunnar verður það hugsanlega komið í gagnið eftir þrjú ár.
Nýbyggingar við Kringluna í undirbúningi og endurnýjun innan dyra
Áform um átján hæða
hótel- og skrifstofuhtís
Þyrping hefur sett fram hugmynd um fleiri nýbyggingar vestan við Kringluna.
Meðal breytinga sem
standa fyrir dyrum í
Kringlunni er að bæta
þriðju hæðinni ofan á
suðurhlutann, færa einn
innganginn og hressa
upp á útlit sameignar og
verslana. Aformað er að
reisa átján hæða hótel-
og skrifstofubyggingu
við norðurenda Kringl-
unnar efleyfífást.
HUGMYND um nýja
átján hæða hótel- og
skrifstofubyggingu við
Kringluna í Reykjavík
var kynnt í gær á fundi eigenda
Kringlunnar og verslunareigenda.
Er í ráði að reisa hana áfast norð-
urenda Kringlunnar á lóðinni í átt
að bensínstöð Skeljungs við Miklu-
braut og hefur Þyrping hf. átt sam-
starf við Skeljung um hugmyndina.
Byggingin yrði ívið hærri en Hall-
grímskirkja sem er 75 m há.
Jafnframt var kynnt sú hug-
mynd Þyrpingar hf. að reisa at-
vinnuhúsnæði á lóðum vestan við
Kringluna þar sem nú eru Hús
verslunarinnar, skrifstofubygging-
ing Sjóvár-Almennra og Morgun-
blaðshúsið. Ragnar Atli
Guðmundsson, framkvæmdastjóri
Þyrpingar, segir málið á algjöru
frumstigi en það hafi verið kynnt
fulltrúum áðurgreindra fyrirtækja
og eigi eftir að fjalla um það nánar.
Sagði hann það hugmynd forráða-
manna Þyrpingar að leita eftir því
við fyrirtækin að stofna eins konar
þróunarfélag um hvort og hvemig
megi reisa fleiri byggingar á lóðun-
um en á fundinum í gær var sýnd
tillaga um fjórar nýjar byggingar
sem Ragnar sagði vera fjögurra til
sex hæða.
Glerbygging með
fjögurra metra lofthæð
Kringlumenn hafa meðal annars
unnið þessar hugmyndir í sam-
starfi við Teiknistofu Halldórs
Guðmundssonar, Studíó Granda og
arkitektastofu í Boston, Arrow
Street.
Nýja byggingin við norðurenda
Kringlunnar yrði sem fyrr segir 18
hæðir og alls um 18 þúsund fer-
metrar. Til samanburðar má nefna
að Kringlan var upphaflega um 30
þúsund fermetrar. Byggingin yrði
að mestu úr gleri og lofthæð er ráð-
gerð fjórir metrar.
Nýja byggingin gefur möguleika
á stækkun verslana Hagkaups og
Nýkaups á neðstu tveimur hæðun-
um en þriðja hæð byggingarinnar
myndi tengjast þriðju hæð Kringl-
unnar þar sem nú eru læknastofur.
Segir Ragnar Atli að trúlega yrði
að breyta nokkuð notkun hennar.
Talið er að bæta þurfi við kringum
300 bílastæðum vegna nýja turns-
ins og er jafnframt ráðgert að
breyta þá útliti bflahúss Kringl-
unnar.
Turninn í notkun eftir þrjú ár
Ragnar Atli segir að samkvæmt
athugunum sé talinn vera markað-
ur fyrir slíka byggingu, hótel- og
eða skrifstofubyggingu eða bland-
aða. Hann segir málið hafa verið
kynnt borgaryfirvöldum en nú sé
framundan að leggja málið form-
lega fyrir skipulagsyfirvöld og
vinna að grenndarkynningu.
Hann telur raunhæft að ætla að
hótel- og skrifstofubyggingin geti
verið komin í gagnið eftir þrjú ár ef
hún verður samþykkt og að hinar
byggingamar muni geta risið jafn-
vel innan sjö ára ef hugmyndir
mótast fljótlega og leyfi fást.
