Fréttir frá Íslandi - 01.01.1890, Blaðsíða 27
Heilsufar og mannalát. 29
Kálfatjarnar 1851, fjekk Ríp 1857 og Kvenuabrekku með Mið-
dalaþingum 1868. Hann var fulltrúi Reykvíkinga á pjóðfund-
inum 1851 og alpingismaður Dalamanna síðan 1883. Kona
hans var Steinunn Guðmundsdóttir verzlunarmanns, Pjeturs-
sonar, og Ragnheiðar systur Helga biskups. Hann var maður
ör í lund og ljet allmikið til sín taka og fór snemma að hafa
hug á allsherjarmálum og var jafnan frjálslyndur. Honum var
einkar Ijett um mál og einarður vel; hann gerðist forkólfur
ýmissa framfarafyrirtækja heima í hjeraði og lagði töluverða
stund á lækningar, enda hafði hann fengið leyfi til pess. Hann
gaf út 1850—51 Dndirbúningsblað undir pjóðfundinn með
Halldóri Friðrikssyni og búnaðarritið Bónda 1851 og ritaði par
að auki smágreinir margar í blöðunum og nokkra aðra bæk-
linga (um lækningar, búnað o. fl.).
Stefán Árnason, Halldórssonar, uppgjafaprestur í Bagra-
skógi, andaðist 17. júní, 83 ára gamall (f. 15. júlí 1807).
Lærði í heimaskóla hjá síra Hálfdáni Einarssyni og síra Búa
Jónssyni og útskrifaðist á Bessastöðum 1838. Hann var vígð-
ur aðstoðarprestur föður síns að Tjörn í Svarfaðardal 1840,
Ijekk Fell í Sljettuhlíð 1847, Kvíabekk 1860, Háls í Fnjóska-
dal 1873, en lausn frá prestskap 1883. Hann var búhöldur
góður og fróður um margt, tvíkvæntur og eru mörg börn hans
og stjúpbörn á lífi.
íinnbogi Rútur Magnússon, prestur í Húsavík, andaðist
28. júní. Hann var fæddur á Brekku í ísafjarðarsýslu 23.
febr. 1858, útskrifaðist af latínuskólanum 1880 og af presta-
skólanum 1882, var s. á. vígður til Kirkjubólspinga í ísafjarð-
arsýslu, fjekk Otrardal í Barðastrandarsýslu 1884 og Húsavík
1886. Kona hans var Jónína Markúsdóttir, kaupmanns á
Geirseyri, Snæbjörnssonar. Hann var maður vinsæll, gleði-
maður mikill og góður drengur.
Jön Sveinsson, landlæknis Pálssonar, og Jmrunnar Bjarna-
dóttur, uppgjafaprestur á Nautabúi 1 Skagafirði, andaðist 8.
ágústm. (f. 23. okt. 1820 eða að sjálfs hans sögn 20. nóv.
1815). Útskrifaðist úr Bessastaðaskóla 1839, skipaður prestur
til Grímseyjar 1841, vígðist pangað 1842, og fór þaðan aptur
1843, fjekk Hvanneyri 1844 og Mælifell 1866 og pjónaði pví