Fjölnir - 01.01.1845, Side 43

Fjölnir - 01.01.1845, Side 43
43 fiskurinn slægður undir eins, fær ekki sloriö tíma tii aö spilla sraekk hans og gæðum, en liggi hann óslægður nokkra stund, fer aldrei hjá fm', að hann dragi dám af óhreinindum innýfianna, að jeg ekki tali um, þegar garn- irnar meirna, svo þær detta sundur, þegar fiskurinn er haudleikinn, og óhreinindin ganga út í fiskinn, fiví þegar svo er komiö, getur fiskurinn aldrei orðið góður matur, og hættir mjög við að skemmast, sje liann geymdur. jþessvegna ríður mikið á, að afhöfða og slægja fiskimi jafn-óðum og hann kemur uppúrsjónum. Englendingar, Hollendingar, Belgir og Frakkar, sem fiska viö Ný- fundnaland, kringurn Island og Færeyar og í Norð- ursjónum (í Englandshafi og Jótlandshafi) og verka úr fiorskinum tunnufisk (Kabliau) , gæta fiessa svo ná- kvæmlega, og eru svo ieiknir í f)ví , að þeir afhöfða og slægja fiskinn meðan færið er aptur að renna til botns. Nú eru Islendingar eins skjótir og lagvirknir, eins og hverjir aðrir, sem jeg hef sjeð til (og jeg hef þó sjeð til margra), í því að gera aö fiski, og þeir ættu því hægt með að gjöra eins, svo verkunin gæti eptir á bæði orðið þeiin ljettari, og tekizt miklu betur, enn ella. Á Hjaltlandi flytja menn aldrei til lands hvorki þorskhöfuð nje slóg1, en gjöra allan fisk til jafn óðum, og hann kemur innan- horðs, og þessvegna er saltfiskur þeirra fallegastur af öllum þeim fiski, sem seldur er og keyptur um víða veröld. J>að er hægt á íslandi að sannfærast um , að þetta sje satt, ef menn vildu taka eptir því, sem al- reynt er og dagsanna, að sá fiskur, sein veiddur er á þiljuskipunum og fluttur í land, til að verka úr honum saítfisk, verður miklu fallegri, enn sá íiskur, sem veiðist á íslenzka báta; og kemur það ekki til af neinit öðru, enn því, að sá, sem veiddur er á þiljuskipunum, er undir- ‘J fbað er ekki svo að slcilja, sem jeg vilji ráðleggja Islend- inguin að nota sjer ekki Iiöfuð og lifur; fní liœgt er að gjiira það eins fyrir þvi, þo'tt þeir slœgi á sjónum.

x

Fjölnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjölnir
https://timarit.is/publication/61

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.