Fréttir frá Íslandi - 01.01.1890, Blaðsíða 11
13
Árferð,
sífelldum hlýindum af suðri, nema ef telja skyldi dag og dag
í bili, er frost gerði og snjó á suðurlandi og yesturlandi eink-
um. Frost urðu á þessum vetri mest 16® R. og stóðu 2 eða 3
daga. Var vorið eitt hið bezta og svo sýndist sem grasvöxtur
mundi verða mikill; á austurlandi var t. d. í miðjum maí (3
vikur af sumri) kominn svo mikill gróður sem opt 10 vikur af
sumri og í Rvík var tún eitt (Austurvöllur) slegið í lok þessa
mánaðar; en í byrjun júnímán. gerði íhlaup ákaft um land allt
með fannkomu og harðviðri af norðri: gerði hnjesnjó jafnvel
niður við sjó í lágsveitum á norðurlandi og austurlandi og fje
fennti á afrjettum; en með pví að fardagahret petta stóð að
eins fáa daga (frá 1—7. júní) og þegar á eptir brá til hlýinda
og hita, pá varð pað eigi að svo miklu tjóni sem við mátti
búast; pó mun pað hafa kippt að mun úr grasvexti, sem áður
var í bezta horfi. Úr pví kom þurviðri og blíðviðri, er hjelzt
út júlímánuð; en með ágústm. brá aptur til votviðra og rign-
inga, er hjeldust út allan heyskapartímann með uppskotum og
perridögum við og við; ágerðist úrkoman pví meir sem á sum-
arið leið, einkum sunnan lands; með nóvemberm. tók veturinn
að ganga í garð með hríðum og bleytukaföldum annað veifið,
en tíðarfarið var frámunalega milt og frost mjög lítil, einkum
á norðurlandi og austurlandi, enda sást par sumstaðar nýút-
sprunginn grávíðir um jólaleytið.
1 febrúarm. varð vart við hafíshroða fyrir Horni og
skömmu síðar (6. marz) rak nokkurt hrafl af honum inn á
ísafjörð, en hann hvarf þaðan aptur áður langt um liði, aust-
ur með landi, enda varð hann hvergi landfastur úr pví, en
fram í lok ágústmánaðar voru pó við og við ísspengur á reki
fyrir norðan land, eigi meir en 3—6 mílur undan yztu ann-
nesjum.
tíins og áður er ávikið kom kyrkingur í allan grasvöxt,
er fardagahretið dundi yfir, og varð grasspretta varla meiri en
í meðallagi á túnum og í löku meðallagi á engjum víða, eink-
um barðvelli. Sláttur byrjaði víða nokkuð í 11. viku sumars
og pó miklu síðar sumstaðar og bægði kvefsóttin mönnum eink-
um frá verkum. 1 Rvík var farið að slá tún úr pví 5 vikur
voru af. Varð nýting góð útallan júlímáDuð, en síður úr því,