Fréttir frá Íslandi - 01.01.1890, Side 34
86 Frá íslendingum í Vesturheimi.
að öllu samtöldu fremur bágborinn og latti menn mjög að fara
þangað; ágrip af skýrslu hans var prentað í ísafold, en blöðin
vestra, einkum Lögberg, báru það allt til baka, er hann hafði
sagt, og lofuðu vistina þar í landi á hvert reipi svo sem þeim
er títt.
Tíðarfarið varð bændum víða hvar næsta hvimleitt, kuldar
miklir og þurrviðri fram eptir öllu vori, batnaði þó vel og
sýndist svo sem uppskera mundi verða í góðu lagi og gras-
spretta mikil, en er á leið sumarið, komu óþerrar svo miklir
með frostum, að hveiti skemmdist víða, einkum í Dakota, og
og varð því uppskera langt um rýrari og sumstaðar því nær
engin og afurðir allar ljelegri en við mátti búast í fyrstu. Að
öðru leyti sýnist svo sem hagur landa þar í mörgum byggðar-
lögum sje í góðu lagi, en löndin eru næsta misjöfn að gæðum
og misfelli eru þar eigi ótíðari eða minni en annars staðar; en
svo er að sjá sem landar þar samir sjeu ærið lausir við jarðir
sínar, dveljast eigi nema fá ár í suma stað og fara iðulega bú-
ferlum úr einni sveit í aðra.
Tveir íslendingar náðu kosningu á fylkisþingið í Dakota,
Skapti Brynjólfsson, úr Húnavatnssýslu, og Árni porláksson,
frá Fornhaga; eru þeir fyrstir íslendinga þar í landi, er til
þess vegs hafa komizt; situr sá, er fyr var nefndur, í efri mál-
stofunni, en hinn í hinni neðri.
Hið 6. ársþing hins evangeliska, lúterska kirkjufjelags var
haldið í Lundi við íslendingafljót í Nýja-íslandi 27. júní—3. júlí.
Að eins einn söfnuður, Fljótshlíðarsöfnuður í Nýja-íslandi, hafð i
gengið í kirkjufjelagið síðan á síðasta ársþingi og engir nýir
söfnuðir myndazt þar vestra á þessu ári. En í söfnuðum kirkju-
fjelagsins voru þá alls 5224'manns og er þar við er hætt ýms-
um öðrum söfnuðum, sem ekki eru í kirkjufjelaginu, má óhætt
telja, að 6000 íslendingar þar í landi hafi 1890 notið reglu-
legrar prestþjónustu af íslenzkum prestum og í íslenzkum safn-
aðafjelögum; verður það þá nær helmingnr íslendinga þar vestra,
sem annaðhvort hafa snúizt til annarar trúar eða engrarprest-
þjónustu notið. Nefnd sú, sem sett hafði verið til að íhuga
skólamálið, lagði það til að reynt væri að koma á lítilsháttar
kenpslu í bráðina, ráðast að svo komnu eigi í meiri kostnað,