Lögberg - 30.07.1953, Blaðsíða 1
M
66. ÁRGANGUR WINNIPEG, FIMMTUDAGINN, 30. JÚLÍ, 1953 NÚMER 31 og 32
RÆKT V IÐ ÍSLENZK ;an uppruna safnar þúsundu M TIL GIMLI
Við getum aldrei of mikið á
okkur lagt fyrir fullvernd
okkar tignu tungu
Fréttir fró ríkisútvarpi íslands
19. JÚLÍ
Forseti íslands lauk í gær
opinberri heimsókn á Vestfjörð-
um og var Vatnseyri síðasti við-
komustaður hans. Forsetahjónin
lögðu af stað í förina síðdegis
fyrra föstudag og héldu þá fyrst
til Þingeyrar, heimsóttu Rafns-
eyri og voru síðastliðinn sunnu-
dag við messu á Núpi og héraðs-
hátíð þar á staðnum. Þaðan
héldu þau með föruneyti sínu
til Flateyrar, svo til Suðureyrar
og þaðan að Holti í Önundar-
firði. Á ísafirði dvöldust forseta-
hjónin á fimmtudaginn, héldu
þaðan á föstudagsmorgun til
Bíldudals og luku síðan heim-
sókninni á Vatneyri. Hvarvetna
þar sem þau fóru var fjölmenni
saman komið að fagna þeim,
bæirnir voru fánum prýddir og
samkvæmi haldin. Veður var hið
fegursta.
☆
Biskupinn vígðj nýlega kirkj-
una í Gröf á Höfðaströnd, sem
nú hefir verið endurbyggð, en
hún mun vera eitthvert elzta
kirkjuhús landsins og jafnframt
hið minnsta, en þar komast ekki
fyrir inni nema rösklega 20
manns. Þarna var bænhús til
forna en lagðist síðan niður.
Ekkja Gísla biskups Þorláksson-
ar lét gera þar heimiliskirkju,
sem aldrei hefir fallið síðan^
og hefir hún nú verið endur-
byggð í sömu mynd og upphaf-
lega. Tekizt hefir að ná í ýmsa
forna muni, sem verið höfðu í
kirkjunni áður. Hún verður nú í
umsjá þjóðminjavarðar.
☆
Biskup íslands lagði af stað í
Framhald á bls. 4
MISS DONNA MAE EINARSSON
Hirðmey
Ávarp Fjallkonunnar
17. júní 1953
Einn vorsins dag við glöddumst saman seinast, —
og síðan liðin ár,
en ár og dagar eiga til að greinast
í yndisbros og tár.
Þið, börn mín, veit ég stóðuð mörg í stríðu,
því stundum blæs ei vægt,
en unnuð samt af þeli trúu, þýðu.
Ég þakka ykkar rækt.
Ég þakka öll þau nýju grös, er gróa
þar grjótin ríktu fyr,
og sannið til, að allt hið fagra, frjóa
mun færa dýrstan byr.
Svo vakið, starfið, látið hauður litkast —
og lífsins förvum skrýtt,
því landið allt, er veröld betur vitkast,
skal verða glatt og firítt.
Þið kynnist, trúi ég, ljúfúð heims og lævi
og lærið sitthvað nýtt;
þið vaxið, framist, sækið stóra sævi
og siglið djarft og vítt.
En munið eitt, er hrannir mestar hrynja,
svo hristast þykir strönd,
að gæta yðar gömlu, dýru minja
og geyma styrkri hönd. —
Mín blómstur öll sér láta saman lynda, —
svo líði og fleirum bezt,
að eigi fengi úfur þrárra vinda
sinn eim í þeli fest. —
I dag er ósk mín vors- og hugða heiði
til handa minni þjóð,
jafnt smáu strái og mikilvöxnum meiði
vil miðla sólarglóð.
JAKOB THORARENSEN
Minni Istancls, rϚa, EiNAR PKOFASTUR STURLAUGSSON
Fjallkona Islendingadagsins MISS JÖRUNN THORDARSON
JÓN K. LAXDAL
forseti Islendingadagsins
JÓHANNES PALSSON
Btýrir blönduðum. kór á
tslendingadeginum
STEPHAN G. STEPHANSSON
Eitt hið djúpúðgasta skáld íslenzku
þjóðarinnar að fomu og nyju
Vopnahlé í Kóreu
Þau mikilvægu tíðindi hafa
gerzt, að síðastliðinn sunnudag
var undirskrifaður af hálfu bar-
áttuaðiljanna í Kóreu samningur
um vopnahlé, er þegar hefir
gengið í gildi, og hafði þá Kóreu-
stríðið staðið yfir í freklega hálft
fjórða ár. Forseti Suður-Kóreu,
Syngman Rhee, var andvígur
samningunum, en hefir þó að
sögn heitið að halda þá. Má því
nú ganga út frá því sem gefnu,
að hafin verði hið allra fyrsta
gagnskipti stríðsfanga og þær
aðrar ráðstafanir teknar, er
greiða götu friðsamlegs sam-
komulags.
Stjórn Indlands er nú í þann
veginn að senda til Kóreu liðs-
afla mikinn til gæzlu fanga, er
eigi vilja hverfa til sinna fyrri
heimkynna fyr en þá að pólitískt
frelsi þeirra hefir að fullu verið
trygt.
Prófessor við Delft-háskólann
í Niðurlöndum framleiddi úr
ikoltjöru efnasamband, sem var
4000 sinnum sætara en sykur og
sjö sinnum sætara en sakkarín.