Á fundinum í gær voru einnig
kynntar ýmsar breytingar á
Kringlunni sem nú era í undibún-
ingi innanhúss og utan. Munu þær
koma til framkvæmda á næstu
mánuðum að sögn Einars I. Hall-
dórssonar, framkvæmdastjóra
Kringlunnar. Einn innganga
Kringlunnar verður færður, loft-
lýsing verður endurskipulögð og
hugmyndir eru uppi um að bæta
heilli hæð ofan á suðurhús Kringl-
unnar svo eitthvað sé nefnt.
Ein af meginbreytingunum sem
er í bígerð er á einum innganga
Kringlunnar. Hugmyndin er að
loka inngangi við apótekið Lyf og
heilsa. I stað hans yrði komið fyrir
inngangi milli verslunarinnar
Byggt og búið og Tekkhússins.
Einar segir tilgang þessa tví-
þættan. Annars vegar verði flæði
fólks um húsið jafnað með breyt-
ingunni. Hins vegar verði aðkoman
stórum bætt. Einar segir hönnuði
hafa lagt til að inngangurinn yrði
fluttur, því með tilkomu nýbygg-
ingarinnar hafi hlutföll í raun
skekkst. Þeir töldu æskilegt að
inngangurinn væri við enda húss-
ins til að dreifa gestum Kringlunn-
ar jafnar yfir allt svæði hennar.
Komið verður upp barnalandi við
nýja innganginn, þ.e. svæði þar
sem yngra fólkið getur skemmt sér
í ýmiss konar leiktækjum meðan
foreldrarnir Ijúka af innkaupunum.
Breytingum lýkur
um mitt næsta ár
Til stendur að taka norðurenda
Kringlunnar, þ.e. eldri hluta
Kringlunnar, í gegn. Lýsing fyrstu
hæðarinnar verður bætt og hún
gerð bjartari og hlýlegri. Komið
verður upp nýju anddyri á annarri
hæð við Hagkaup í samræmi við
þær breytingar sem gerðar hafa
verið á inngöngum fyrstu hæðar.
„Verið er að færa húsið í nútíma-
legra horf, gera það bjartara og
léttara yfir því“, segir Einar.
Einnig verður ásýnd Ki-inglunn-
ar utanfrá gerð meira aðlaðandi,
segir Einar. „Lífgað verður upp á
aðkomu og lýsingu Kringlunnar og
andlit hennar gagnvart umhverfinu
bætt.“
Einar telur að þorra breyting-
anna verði lokið um mitt næsta ár
og muni þær kosta allt á annað
hundrað milljónir króna.
Veggmynd eftir Erró
í Kringluna
í suðurhluta Kringlunnar, þeim
hluta sem áður var þekktur sem
Borgarkringlan, verður einnig
nokkur uppstokkun, að sögn Ein-
ars. Á þriðju hæðinni verður
áhersla lögð á verslanir ætlaðar
ungu fólki. „Eins ætlar íslands-
banki að breyta útibúi sínu hér í
upphafi árs,“ segir Einar.
I byrjun næsta mánaðar verður
afhjúpað í þeim hluta Kringlunnar
mikið listaverk eftir Erró við hátíð-
lega athöfn. Um er að ræða 56 fer-
metra veggmynd.
Einnig er verið að skoða þann
kostinn að byggja heila hæð ofan á
suðurhúsið undir líkamsræktar-
stöð. Ákvörðun hefur þó ekki enn
verið tekin í þeim efnum.
,Aðalbreytingin sem við viljum
ná fram í Kringlunni felst þó í út-
litsbreytingum á verslunum henn-
ar,“ segir Einar. Verslunareigend-
ur hafa því verið hvattir til að
endurskoða andlit verslana sinna
og innréttingar. „Sumar búðir hafa
verið óbreyttar frá árinu 1987 þeg-
ar Kringlan var opnuð,“ segir Ein-
ar.
Ai'kitektinn Chris Wieszczycki
hefur teiknað ýmsar hugmyndir
sem verslunareigendur geta nýtt
sér. Einar segir verslunareigendur
hafa tekið vel í þessar hugmyndir.
„Við ætlum að halda okkar hlut í
markaðnum og það þýðir að menn
verða að þróast með,“ segir Einar.
Geðheilbrigðisvika barna 10.-17. nóvember
Umræðadregur
úr fordómum
Geðheilbrigðisvika
barna hefst í dag en
með henni er ætlunin
að vekja fólk til um-
hugsunar um að börn,
rétt eins og fullorðnir,
geta átt við geðraskanir
að stríða. Jóhanna K.
