Fréttir frá Íslandi - 01.01.1885, Blaðsíða 41
HEILSUFAR OG LÁT HELDRA FÓLKS.
43
útskrifaður úr Reykjavíkurskóla 1849 og prestaskóla 1851 með
1. einkunn; var svo um 4 ár skrifari hjá Helga hiskup Thor-
dersen; prófastur var hann fleirum sinnum í Húnavatnssýslu,
síðast frá 1881. Hann var merkisprestur, vel látinn og mikils
metinn. Hann létst 13. júní.
Lárus Ólafur porláksson (síðast prests að Undirfelli
Stefánssonar), settur prófastur í Vesturskaftafellsprófastsdæmi
og prestur f Mýrdalspingum, er hann vígðist til 1882; fæddur
18. febr. 1856 og útskrifaðist 1882 af prestaskólanum með 2.
einkunn; létst 28. apríl úr brjóstveiki. Hann var efnilegur
prestur og Ijúfmenni.
Olafur Einarsson (Jónssonar kaupmanns) Johnsen, upp-
gjafaprestur, riddari af dbr., síðast prestur á Stað á Reykjanesi
frá 1840—1884; fæddur 8. jan. 1809 í Mýrarhúsum á Sel-
tjarnarnesi; útskrifaðist úr heimaskóla hjá Arna stiptprófasti
Helgasyni 1831 og frá Kaupmannahafnarháskóla 1837, og vígð-
ist sama ár að Breiðabólsstað á Skógarströnd, er hann hélt til
1840; prófastur var hann í Barðastrandarsýslu frá 1861—1878.
Hann var annar pjóðfundarmaður Barðstrendinga árið 1851.
Hann andaðist 17. apríl. Hann var einn af helstu prestum
pessa lands, mikill trúmaður og góður kennimaður, duglegur em-
bættismaður, og héraðs-höfðingi.
Sveinhjörn Guðmundsson (hreppstjóra Torfasonar í Bæ í
Borgarfirði), fæddur í Bæ 18. apríl 1818; útskrifaðist úr Bessa-
staðaskóla 1843; vígðist til Keldnapinga (13. maí) 1847, fékk
Kjalarnessping 1858, Kross í Laudeyjum 1860, og Holt undir
Eyjafjöllum (26. maí) 1874, og parlétst hann 15. maí. Hann pótti
góður kennimaður og embættismaður.
Aðrir embættismenn önduðust eigi hér á landi petta ár,
enn hér má nefna 2 íslenska menn, er önduðust í embættum er-
lendis; peir vóru:
Jón Constant Finsen, dr. med., sonur Olafs yfirdómara Hann-
essonar biskups Finnssonar; útskrifaðist úr Reykjavíkurskóla
1848, tók embættispróf við Kaupmannahafnarháskóla 1855 og
varð pá héraðslæknir á Akureyri til 1867, er hann fluttist til
Danmerkur og varð héraðslæknir í örsted á Jótlandi og síðan