Norðurljósið - 01.01.1983, Page 7
NORÐURLJÓSIÐ
7
hans. Hann kenndi svo í brjósti um konuna, að hann kraup á
kné og fór að biðja. Það var þetta, sem hann hélt, að dóttir hans
færi að hlæja að.
En hún hló ekki. Hún beið eftir að heyra meira. Konan
spurði þá, hvað ætti að gjöra við hennar liðna líf? O, gleymdu
því, hafði hann svarað henni. Það var besta ráðið, sem hann gat
gefið.
Ó! hrópaði dóttir hans, þetta áttir þú ekki að segja henni. Eg
verð að vinna þessa konu.
Hverju hefðir þú þá svarað henni? spurði læknirinn, fullur
áhuga.
Hjarta dóttur hans brann af áhuga og kærleik til að frelsa
þessakonu. Húnsagði: Ég hefði sagt henni, aðblóðjesú, sonar
Guðs, hreinsar okkur af allri synd. Vegna þessa blóðs gat hver
blettur syndar hreinsast í burtu. Faðir hennar starði á hana
undrandi augum og sagði: Hvað áttu við?
Sjáðu, sagði hún og benti á nokkra blekbletti í borðábreið-
unni. Ef þú vilt, getur þú farið og náð mér í efni, sem getur náð
þessum blettum úr, hreinsað þá í burtu. Alveg á sama hátt er
það, sem blóð Jesú Krists tekur í burtu syndabletti þessarar
föllnu konu.
Þessi orð voru bæði einföld og vel kunn, en Guð vann sitt
verk með þeim. Undrunarsvipurinn sami kom aftur í augu
læknisins. Þá brautst fram úr honum: Ég skil það, ég skil það,
ég hef aldrei skilið það fyrr. Blóð Jesú Krists hreinsar af allri
synd! Hjarta hans var yfirfullt. Hann hafði svo aðsegjastokkið
inn í ljósið.
Þetta hreinsandi blóð, sem konan þarfnaðist, var einmitt
það, sem hann þarfnaðist. Á sömu stundu snerist hann til trúar,
þessi vitri, menntaði fyrrverandi guðsafneitari. Dóttir hans
varð sem yfirbuguð af gleði. En einmitt þannig starfar Guð.
Hún hafði heyrt rödd hans og fór til Bandaríkjanna. Hann
hafði uppfyllt loforð sitt og snúið föður hennar.
Það kom nú í ljós, að 38 árum áður hafði þessi sami læknir
gengið frá einum trúflokki til annars og beðið þá að vísa sér á
veginn til hjálpræðis. En hinn auðskilda fagnaðarboðskap fékk
hann hvergi. Vonsvikinn endaði hann sem guðsafneitari.
Þannig liðu árin, uns hann fékk að heyra orð lífsins frá vörum