Jóhannesdóttir ræddi
við fólk sem tekur með
ólíkum hætti þátt í
verkefninu.
UPPHAF geðheilbrigðis-
vikunnar markast af
námskeiði um „skörun
námsvanda við erfið-
leika í hegðun og athygli og önnur
geðheilbrigðisvandamál barna“,
sem Bamageðlæknafélag íslands
og Fræðslustofnun lækna, í sam-
vinnu við landlæknisembættið,
Sálfræðingafélag Islands, For-
eldrafélag misþroska barna og For-
eldrafélag geðsjúkra barna og
unglinga, býður til.
Páll Tryggvason; formaður
Barnageðlæknafélag Islands, hefur
veg og vanda af skipulagningu
námskeiðsins sem fer fram í Saln-
um í Kópavogi í dag og á morgun.
Páll segir undirbúning hafa staðið
yfir í um ár þótt hugmyndin sé mun
eldri. Þrír kanadískir vísindamenn
halda kennsluerindi á námskeiðinu,
þau Rhonda Martinussen, Abel
Ickowicz og Rosemary Tannock
sem hefur um árabil stundað rann-
sóknir á athygli, lestri, hegðun og
málþroska og samhengi þessara
þátta.
„Rannsóknirnar ná til barna með
geðræn og hegðunarvandamál sem
og barna sem eiga ekki við geðræn
vandamál að stríða heldur bresti í
málþroska, lesblindu o.s.frv. en
rannsóknir benda til þess að 20%
allra barna eigi við einhver slík
vandamál að stríða og þurfi á sér-
kennslu eða annarri aðstoð að
halda. Geðræn vandamál og nám-
sörðugleikar haldast oft í hendur
þannig að ekki má líta á annað
hvort sem einangrað fyrirbæri."
Páll segir námskeiðið byggjast
upp á því hvernig standa skuli að
þverfaglegu mati þar sem kennar-
ar, sérkennarar, sálfræðingar og
læknar vinna saman til að skipu-
leggja meðferð og önnur úrræði við
hæfi. „Heilbrigðiskerfi, skólakerfi,
félagskerfi og aðrir þeir sem koma
að málefnum bama þurfa að vinna
betur saman til að ná árangri."
Þannig þarf að mati Páls að auka
skilning fólks á mikilvægi skólans í
þessu hlutverki.
„Við viljum aðallega ná til kenn-
ara, skólastjórnenda, sálfræðinga,
heilsugæslulækna og skólahjúkrun-
arfræðinga. Bömin verja stómm
hluta tíma síns með kennaranum
sem þarf að þekkja merki um erfið-
leika barnsins og kunna að taka á
þeim. í skólanum em gerðar ki’öfur
til barna um vitsmuni, samskipti við
jafnaldra og þá sem eldri em og
kröfur um siðferðisþroska þannig
að þar koma oft fyrstu merki um
vandamálin fram. Það er mikfl
ábyrgð lögð á kennarann þegar tek-
ið er tillit til þess að tölur segja að
4-5 börn í hverjum einasta bekk
þm’fi á sérstakri athygli að halda
vegna ofvirkni, þunglyndis, skap-
gerðarbresta og fleiri vandamála.
Elín Elísabet Jóhannsdóttir
Páll Tryggvason
Þegar bömum líður illa leita þau
einnig oft tfl skólahjúkranarfræð-
inga sem er þá fyrsta skrefið í ferl-
inu til betri líðanar og réttrar með-
höndlunar bamsins. Það er
nauðsynlegt að gera fólki grein fyr-
ir að meðferð er til við mörgum
þessara vandamála, hvort sem hún
er í formi lyfja, ráðgjafar eða sér-
stakrar kennslufræðilegrar með-
ferðar en meðferðina þarf að sníða
eftir þörfum hvers einstaklings fyr-
ir sig.“
Foreldrum er boðið á tveggja
tíma námskeið síðdegis á laugardag
þar sem markmiðið er að sögn Páls
að gera foreldra færari um að sinna
heimanámi barna sinna sem og til
þess að auðvelda samskipti foreldra
við skóla þar sem skólinn er nauð-
synlegur þáttur í allri meðferð.
