Fjölnir - 01.01.1845, Side 42

Fjölnir - 01.01.1845, Side 42
42 stólum hollan og ásjálegan flsk, sem er í mestu metura í öllum katólskum löndum. 3>að er nú auövitað, aö fyrst og fremst er heimt- andi, að íiskiirinn sje góð fæða, því annars kostar er liann óhæfur til sö!u; en eigi hann jafnframt að vera álitlegur kaupeyrir og fullkominn í sinni tegund , þarf nokkuð meira fyrir honum að hafa, enn raunar er nauð- synlegt einungis til þess, hann geti oröið hollur og smekkgóður, jm' þá þarf einnig ab kosta kapps um, hann geti orðið sem fallegastur útlits og hentugastur í öllum vöfum til flutnings og hleðslu í skipunum, og jafnfraint hæfir þá að hafa hliðsjón af því, sem inönnum er geð- felldast á þeim stöðum , þar sem búast má við hann gangi bezt út, eða ætlað er að hafa hann á boöstólum. Nú til þess fiskurinn geti fengið þessa almennu kosti, er það aðal-reglan, sem mest ríður á, og mjer er óhætt að segja, sem aldrei skeikar, aö salta fiskinn eða verka hann með hverju móti sem er, meðan hann er nýr, og því fyr sem þessu verður við komið, þess hægra fellur síðan á allan liátt að gjöra úr Iionuin fullkomna vöru. En j)að lítur svo út, sem Islendingar sjeu ófúsir á að kannast við, hversu mikið undir þessari reglu er komið, þótt jafnan beri að hafa hana fyrir auguin. Aðferð þeirra er röng einkum í þessum greinum : 1. X>eir hirða ekki um það, sem vera ber, að ná úr fiskinum blóði og slori , undir eins og hann kemur upp úr sjónum, jafnvel þ ítt þetta tvennt sje allra hluta meinlegast fyrir verkun Iians eptir á; það fer þó að likindum , að eins og þessa er nákvæmlega gæít, þegar slátrað er ferfættum dýrnm, muni það einuig vera nokk- urs áríðandi við fisk, sem gjöra á að góðri og útgengi- Jegri vöru. Sje höfuðið skorið af fiskinum lifandi, rennur vel úr honum blóðið; en sje hann ekki afhöfð- aður fyr, enn hanu er búinn að liggja dauður nokkra sluud, kemur lítið sem ekkert blóð úr honum. Sje

x

Fjölnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjölnir
https://timarit.is/publication/61

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.