Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1980, Side 134

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1980, Side 134
138 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS allstór. Hinn 8. september var afhjúpaður minnisvarði um Bjarna Pálsson landlækni í Nesi, á 200. ártíð hans, reistur af Seltjarnarneskaupstað. í Viðey var unnið áfram að viðgerð á gólfum og lagt aftur gólf á neðra lofti, en unnið var tiltölulega skamman tíma þar, vegna þess að fjárveiting var tak- mörkuð. Unnið var talsvert í Norska húsinu í Stykkishólmi, einkum að viðgerð á þilj- um á efri hæð og má hún nú kallast tilbúin undir málningu og veggfóðrun. Hins vegar er mikið enn eftir við neðri hæðina. Yfirsmiður þar er Lárus Pétursson, en verkið er unnið undir umsjá Harðar Ágústssonar. Þingeyrakirkja var fullbúin hið innra eftir gagngera viðgerð sem Guðrún Jónsdóttir arkitekt hafði umsjón með, en hins vegar er mikið verk eftir hið ytra við múrveggi kirkjunnar. Var hátíðarmessa þar 10. júní og þá minnst 100 ára vígsluafmælis kirkjunnar árið áður, en hún var vígð 1878 og hafði þá verið nokkur ár í smíðum. Tekið var til að nýju við viðgerð Saurbæjarkirkju á Rauðasandi, en Gunnar Guðmundsson smiður tók að sér að ljúka þessu verki. Svo illa tókst til, að ekki var nægjanlega vel gengið frá grind kirkjunnar er hún var sett upp að nýju og þurfti að taka hana sundur að talsverðu leyti og laga samsetningar, sem kostaði bæði mikið fé og tók tíma. 15. júlí var Mosfellskirkja í Grímsnesi endurvígð eftir gagngera viðgerð sem Hörður Ágústsson hefur séð um. Lítur kirkjan nú mjög vel út og sómir staðn- um vel og hefur hún verið sett í upphaflegt horf eftir því sem unnt var. Jafn- framt viðgerðinni hefur Hörður rannsakað byggingarsögu hennar og hinna fyrri Mosfellskirkna og er það hluti af hinum miklu rannsóknum hans á forn- um byggingararfi. Gömlu húsin ofan við Lækjargötuna í Reykjavík, sem oft eru nefnd Bern- höftstorfan, voru friðuð með bréfi menntamálaráðherra 9. ágúst. Þar með var lokið fyrsta áfanga þess umdeilda máls, hvort húsin skyldu látin standa og notuð til þeirra þarfa sem minjagildi þeirra sæmir. Var þó ekki hafist handa um viðgerð húsanna á árinu en farið að leita úrræða um viðgerðir. „Húsið” á Eyrarbakka, sem skipt hafði um eigendur og friðlýst er skv. þjóðminjalögum, var tekið til mikillar viðgerðar, en það verður íbúðarhús framvegis. Hafði Hjörleifur Stefánsson arkitekt umsjón með viðgerðinni, sem var mjög vel af hendi leyst. Mörg fyrrgreind verkefni eru ekki unnin beint á vegum safnsins, en það hef- ur þó styrkt þær með fjárframlögum sumar hverjar en Húsafriðunarsjóður aðrar, þannig að þjóðminjavarslan hefur óbeint haft þar hönd í bagga. Hin síðari ár hefur minjavernd af þessu tagi vaxið út fyrir það að vera ein- vörðungu fyrir framtak Þjóðminjasafnsins, og hafa byggðasöfn, sveitarfélög, söfnuðir kirkna og einstaklingar æ meira látið hana til sín taka. Þetta er mjög
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.