Páll segir að stórauka þurfi geð-
heilbrigðisþjónustu við börn og
fjölga þurfi barnageðlæknum til
muna svo að hægt sé að greina börn
fyrr og veita rétta meðferð.
„Það er eins með geðræn vanda-
mál og önnur að því fyrr sem maður
fær þekkingu á þeim því betur
stendur maður að vígi og getur
bmgðist sem best við.“
Rétt meðferð geðsjúkra
barna er allra hagur
Foreldrafélag geðsjúkra barna
og unglinga var stofnað í fyrra og er
Jenný Steingrímsdóttir formaður
þess. Tæplega sjötíu fjölskyldur
tengjast starfi félagsins og virðist
þörfin fyrir slíkan stuðningshóp því
hafa verið brýn. Jenný segir félagið
einnig vera hugsað sem þrýstiafl til
að fá betri og aukna þjónustu við
geðsjúk börn þar sem biðlistar eftir
meðferðarúrræðum séu langir,
skólamál í ólestri og enn vanti
hvíldarheimili til að létta tímabund-
ið álagi af nánustu fjölskyldunni.
Jenný segir að átak eins og geð-
heilbrigðisvika bama sé afar já-
kvætt þar sem slíkt auki alla um-
ræðu um stöðu barnanna og aukin
vitund almennings dragi úr fordóm-
um gagnvart geðrænum vandamál-
um. „Fólk er smeykt við það sem
það þekkir ekki. Geðsjúkdómai- era
enn mikið feimnismál og flestum
reynist erfitt að viðurkenna fyrir
Jenný Steingrímsdóttir
Björk HreinsSóttir
sjálfum sér og öðram að þeir eigi
geðveikt bam. Við þurfum að læra
að líta á geðræn vandamál rétt eins
og aðra sjúkdóma. Fyrsta skrefið í
rétta átt er stigið með viku eins og
þessari þar sem viðurkenning er
fengin á því að vandamálið sé raun-
veralegt - að vandamálið sé til.“
Jenný leggur líka áherslu á að
átáksvikan sé ekki eingöngu hugs-
uð vegna veikra bama heldur sé
geðheilbrigði barna almennt nokk-
uð sem hlúa þurfi að. „Það gleymist
oft í hraða nútímaþjóðfélags að gefa
sér tíma til að sinna börnunum og
veita þeim athygli og umhyggju.
Líkamlegt heilbrigði er ekki nóg,
við þurfum líka að huga að geðheils-
unni.“
Björk Hreinsdóttir, ritari for-
eldrafélagsins, tekur undir orð
Jennýjar og segir enga spurningu
vera um nauðsyn þess að opna um-
ræðuna um geðheilsu barna. „Það
er svo margt sem flokkast undir
geðsjúkdóma, ofvirkni, lystarstol,
þunglyndi, í reynd allt það sem við-
kemur geði. Geðsjúkdómar eiga því
ekki að vera neitt feimnismál og
fólk sem á við geðraskanir að stríða
er ekki einhverjir brjálæðingar sem
era lokaðir inni í kjallara einhvers
staðar,“ segir Björk og hlær.
Þörfin á auknum skilningi í skól-
unum er að sögn Bjarkar mikil.
„Það er ekki bara bömunum með
geðraskanirnar sem líður illa held-
ur líka heilbrigðu bömunum því
það þarf ekki nema eitt veikt barn í
skólastofunni til að raska öllu starfi
hinna barnanna þar sem aukinn
tími kennarans fer í veika einstakl-
inginn en hin verða afskipt. Skól-
arnir þurfa því að taka sig á og hafa
stuðningsfólk til að aðstoða við
kennsluna og börnin. Sjúkdómur-
inn er svo mismunandi og einstakl-
ingsbundinn, allt frá því að vera
mjög vægur og upp í að vera al-
varlegur, þannig að fólk gerir sér
oft ekki grein fyrir vandamálunum.
Við, foreldrar geðveikra barna, ger-
um okkur vissulega grein fyrir að
börnin okkar eru mjög erfið og
valda erfiðleikum í skóla. Það er því
ávinningur fyrir alla að þau fái rétt-
an stuðning."
