Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1980, Page 124

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1980, Page 124
128 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS Stóraborg Stóraborg stóð á sandhól, sem sjórinn eyðir nú smátt og smátt, en bærinn var fluttur lengra upp frá sjó árið 1834. Hefur sjórinn m.a. tekið öll efstu mannvirkin á hólnum. Fjöldi muna, sem hefur verið safnað á staðnum yfir ár- in, er nú á byggðasafninu í Skógum. Elsta heimild um Stóruborg er frá um 1200, er prest vantaði til að þjóna hálfkirkjunni þar, en bærinn mun þó eldri. Kirkjan var lögð af um 1700 og fóru undirstöður hennar í sjóinn fyrir nokkr- um árum. Sumarið 1978 hóf Þjóðminjasafnið uppgröft hér og var kirkjugarð- urinn fyrst grafinn upp. Er rannsókn enn í gangi. Árið 1979 voru tekin sýni úr uppgreftinum til að kanna varðveislu plöntu- og skordýraleifa. Reyndist hún góð, og er Stóraborg nú hluti af stærra rannsóknarverkefni, sem felur m.a. í sér rannsókn svipaðra sýna allt frá Hjaltalandi til Grænland. Sýni 1 er efst úr ruslahaug beint suður af inngangi húss frá 17. öld, sýni 2 kemur úr gólfi húss 5, frá sama tíma. Úrvinnsluaðferðin er sýnd á mynd 3. Niöurstöður Margar plöntutegundanna á listanum frá Stóruborg, sem eru fyrst og fremst illgresi, eins og brenninetla, túnsúra, blóðarfi, reiðingsgras og haug- arfi, voru áður fyrr almennt notaðar til fæðu. Aðeins eitt kolað byggkorn fannst í sorphaugssýninu, en neðar í haugnum fannst meira af byggi. Hluti af kornbjöllunni Sitophilus granarius fannst á sama stað. Líklegast er að kornið sé innflutt. Engar heimildir eru um kornrækt hér fram á 17. öld. í gólfi húss- ins fundust þó frjókorn af kornstærð, en þau gætu verið annaðhvort af inn- fluttu korni eða melgresi, sem oft var notað í stað korns. í sýni 2 fundust frjó- korn, af mjaðarlyngi, sem hefur e.t.v. verið ræktað og notað í lyf eða til bruggunar; þessi tegund fannst einnig i Skallakoti og í Borgarmýri. Sömu plöntur og skordýr finnast að vissu marki í báðum sýnunum, þó nokkur munur sé augljós, sérstaklega meðal jurtanna. Fjöldi frækorna gefur þó ekki mikla hugmynd um tíðni plantna, heldur fer hann eftir vaxtar- og æxl- unarháttum. Þannig gefa súra og arfi af sér mikið af frækornum og skarifífill dreifist víða. Oftast finnast aðeins frjókorn smára, en frækornin varðveitast sjaldan. Mikið fannst af krækiberjafræjum í sorphaugnum. Gætu þau hafa borist þangað í saur manna, eða fugla, t.d. rjúpu og spóa, sem nærast á þeim. Nokkra hugmynd má fá um umhverfi Stóruborgar af plöntulistanum, en gróðurlendi skiptist lauslega í ræktað land 28%, haga og engjar 36%, og mýr- ar og heiðar 32%. Flestar vaxa plöntutegundirnar ennþá nálægt bæjarstæð- inu. Margar bjöllur á listanum passa vel inn í þetta umhverfi, svo sem járn- smiða- og jötunuxaættin, taðdýfill, smellibjalla og flestar tegundir ranabjölluættarinnar. Fáar tegundir íslensku fánunnar eru háðar ákveðnum
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.