Fréttir frá Íslandi - 01.01.1885, Qupperneq 37
BJARGRÆÐISVEGIR.
39
víðtækt, laust við þessa bindindisreglu, og nefndi pað sig
Bræðrafélag Arnessýslu; svo var og í Mýras/slu o. v. fannig
hefir á pessu ári komist bindindi á víða um vesturland og suð-
urland, svo að nú má heita, að bindindisöld sé runnin upp jfir
mestallt landið, og nú er full ástæða til að vona, að hér verði
framhald á, enda gefur einkum fyrirkomulag Good-Templars-
bindindisins góðar vonir í pví efni, allra helst sökum hinna tíðu
funda og samkvæma, er pað hefir í för með sér, og að pví
leyti virðist, að pað ætti að geta komist á og prifist í hverjum
kaupstað og péttbyggðum sjóplássum; petta sýndi pað t. d. 1
Reykjavík, par sem pað mjög opt stofnaði til söngskemmtana,
lét halda fyrirlestra og lesa upp pýðingar af útlendum skemmti-
sögum fyrir félagsmenn, og bauð jafnvel allopt öðrum bæjarbú-
um til áheyrnar, enda mátti heita, að pað væru pær einu al-
mennar opinberar skemmtanir í Reykjavík, sem pað stóð fyrir,
fyrir utan gleðileiki pá, sem bindindisfélag skólapilta hélt milli
jóla og nýárs. Áhrif pessara bindindishreyfinga komu fram í
ályktununi pingvallafundar og komust jafnvel inn á alping í
frumvarpi um takmörkun á vínsölu, enn fékk par samt óblíðar
viðtökur hjá sumum pinggörpum neðri deildar, er fengu pví í
hel komið.
VII. Slysfarir og skaðar.
Snjóflóbið á Seyðisfirði og manntjón. — Eldsroðar.
Slysfarir og skaðar urðu talsverðir og sumir á dæmalausan
hátt, eins og hið voðalega snjóflóð á Seyðisfjarðaröldu 18. febr.
J>að kom kl. 8 um morguninn úr fjalli par rétt fyrir ofan
kaupstaðinn; vóru menn ekki almennt risnir úr rekkju; dimmdi
svo yfir, pegar snjóflóðið féll, að sýnilegur munur varð á birtu
í kaupstaðnum; sópaði flóðið 15 íveruhúsum að miklu leyti út
á sjó eða skildi pau eptir mölbrotin í fjörunni auk fjölda út-
hýsa; urðu eitthvað um 80 menn fyrir flóðinu og létust par
af 24, enn margir limlestust að auki; var hryllilegt að koma
par að: úr öllum áttum heyrðist óp og vein, og menn komu