Fréttir frá Íslandi - 01.01.1885, Side 36

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1885, Side 36
38 BJARGRÆÐISVEGIR mislitri ull 40—45 au., af æðardún 18 kr„ af söltuðum laksi 40—65 au. Eins og áður er getið, keyptu Skotar og Englendingar hér margt fé, einkum austanlands og norðan; enn svo keypti og Coghill hér um allt iand hross fyrir Slimon, eins og vant er, og gaf líkt fyrir pau og áður, enn tapaði einnig á peim í Eng- landi. — í sambandi hér við skal pess getið, að petta sumar (22. ágúst) sendu 27 pingmenn peim Slimon og Coghill ávarp í viðurkenningarskyni «fyrir framtakssemi peirra og dugnað í að leita markaðar hingað og koma pannig á viðskiptum milli íslands og Skotlands*, og fyrir pau hlunnindi, er landinu hafa orðið að pessum viðskiptum í pau 15 ár, er pau hafa nú staðið. Skipströnd urðu ekki mörg petta ár. Norskt timburskip strandaði snemma í júní á Hvammsfirði, enn mannbjörg varð, og 15. sept. strandaði norskt vöruskip við ísafjarðardjúp á leið- inni frá ísafirði til Flateyrar, hlaðið kolum og fleiri vörum, og nokkrum fleiri hlekktist meira og minna á. Tvær franskar fiskiskútur strönduðu 30. apríl, og enn pá einhverjar fieiri, og ensk fiskiskúta strandaði við Sléttu um haustið, fisklaus; hún var seld með öllu fyrir 190 kr. J>á er eptir að minnast á eitt atriði, er miðar til blómg- unar á efnahag og velmegun pjóðarinnar, og pað eru hindiad- isfélögin. í Er. f. á. bls. 14 er drepið á Goodtemplarsbind- indið, er komst á á Akureyri. J>etta félag hefir útbreiðst mjög petta ár; pannig vóru stofnaðar allfjölmennar deildir úr pví á Isafirði og víðar um vesturland, og af Akureyri var sendur maður, Björn Pálsson, frá félaginu par suður til Reykjavíkur með Júngvallafundarmönnum, og stofnaði hann deild í Reykjavík; fékk petta mál par svo góðan byr, að par vóru komnar á fót 3 deildir um árslokin, og vóru 1 peim alls hátt á 3. hundrað manna af öllum stéttum; paðan breiddist fé- lagið út, fyrst til Hafnarfjarðar og síðan suður um öll suður- nes o. v., og auk vínbindindisins komst og jafnframt á sum- staðar (í Hafnarfirði) tóbaksbindindi, og jafnvel bindindi með fleiri munaðarvörur. í Árnessýslu myndaðist og bindindisfélag all-

x

Fréttir frá Íslandi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.