Skírnir - 01.01.1900, Blaðsíða 38
38
Sínaveldia-þáttur.
eðlilega verlð fremgtir í flokki þeir Sínverjar, er krigtni höfðu tekið eða
komist í náin kynni við Norðurálfumenn. En hins vegar var öllum vel
umbunað, sem vel gengu fram í að ofsækja slíka menn og fltlendinga yflr
höfuð. Ég nefndi áðan þjððvinafélögin, sem vóru leynifélög. Meðlimir
þeirra hafa verið kallaðir Boxarar. Það var eðlilegt, að þeim veitti auð-
velt að telja gjálfum sér tró um, að það væri þjóðlegasta verk, að útrýma
öllum fltlendingum og kristnum Sínverjum. Stjórnin hafði látið þá fá
nægð vopna í hendur, og leið ekki á löngu áður þeir færi að nota þau
til að myrða kristna menn og fltlendinga, einkum kristniboða. í Apríl-
mánuði myrtu þeir fjölda af sínverskum mönnum kaþólskum ekki meira
en 80 mílur enekar frá Peking. En alt frá árshyrjun hafði brytt á inu
sama i fltjöðrum ríkisins. Tveim mánuðum áður höfðu sendiherrar flt-
lendra ríkja í Peking skorað á sínversku stjórnina að rjflfa þegar Boxara-
félögin og hegna harðlega allar ofsóknir gegn kristnum Sinverjnm og flt-
lendingum. Stjórnin gaf að vísu út tirskurð í þessa átt, en birti hann ekki
að sinni. Ofsóknirnar fóru nú vaxandi og færðust þær nær og nær Peking.
Menn vóru myrtir og eignir þeirra brendar eða eyddar á ýmsan hátt.
Sendiherrarnir hertu á stjórninni á ný (21. Maí). Stjórnin sendi nú lið
út á móti Boxurunum, en í laumi var liðinu bannað að skjóta á þá.
Óeirðirnar færðust enn nær Peking og fréttist nú (27. Maí), að Boxaralið
væri á leiðinni til Peking. Sendihorrar Norðurálfuríkjanna drógu nú að
sér varðlið sitt. Stjórnin reyndi að telja sendiherrana af því að kveðja
til sín varðlið og reyndi síðar að tálma því, að varðliðið kæmist leiðar
sinnar til Peking; en það tókst þó ekki. Liðið kom í borgina 31. Maí;
en ekki var það fjölment, einir 389 hermenn ank 18 foringja, og af því
vóru að eins 79 brezkir hermenn; ekki höfðu þeir nema einar 4 fallbyssur.
Stjórnin varð þð nfl mýkri í horn að taka, en morðin og spellvirkin
utan borgar fóru sívaxandi með degi hverjum. Þegar keisaraekkjan tók
völdin af keisaranum, hafði hún látið hann til nefnu 9 ára gamlan dreng
til eftirmanns síns. Þessi sveinn var sonur Tjflans prinz. Það fór nú
að verða bert, að stjórnin var í vitorði með Boxurunum og á sama bandi
og þeir, og Tjúan prinz kom nú berlega fram sem talsmaður þeirra.
Peking liggur ekki allnærri sjó, en Tientsín er borg, sem liggur
næst Peking niður við sjó, og þar lágu nokkur herskip útlendra þjóða;
en frá Tientsín liggur járnbraut upp til Peking; en 4. Júní rifu Sín-
verjar upp kafla af járnbrautinni, svo að hön varð ófær. Aðmírálunum
af útlendu berskipunnm við Taku, skamt frá Tientsín, fór nú ekki að