Fréttir frá Íslandi - 01.01.1890, Page 33
35
Heilsufar og mannalát.
Hún var dóttir Jóhannesar bónda Jónssonar og þorgerðar
Kristjánsdóttur á Hranastöðum í Eyjafirði, »vönduð kona og
vel að sjer«.
Kristín Ólafsdóttir, er fyrst giptist síra Stefáni Stefáns-
syni að Felli í Mýrdal (d. 1847) og síðar Ófeigi hreppstjóra
Vigfússyni að Fjalli á Skeiðum (d. 1858), andaðist að Arnar-
hæli í Grímsnesi 18. nóv. (f. að Brekkum í Mýrdal 1800).
Foreldrar hennar voru síra Ólafur Árnason, bróðir Páls Árna-
sonar, orðbókahöfundar, og Valgerður þórðardóttir.
Kristjana Jónassen, ekkja Jónasarkaupmanns Jónassens í
Rvík, andaðist 22. nóv. (f. 6. maí 1828), dóttir Jóhannesar
Zoega og alsystir Geirs kaupm. Zoéga og peirra systkina, mesta
sómakona og kvenskörungur.
Sigríður Ingimundardóttir, ekkja síra Ólafs Pálssonar í
Otrardal, andaðist í Saurbæ á Rauðasandi 17. des., 83 ára,
Frá íslendingum í Vesturheinii.
Fólksflutningar hjeðan af landi urðu stórum mun ininni
nú en mörg ár undanfarin. Eptir pví sem útflutningsstjórar
hafa frá skýrt, munu tæp 200 manns hafa farið vestur til pess
að setjast par að. Meðal peirra, er fóru, voru Hermann stúd-
ent Hjálmarsson frá Húsavík með konu og börnum, alpingis-
maður Jón ólafsson og Gestur Pálsson. Fór Jón Ólafsson
vestur að undirlagi útgefenda Lögbergs og tók par pegar við
ritstjórn pess blaðs með Einari Hjörleifssyni, en Gestur Páls-
son var kvaddur til pess að takast á hendur ritstjórn Heims-
kringlu með Eggert Jóhannssyni. Aptur á móti komu hingað
alfarnir paðan uin 20 manns; einn meðal peirra var Gísli Jónas-
son, bóndi á Svínárnesi í Höfðahverfi; hafði hann farið pangað
í peim vændum að setjast par að, en leizt ekki á blikuna, er
pangað var komið, og hvarf pví heim aptur; hann sagði að visu
kost og löst á landinu, en löndum par vestra bar hann eigi
svo vel söguna sem peir póttust eiga skilið og kvað hag peirra
3*