Fréttir frá Íslandi - 01.01.1885, Blaðsíða 10
12
ALþlNGI.
1. cAlþingi skorar á ráðgjafa íslands, að sjá svo fyrir, að
hin íslenska stjórnardeild í Kaupmannahöfn sé skipuð þeim
mönnum, er kunna íslenska tungu til hlítar, og sem heri gott
skyn á pau málefni landsins, er stjórnardeildin heíir til með-
ferðar». Orsakirnar til þessarar þingsályktunar var embætta-
skipunin (sjá síðar), er varð í stjórnardeildinni við fráfall for-
stjóra hennar, Oddgeirs Stephensens, sem gekk þvert ofan 1
venju þá, er fylgt hafði verið til þessa í embættaskipuninni.
2. Askorun frá neðri deild til ráðgjafans um «að veita eigi
amtmannaemhættin fyrst um sinn,» enn jafnframt kom
3. Askorun frá neðri deild til landstjórnarinnar, um «að
fela eigi dómendum landsyíirréttarins neina umboðslega sýslan
eða emhætti á hendur nema brýna nauðsyn heri til» (sjá þó
síðar sýslanaskipunina).
4. Áskorun frá báðum deildum til landsstjórnarinnar, að
hún láti þá, sem kaupa vilja þilskip til fiskiveiða, sitja fyrir
öðrum að fá lán úr landssjóði til þess -með venjulegum kjörum.
5. Áskorun frá neðri deild til landstjórnarinnar, «að hlut-
ast til um, að verðlagsskýrslur verði framvegis samdar af hrepp-
stjóra, presti og hreppsnefndaroddvita í sameiningu».
6. «Alþingi skorar á ráðherra íslands, að hann geri það er
í hans valdi stendur, til þess að haganlegur samningur komist
sem fyrst á við Spán um toll af þar innfluttum íslenskum
saltfiski».
7. «Alþingi skorar á ráðherra ísland, að hlutast til um,
að leyft verði konum: a, að ganga undir burtfararpróf við hinn
lærða skóla; b, að njóta kennslu og taka burtfararpróf við æðri
menntunarstofnanir landsins*.
8. «Alþingi skorar á landshöfðingja að annast um, að öll
fornbréf, máldagabækur og vísitatíubækur fyrri biskupa, sem
snerta réttindi opinberra eigna eða stofnana eða sögu þeirra, og
nú eru geymd í skjalasöfnum embættismanna, einkum í skjala-
safni biskupsdæmisins og við kirkjur víðsvegar nm land, verði
framvegis geymd í landsbókasafninu».
Alls vóru bornar upp 23 þingsályktunaruppástungur.
Fyrirspurnir komu 3 og vóru allar leyfðar. Yið þá fyrir-
spurn, hvað landsstjórnin hefði gert til að firra landsjóð pen-
ingatjóni við embættisfærslu C. Fensmarks, samþykkti neðri