Fréttir frá Íslandi - 01.01.1883, Síða 42
44
MANNALÁT OG FLEIRA.
bæjarklaustur 1862, og KirkjubæjarMaustur 1877, og fór þang-
að vorið eftir. Prófastur var hann í Vestur-Skaftafellssýslu frá
1863 til dauðadags. Dauða hans bar svo að, að hann var á
heimleið frá að skíra barn, og fór ofan um ís í Skaftá; þó
náðist hann upp úr vatninu með lífsmarki, en dó rétt á eftir.
Einn skólapiltur, Markús Kristjánsson, lézt 19. dag
marzmánaðar, 18 vetra gamall, í fyrsta bekk, mjög efnilegur.
Tveir stúdentar létust og á þessu ári. porfinnur Jónatans-
son, fyrrum kaupmaður í Flensborg við Hafnarf|örð 14. marz-
mánaðar rúmlega sextugur, og Páll Sigfússon, er druknaði af
skemtisiglingu á Bíldudal 8. dag júlímánaðar.
Jón Steffenssen kaupmaður 1 Reykjavík druknaði í Kaup-
mannahöfn 23. dag febrúarmánaðar. Hann var rúmlega fimtugur
að aldri. ÍT. P. Weywadt, fyrrum verzlunarstjóri á Djúpavogi
og kammerassessor, varð bráðkvaddur á Teigakoti við Djúpavog
13. dag águstmánaðar rúmlega sjötugur. Friðrik Davíðsson
verzlunarstjóri á Blönduósi dó 18. nóvember 23 ára. Snorri
Pálsson, verzlunarstjóri á Sigluíirði, andaðist 13. dag febrúar-
mánaðar. Hann var fæddur 4. febrúar 1840, fór þegar á unga
aldri að stunda verzlun, og varð verzlunarstjóri á Siglufirði 1864 og
til dauðadags. Hann var einn hinn mesti framkvæmdamaður sem
var norðanlands, sannur Islendingur og framfaramaður; 1872
stofnaði hann sparisjóð á Siglufirði, og 1880 sjóð til
styrktar ekkjum druknaðra manna, og kom á að mestu
niðursuðu á kjöti, sem er þar mikil. Hann var og öflugur
hvatamaður og félagsmaður í öllum fyrirtækjum er til framfara
horfðu, var fjölhæfur mentamaður, og studdi fræðslu og mentun
hvar sem hann gat. Hann var þingmaður Eyfirðinga um 1
kjörtíma löggjafarþinga, enn vildi eigi lengur. Teitur Finnboga-
son, dýralæknir og járnsmiður í Reykjavík, dó 24. júlí, nær 80
ára (f. 24. ágúst 1803). Hann var nafnkunnur dugnaðar- og
framkvæmdamaður á yngri árum.
Af bændum og öðrum, er dáið hafa, viljum vér að eins geta
þessara; Vigfús Jónsson bóndi á Hliðsnesi dó 15. janúar 75 ára.
Jón Jónsson prests á Mælifelli dó 4. apríl 27 ára, mannvænlegasti
maður, úr afleiðingum mislinganna. Jón Loptsson, skipsstjóri