Björk segir langan biðtíma eftir
greiningu einnig vera erfiðan en sú
bið getur numið allt að ári. „Ef
barnið þitt væri með óreglulegan
hjartslátt fengirðu strax tíma hjá
lækni en ef geðkvilla verður vart
horfa hlutimir öðravísi við. Við
þurfum fleiri innlagnir og fleiri
pláss því fólk býr jafnvel vikum og
mánuðum saman við hernaðar-
ástand heima hjá sér sem bitnar
auðvitað á öllum fjölskyldumeðlim-
um.“
Fræðsluefni fyrir foreldra
barna í áhættuhópum
„Rannsóknir hafa sýnt að börn-
um með geðraskanir er hættara við
að ánetjast áfengi og fíkniefnum
þegar þau eldast,“ segir Elín Elísa-
bet Jóhannsdóttir, verkefnisstjóri
bókarinnar „Skrefi á undan“,
fræðslu- og forvarnarefnis sem ver-
ið er að leggja lokahönd á þessa
dagana. Bókin er einkum ætluð for-
eldram barna með geðraskanir og
er gefin út af Stórstúku íslands,
IOGT, og unnin í samstarfi við For-
eldrafélag misþroska barna og Geð-
hjálp með styrk frá Áfengis- og
vímuvarnarráði. Góðgerðarfélagið
Stoð og styrkur hefur einnig gefið
út geisladiskinn „Ljúf og létt“ en
ágóði af sölu hans rennur til styrkt-
ar gerðar forvarnarefnisins.
„Allt efni og heimildir í bókina
era sóttar til bestu sérfræðinga á
sínu sviði hér á landi, sálfræðinga, *
sérkennara, félagsráðgjafa, geð-
læknis og annarra sem hafa með
mál þessara einstaklinga að gera.
Hér er um nýtt og alíslenskt efni að
ræða sem sett er fram á einfaldan
og skýran hátt svo að það henti
okkur sem eram ekki fagfólk." Bók-
in er uppflettirit fyrir foreldra sem
vantar haldgóð svör og úrræði við
spurningum sem varða geðheilsu
bama þeirra, frá fæðingu fram á
unglingsár.
Elín segir viðbrögð foreldra sem
taka eftir geðröskunum hjá bami
oft vera vanmáttarkennd og sjálfs-
ásökun, þ.e. að geðvandamálin séu
vegna misbrests í uppeldinu. „For-
eldramir verða óöruggir og vita
ekki hvernig á að bregðast við.
Þessar tilfínningar eru eðlilegar og
afar algengar - en ekki réttmætar.
F oreldrarnir hafa ekki gert uppeld-
isleg mistök heldur hafa þeir eign-
ast barn sem krefst mikils af þeim.
Við foreldrarnir setjum bömin okk-
ar í meiri áhættuhóp ef við viljum
ekki horfast í augu við vandamál
þeirra. Fyrsta skrefið er því að
læra að viðurkenna vandann og
leita svo aðstoðar. Við eram ekki
aðeins að tala um ofvirk börn held-
ur líka þau sem glíma við þunglyndi
eða kvíða og aðrar geðraskanir.“
Elín segir mörg ofvirk börn vera
svo hvatvís að þau séu búin að fram-
kvæma hugmynd áður en þau
hugsa um hana og því sé þeim hætt-
ara við að ánetjast áfengi eða fíkni-
efnum. „Mörg hafa þau mjög laka
sjálfsmynd sem þarf að byggja upp.
Þessi börn eru umhverfinu erfíð,
þau era óþekk, og því gefur um-
hverfið þeim alltaf neikvæð skila-
boð og viðmót - þau eru stanslaust
skömmuð, bæði af fullorðnum og
öðram börnum. Þau era óvinsæl og
þá hættir þeim við að leita á aðrar
brautir. Þessir einstaklingar þurfa
á markvissri uppbyggingu sjálfs-
trausts að halda en hana fá þau með
hvatningu og hrósi. Fólk með
sterka sjálfsmynd er líklegra til
þess að standa á sínu og geta sagt
nei við fíkniefnum.“
Stefnt er að því að setja hluta
„Skrefs á undan“ inn á vefsíðu Geð-
hjálpar. Stórstúkan hyggur einnig
á námskeiðahald í byrjun næsta árs
þar sem foreldrar barna með geð-
raskanir fá fræðslu og stuðning. >