Fjölnir - 01.01.1845, Side 30

Fjölnir - 01.01.1845, Side 30
30 sem komið er undir tilfinningunni (de gustihus non est disputandum), og þegar teknar eru tvær bækur, önnur með rómversku letri, en önnur með gotnesku, f)á kann vera, aö gotneska letrið f)yki stundum fallegra fyrst í stað; en beri maður opt saman gotneskt letur og rómverskt, þá mun um síðir verða atkvæði manns, að rómverska letrið sje fegra; því það er einfaldara, enn gotneska letrið, og ekki nærri þvf eins hornótt; en það er óspiilt eðli manns, að Ijúka lofsoröi á um það, 8em er rjett og þó einfalt (quae sunt recta et simplicia laudantur). 3. Gotneska Ietrið reynir meira á augun; það gera bornin, krókarnir og angarnir, sem á því og út úr því eru; því það gefur að skilja, að augað hefur eptir því meira erfiði, sein letrið er brotnara, þar eð það verður að fylgja hverjum drætti, og þar sem læknar segja, að þeim, sem málfræði iðka, sje liættast við augnveiki, þá mun það ekki koma til af því, að þeir lesi meira, enn þeir, sem stunda önnur vísindi, heldur af hinu, að þeir fást opt við ýmislegri og brotnari leturtegundir. Afleið- ingarnar af slíkri áreynslu eru að sönnu ekki vanar að sýna sig í bráð, en koina þó síðar fram, jafnvel þótt sjónin haíi verið góð í upphafi; því dropinn liolar harðan stein. 4. Latínuletrið tíðkast nú í mestöllum þeim hluta heimsius, er mestri inenntun hefur náð. jþessar tungur í Norðurálfu eru ritaðar með latfnustöfum: a) enska, sein tíðkuð er hjer um bii af 17 milíónum 1 á Eng- landi, Irlandi og Skotlandi; b) hinar keltnesku mállýzk- ur á Englandi, Skotlandi, Irlandi og Frakklandi, tíðk- aðar af eitlhvað 12 milíónum2; c) þau mál af þjóð- versku kyni, sem töluð eru í Belgíu og Niðurlöndum af Valónum, Flæmingjum, Frísum og Hollendingum ; en ‘) og eitthvað 13,000 Gjðinga. Berghaus i Altgemeine Lan- der- und Völkerkunde, á 319. bls. í V. bd. (prent. 1843). 2) Berghaus í sama bandi sömu bókar á 77. og 318. bls.

x

Fjölnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjölnir
https://timarit.is/publication/61

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.