Norðurljósið - 01.01.1983, Side 88

Norðurljósið - 01.01.1983, Side 88
88 NORÐURLJÓSIÐ markaðir. Fjölskyldan var í hræðilegum kringumstæðum. Hið fyrsta, sem ég man eftir, er óþrifnaðurinn í litla útlendinga hverfinu hinum megin við járnbrautina. Þarna var allt mjög óþverralegt, og ekkert, sem minnti á Niagara-fossana. A þessum árum var svo að sjá, að veturinn kæmi allt of snemma og stæði of lengi. Ekki var hægt að treysta því, að pabbi sæi um, að kol væru til í húsinu í gamla, víða ofninn. Mörg voru þau vetrar-síðdegin, er mamma bjó sig og sum eldri börnin eins skjóllega og fátæklegur klæðnaður leyfði, náði sér í poka og tíndi upp kolamola, er dottið höfðu niður af kolavögn- um lestanna. Komin aftur inn í húsið, dofin á fótum og með sprungur á höndum, dró hún þennan poka með kolamolum inn í húsið, sæl yfir því, að börnunum hennar yrði hlýtt enn eina nótt. Er fátæklegs kvöldverðar hafði verið neytt og breiddar þunnar ábreiður ofan á börnin, þá sat mamma og beið þess, að hún heyrði reikul og óstyrk fótatök. Þau merktu, að pabbi hafði aftur ratað heim eftir drykkjutúr. Er hann var of drukkinn til að geta ýtt hurðinni opinni, dró mamma hann inn úr snjónum og kuldanum. Hann var maður þungur. En einhvern veginn tókst henni að draga hann inn úr snjónum og kuldanum og koma honum í rúmið. Ekki fékk hún eitt þakklætis orð. Mamma var falleg kona. Andlitsdrættir fíngerðir, augun glampandi, svört, hárið dökkt og liðað. Henni til hamingju og okkur, börnum hennar, til gleði, þá brást henni aldrei léttlyndi, sem reynslan hennar beiska gat ekki drekkt. Ahugasamir vinir sögðu stundum: Soffía, þér gæti liðið svo miklu betur án hans. Hví hlýðir þú ekki skynseminni? En um það leyti, sem ég fæddist, öðlaðist mamma stórkostlega, andlega reynslu, er setti bönd um framkomu hennar og trúartraust. Vakningar-herferð var farin umalla borgina. Mammatókþá á móti Kristi sem frelsara sínum. Hún vissi frá því andartaki, að hún hafði fundið hið eina, sem breytt gæti manninum hennar drykkfellda. Er hún talaði um þetta við hann, hló hann og gerði gys að henni. Og af hreinni illgirni, það virtist svo, drakk hann meira en nokkru sinni fyrr, það var eins og sjálfur djöfullinn hefði tekið öll yfirráð hjá pabba. Mamma var síhrædd um, að hann mundi skaða eitthvert okkar barnanna, er hann fékk sín
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160

x

Norðurljósið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.