Fréttir frá Íslandi - 01.01.1885, Síða 1

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1885, Síða 1
I. Alþingi. þingvallafundur og undirbúningsfundir undir alþingi. — þingstörf, ný lög og þingsályktanir. Á þessu ári kom almennt fram hjá landsmönnum allmikill vaksandi áhugi til endurhóta á ýmsum stórmálum, svo sem fyrst og fremst á stjórnarskipun landsins. Allmargir höfðu frá upphafi engan veginn verið ánægðir með pá stjórnarskrá, er Kristján konungur IX. gaf íslandi 5. jan. 1874, og litu svo á, að hún að eins gæti dugað til bráðabirgða; pví var pað, að al- pingi hafði tekið endurskoðun hennar til meðferðar hæði 1881 og 1883, án pess pó að ljúka við hana; töldu pví flestir sjálf- sagt, að ping pað, er saman kæmi 1885, léti hana ekki lengur undan draga. Til pess að veita pessari von manna meiri tryggingu og fyllra framfylgi, sendi alpingismaður Jón Sigurðs- son á Gautlöndum áskorun til pjóðkjörinna pingmanna pess efnis, að peir gengjust fyrir, að valdir yrðu að minnsta kosti 2 fulltrúar fyrir hvert kjördæmi til að mæta á almennum fnndi að pingvelli við Öksará 27. júní og ræða par og undirbúa sér- staklega endurskoðun stjórnarskrárinnar, og svo fleiri nauðsynja- og áhugamál, ef tími væri til. pessari áskorun var almennt vel tekið og fóru kosningar á pessum fulltrúum fram um vorið fyrir öll kjördæmi landsins, nema Yestmannaeyjar og Eyja- fjarðarsýslu; par fórst pað fyrir sökum áhugaleysis eða andróð- urs einstakra manna; pó sendu Akureyrarbúar 2 fulltrúa frá sér, í erindum bindindismálsins sérstaklega. «J>jóðlið |>ingey- inga» sendi og 2 menn. Alls voru 36 menn kosnir til fundar- ins. Af peim mættu 32, pegar á fundinn kom, sem haldinn var á ákveðnum tíma í slæmu veðri og við illa aðbúð, sem vonlegt var. Auk peirra vóru par komnir allmargir alpingis- menn og ýmsir aðrir sjálfboðar, alls á 2. hundrað að tölu. 1*

x

Fréttir frá Íslandi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.