Fréttir frá Íslandi - 01.01.1890, Qupperneq 12
hröktust hey víða eptir höfuðdag af of xniklum votviðrum og
sumstaðar, einkum sunnan lands, urðu mikil hey úti um haust-
ið og náðust aldrei. Mátti pó heita, að heyskapur yrði í með-
allagi víðast hvar og á norðurlandi og austurlandi varð hey-
skapur í góðu meðallagi. Garðrækt heppnaðist í góðu með-
allagi.
Fje gekk vel fram um vorið og urðu skepnuhöld góð;
gekk fje um vorið kaupum og sölum hærra verði, en menn
vita nokkurn tíma dæmi til áður, einkum á norðurlandi: par
varalgengt verð á lembdum ám framgengnum 15—20 kr. og
jafnvel par yfir. En um haustið var fjallfje vænt, enda í háu
verði, en fjárheimtur urðu um land allt með versta móti. J>eg-
ar á leið haustið, hrakaðist fje mjög á suðurlandi sökum rign-
inganna og par (í Árness- og Rangárvallasýslum) gerði bráða-
pest bændum víða stórmikinn skaða.
Landskjálpta varð vart á nokkrum stöðum 2. og 7. marz,
4., 26. og 28. maí, 28. okt. og 22. nóv., allsnarpir kippir sum-
ir hverjir og hlauzt pó hvergi tjón af, svo að kunnugt sje
orðið.
Jökulhlaup. Um og fyrir áramótin varð á ýmsum stöð-
um í Norður Múlasýslu vart við umbrot nokkur norðan í Yatna-
jökli og um sama leyti tóku ár pær, er paðan falla, Jökulsá
á Dal og Jökulsá í Fljótsdal, að verða jökullitaðar og bera
með sjer meiri leir en venja er til um pað leyti, og er á leið
veturinn tóku að heyrast dunur og dynkir inn til jökulsins
og í 14. viku sumais gerði jakaferð mikla í Jökulsá á Dal.
Þá er að var gáð, sást að jökullinn hafði sprungið fram á 6
mílna löngu svæði og enn austar á 1 mílu svæði og jökulýt-
urnar hrapað niður á láglendið fyrir neðan jökulinn; en jökul-
röndin að framan var á að gizka 30 faðma há. |>að eru nær
80 ár síðan jökullinn hefir hlaupið á pessu svæði (ísaf.).
Atvinnnvegir.
Til eflingar landbúnaði voru petta árið stofnuð nokkur
fjelög í ýmsum Bveitum og búnaðarfjelög pau, sem áður voru