Flugmenn Loftleiða
Flugfélaglð Loftleiðir hefir
tekið upp þá nýbreytni að
þjálfa flugmenn sína í sér-
greinum vestur í Banda-
ríkjunum tvisvar á ári.
Kynnast þeir þá helztu nýj-
ungum í starfinu, rifja upp
og fullkomna fyrri þekk-
ingu sína á millilandafluginu
og meðferð hinna stóru
flugvéla.
Af öryggisásfæðum
Alfreð Elíasson yfirflugmaður
Loftleiða skýrði blaðamönnum
frá þessu í gær og sagði, að hér
væri um að ræða mikilvægt at-
riði í öryggismálum, því að flug-
mennirnir þyrftu, ef vel ætti að
vera, að fá sérstaka þjálfun og
hana helzt tvisvar á ári í meðferð
öryggistækja og aðgerða, sem
gripið er til, ef eitthvað kynni
að bera út af í fluginu.
Til þess náms fara í einu lagi
vestur um haf heilar áhafnir flug
vélanna, að flugþernunum unda-
anskildum. Fyrstu vikuna er
bóklegt nám, en síðan er sam-
eiginleg flugæfing við New York
á Heklu, þegar hún er búin að
skila af sér farþegunum.
Mikil umferð við flugvellina
Við flugvellina í New York er
ákaflega mikil umferð og krefst
flug um þá mikillar sérþekking-
ar og öryggis, ef vel á að vera.
Fljúga þarf að völlunum eftir
flóknum og vandlærðum reglum,
en áríðandi er að hins fyllsta ör-
yggis sé gætt í umferðinni uppi
í loftinu, eins og öðru, sem að
fluginu lýtur.
Um þessar mundir eru fimm
flugvélavirkjar að fara til Nor-
egs á vegum Loftleiða til að full
komna sig í flugvélavirkjun.
Kemur ný flugvél að vori
Eins og kunnugt er, veitti Al-
þingi Loftleiðum og Flugfélagi
íslands heimild til ríkisábyrgð-
ar vegna fyrirhugaðra flugvéla-
kaupa. Loftleiðir hafa lagt drög
að því að fá mjög fullkomna
millilandaflugvél afgreidda á
Lúðrarnir kalla komið!
Allar líkur eru til þess, að
sýnd verði hreyfimynd heiman
frá íslandi að Gimli á hátíðinni.
Próf. Finnbogi Guðmundsson er
að útvega hana og kemur með
hana með sér, er hann kemur
með „hópnum til baka. Og það
verður áreiðanlega reynt, að
koma því svo fyrir, að myndin
verði vel sýnd, svo fólk þurfi
ekki að verða fyrir vonbrigðum,
eins og átti sér stað síðast, þegar
sýna átti myndir frá íslandi.
MISS HELEN MAE BERGMAN
Hirðmey
þjólfaðir í Ameríku
næsta vori. Verður það lang-
stærsta flugvél íslendinga og sú
hraðfleygasta.
Getur hún borið 80 farþega og
3 lestir af farangri og er ekki
nema um 7 klukkutíma milli
Reykjavíkur og New York og
þrjá og hálfan klukkutíma milli
Reykjavíkur og Stafangurs.
Flugvélin er þannig byggð, að
setja má í hana þrýstiloftshreyfla
síðar meir, ef henta þykir. Flug-
vélar af þessari nýju Constella-
tion-gerð eru byggðar fyrir há-
lofsflug.
—TÍMINN, 10. júní
Að morgninum verða spilaðar
nýjar íslenzkar plötur til að
skemmta þeim sem fyrstir koma
og * þangað til skemmtiskráin
hefst.
Community söngur verður að
kvöldinu, eins og tíðkast hefir
undanfarið, og er mjög vinsælt.
Alls konar íþróttir verða sýnd-
ar að morgninum og einnig eftir
miðdaginn í norðvesturhluta
skemmtigarðsins. Mörg verðlaun
gefin.
Dansinn byrjar um klukkan
níu í danssalnum í Parkinu. —
Murray Anderson hljómsveitin
spilar fyrir dansinum.
Veitingar verða seldar á staðn-
um og alls konar dyrkkir og
sælgæti.
Mörg hundruð dollara hefir
nefndin lagt fram til að bæta og
fegra Fjallkonusætið, .palla og
sætin fyrir söngflokkinn, svo það
er nú mjög aðlaðandi og fallegt
orðið og setur mikinn tignarsvip
á allt sem þar fer fram í sam-
bandi við hátíðahaldið.
Forseti íslendingadagsins, J.
K. Laxdal, stjórnar samkomunni
og hann er kunnur að því, að
stjórna öllum fundum og mann-
fagnaði liðlega og vel.
Já, það verður margþætt og
góð skemmtun fyrir alla, eldri
sem yngri, á íslendingadaginn að
Gimli þann þriðja ágúst næst-
komandi. Enginn sannur og góð-
ur Islendingur má við því að
sitja heima þennan dag og missa
af þessum einstæða fagnaðar-
fundi og gleðistund, því
„Hvað er svo glatt sem góðra
vina fundur,
er gleðin skín á vonarhýrri brá?
Eins og á vori laufi skrýðist
lundur,
lifnar og glæðist hugarkætin þá.“
Já, það verður gaman að koma
til Gimli 3. ágúst.
Davíð Björnsson
PRÓF. WATSON KIRKCONNELL
Minni Canada, rœða
GUTTORMUR J. GUTTORMSSON
Minni tslands og Stephan O.