Skírnir - 01.01.1900, Blaðsíða 47
Msland.
4?
Rúsland.
Ráðherra utanríkisffiálanna, Muravieff greifi, varð bráðkvaddur 21.
Júní, og varð Lamsdorf greifi eftirmaður hanp. Frá aðförum Rúsa á Sín-
landi er sagt i Sínlandsþætti. — Fjárhagur landsins var þetta ár með
bezta móti og iðnaður mjög að aukast. — Rúsar hafa gert mikið til að
efla innflutning fólks til Síberiuhéraða þeirra er járnbrautin mikla liggur
nm; sumir landnámsmenn er þar höfðu numið land, undu þar eigi hag
sínum eða festu þar eigi yndi og fluttu stórhópum heim aftar til Rús-
lands. Aftur er með degi hverjum að verða fjölmennara um þessar slóðir
af einni tegund landnámsmanna, er enginn hafði boð eftir sent, on það
eru gulskinnaðir Sínverjar, er flykkjast inn í landið eins og )ýs í fetd.
Er það sumra manna spá, að meat landflæmi Síberíu muni fyllast af þeirri
óværð.
Síðasta hluta ársins lá keisarinn sjúkur suður í Lívadíu. Þó var
hann á góðum batavegi í árslokin.
Ítalía.
Úmhertó ítalakonungur var myrtur 29. Júlí af stjórnleysingja, er Qaetano
Bresci hét; bann átti heima í Ameríku, en var borinn og barnfæddur í
Ítalíu. Morðinginn var dæmdur í ævilangt einhýais-fangelsi. Victor
Emanúel sonur Úmbertós tók konungdóm eftir föður sinn og er inn III.
með því nafui.
Spánn.
Þar sleit þingi svo í ársbyrjun, að fjáriögum var ólokið, en samþykt
hafði þingið lög um endurskoðun á skattalöggjöfinni og lög um skatt á
titlum og heiðursmerkjum. — Á lítils háttar Karlungaóeyrðum bryddi á
árinu, en þær vóru bældar niður og margir i varðhald hneptir, er við þær
höfðu verið riðnir, þar á meðal allmargir prestar. — Tvær smáeyjar áttu
Spánverjar enn í Kyrrahafi, Cazayan og Sibutu; þær seldu þeir á árinu
Bandaríkjunum í Norður-Ameríku fyrir 100,000 dollara.
Danmörk.
í Aprílmánuði urðu þar ráðgjafaskifti enn einu sinni. Hörring for-
sætisráðherra lagði niður völdin, en Sehested tók við; Goos prófessor varð
dómsmálaráðgjafi og kallaður jafnframt ráðgjafi fyrir Island. Aðra ráð-
gjafa þykir ekki taka að nefna, enda stendur á litlu, hvert nafn þeir