Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1980, Side 127
SKÝRSLA UM ÞJÓÐMINJASAFNIÐ 1979
131
Hallgerður Gísladóttir vann að frekari úrvinnslu og skráningu efnis frá
þjóðháttasöfnun stúdenta árið 1976 og einnig að öðrum störfum á vegum
þjóðháttadeildar.
Þórður Tómasson safnv. í Skógum annaðist sem fyrr samningu
spurningaskrár fyrir þjóðháttadeild, ásamt Árna Björnssyni, svo sem hann
hefur gert undanfarin ár, en um störf þjóðháttadeildar hefur Árni Björnsson
samið eftirfarandi greinargerð:
,,Á árinu voru sendar út tvær spurningaskrár, nr. 39 og 40. Hin fyrri
fjallaði um Leiki banm úti og inni, þar með taldir orðaleikir og þrautir, töfl
og spil. Hin síðari nefndist Þcettir um kirkju og prest og var spurt um kirkju-
húsið, lýsingu þess, sætaskipan, hringingar, meðhjálpara, kirkjuferðir og
kirkjusöng, forna siði, presta innan kirkju og utan og kirkjustaðinn sem fé-
lagsmiðstöð. Aukaspurning fjallaði um leikprédikara.
Á árinu bættust 189 númer í heimildasafn deildarinnar, og voru þau í árslok
orðin 4792.
Haldið var áfram við að vinna úr afrakstri heimildasöfnunar stúdenta frá
1976 og flokka það efni. Það verk annaðist Hallgerður Gísladóttir í hluta-
starfi 3 mánuði fyrir framlag úr Þjóðhátíðarsjóði, en því verður lokið á næsta
ári.
Starfsmaður deildarinnar sótti ráðstefnu um „munnlega geymd,” lnter-
national Oral History Conference, í Englandi og Wales 21.-25. mars. í raun-
inni voru menn þar að bera saman bækur sínar um söfnun sögulegra heimilda
meðal alþýðufólks, sem yfirleitt skrifar ekki endurminningar sínar, hvað þá
sagnfræðirit, svo að viðhorf þess hafa síður komist til skila opinberlega en
ella. Á þessu sviði stöndum við íslendingar þó ögn skár að vígi en flestir aðrir.
Þá sótti hann Symposium í Ábo í Finnlandi 8.-9. júní um þátt þjóðfræða í
eflingu þjóðarvitundar á Norðurlöndum. Var það í boði Norrænu þjóðfræða-
stofnunarinnar (NIF) í tilefni af 20 ára afmæli hennar.
Starfsmaður var í rannsóknarleyfi frá 15. nóvember.
Endanlega var gengið frá niðurstöðum vegna samkeppni um minningaskrif
eldra fólks. Fer hér á eftir greinargerð, sem send var út í árslok:
„Haustið 1976 hleyptu Sagnfræðistofnun Háskóla íslands, Stofnun Árna
Magnússonar og Þjóðminjasafn íslands af stokkunum samkeppni um minn-
ingaskrif fólks eldra en 67 ára. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið veitti
þá mikilsverðu aðstoð, að dreifingarkerfi Tryggingarstofnunar ríkisins var
notað til að unnt væri að koma boðsþréfinu og verkefnalistanum til allra elli-
lífeyrisþega í landinu.
Skilafrestur var í fyrstu ákveðinn til 1. nóvember 1977, en síðan framlengd-
ur til 1. mars 1978.