Norðurljósið - 01.01.1983, Qupperneq 99
NORÐURUÓSIÐ
99
Krist. (Réttara mun 3000 f. Kr. samkvæmt tímatali biblíunnar.
S-G.J.) Merkastar eru rústirnar af hesthúsum Salómós
konungs. Húsin hafa rúmað 450 hesta og 1450 vagna. Merkileg
vatnsleiðslu-göng hafa fundist í Megiddó. Menn þeirra tíma
hafa grafíð djúpan brunn, og frá botni hans grafíð göng til að
|eiða vatnið frá uppsprettunni fyrir utan staðinn. Hún var síðan
Jarðvegi hulin til að fela hana fyrir aðkomandi herjum. Hún er
vel við líði eftir 3000 ár.
Leiðin lá svo til Jerúsalem. Það er mikill viðburður á ævi
tttargra, er þeir koma til Jerúsalem. Hún er sá staður, sem Guð
hefur útvalið til þess, að þar skyldi þróast og þar við haldast trú
a einn Guð og vígi fyrir trú á einn Guð (eingyðistrú -
^onotheistic). Staðurinn er metinn heilagur af þeim, sem trúa
a einn Guð, ekki á skurðgoð, sem er um helmingur trúarbragða
heimsins. Gyðingum er hún tákn um sigurríka fortíð og
framtíð, en svo að síðustu lausn þeirra og von. Kristnum
^önnum er Jerúsalem staðurinn, þar sem Jesús starfaði, dó á
hrossinum og reis upp frá dauðum. Múhameðsmönnum er
Jerúsalem staðurinn, sem þeir segja, að Múhameð hafi farið frá
hl himins.
Þótt Jerúsalem sé staðurinn, sem fylgjendur þessara þriggja
trúarbragða elska mest, hefur hún þó oftsinnis orðið staður
hlta, stríðs og ofbeldis. í nafni hennar, Jerúsalem, er innifalin
merking um frið. Samt hafa við hlið hennar geisað meiri
0rrustur en við nokkura borg aðra.
Á morgnana vorum við flutt í langferða-bifreið til þeirra
staða, sem við ætluðum að skoða, ef þeir voru langt frá gisti-
húsinu. Það, sem mér er minnisstæðast af því, sem við
skoðuðum, er gröf Krists. Hún var eitt hið fyrsta, sem við
shoðuðum, eftir því sem ég hef skrifað í minnisbókina. Við
h°mum að gröf hans í grasgarðinum. „En á þeim stað, þar sem
hann hafði verið krossfestur, var grasgarður og í garðinum var
gröf, sem enginn hafði verið lagður í. Þar lögðu þeir þá
Jesúm“, þannig segir postulinn Jóhannes frá.
( Lar, sem við komum saman, var það við hið svonefnda
^°tdon’s Golgata1. Þar koma saman margir kristnir menn,
Sem ekki eru kaþólskir. Þeir lesa þar páskaboðskapinn, syngja
uPprisu-sálma og hafa þar um hönd brauðs brotningu. Verður