Lögberg - 30.07.1953, Qupperneq 3
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN, 30. JÚLI, 1953
3
Kirkjan og þjóðin
Heimska hjarians og heill
„Heimskinginn segir 1 hjarta
sínu: Enginn Guð.“ (Dav. sálm.
14.1.). Þeir menn hafa með öðr-
um orðum verið til þegar fyrir
25 öldum eða svo, sem neituðu
tilveru Guðs eða lifðu svo sem
væri hann ekki til. Vantrú, vafi
eða afneitun einstakra manna
hefur átt sér stað á öllum tímum,
en aldrei hefur slíkt orðið þjóð-
siður eða landsfar. Það er nýj-
ung í sögunni, sem nú er að ger-
ast í hinum forn-kristna heimi,
að þorrinn gangi á snið við trúna
að miklu leyti eða alveg. Hvert
s^. nýlunda stefnir menningunni
og almennum þroska skal ekki
rætt hér. En ýmsum þykir fyrir-
bærið uggvænlegt, þeim, er leit
ast við að átta sig á rökum sög-
unnar og þróunarinnar.
Afstaðan til trúarinnar er að
vísu sjaldnast opinská andúð eða
andstaða. Algengast er athafna-
leysið. Og sinnuleysi um trúmál
er ótvirætt hnignunarfyrirbæri.
Það er óhugsandi að leiða hjá
sér athugunarlítið k e n n i n g u
kristindómsins án þess að verða
minni maður. Boðskapur hans er
svo nærgöngult, persónulegt al-
vörumál fyrir hvern mann, að
það getur enginn hjá sér leitt
eins og óviðkomandi mál. Slíkt
er andleg uppgjöf. Það gerir eng
an að minni manni að ganga á
snið við spurningar eins og t. d.
þá, hver sé höfundur Völuspár
eða hvort mosi þrífast á Marz.
En sé um mál að ræða, sem varð-
ar líf og dauða, getur enginn
skotið sér undan því að taka af-
stöðu til eða frá, nema verða
minni rnaður. Ef Guð er til, þá
er það eina staðreyndin, sem
skiptir máli. Og hver hann er
verður eina verulega alvarlega
íhugunarefnið fyrir sérhvern
mann. Sé það rétt, að enginn
Guð sé til, þá er mannkynið
skúfur af stráum í ægilegri eyði-
mörku, sem grá og blind gjörn-
ingaveður hafa slysast til að
veita þessa raunalegu hermdar-
gjöf, sem kölluð er líf og vitund.
Jafnfáránlegt er það nú og þeg-
ar 14 sálmar Davíðs var ortur
að telja þetta sannleikann um
heiminn og lífið. Og þó er svo að
heyra stundum sem þessi vís-
dómur sé einn í samræmi við
skynsamlega hugsun menntaðs
nútímamanns. En hafi maður
sannfærast um, að vit og þekk-
ing leiði óhjákvæmilega til slíkr-
ar niðurstöðu, þá hefur sá hinn
sami þó tekið hreinlega afstöðu
og ef hún grundvallast á sam-
vizkusamlegri hugsun, þá á
hann tilkall til fullrar virðingar.
Heilshugar afneitun er virðing-
arverð. Sinnuleysi fyrirlftlegt.
Flestir, sem hafna kristindómi
með þeim rökum, að hann fái
ekki samrýmst vitsmunum
þeirra eða þekkingu, dyljast
hinna raunverulegu orsaka af-
stöðu sinnar, sem Jiggja miklu
dýpra í dulheimum hins ómeð-
vitaða sálarlífs. Oft hafa menn
snúist á þessa sveif vegna ó-
CONGRATU LATIONS
to the lcelandic People on the
Occasion of the 64th Anniversary
of their Annual Celebration Day
at Gimli, August 3rd, 1953.
VICTOR BARBER SHOP
687 Sargenl Ave. WINNIPEG. Man.
Með innilegum kveðjum
í tilefni af íslendingadeginum 3. ágúst 1953.
LUNDARBAKERY
• A. V. OLSON, ráðsmaður og eigandi
LUNDAR MANITOBA
Hamingjuóskir til íslendinga í
%
tilefni af 64. þjóðminningardegi
þeirra ó Gimli, 3. ógúst 1953
fró
J. J. SWANSON & CO., LIMITED
Leigja og annast íbúðar og verslunarhús
Annast tryggingar í öllum greinum
Eldsábyrgðir, bíla tryggingar, slysatrygg-
ingar, o. fl.
Lána peninga gegn lágum vöxtum
Fasteigna umsjónarmenn.
J. J. Swanson & Co.
Limited
FASTEIGNA SALAR
308 Avenue Bldg. WINNIPEG, MANITOBA
Sími 92-7538
heppilegra atvika lífsreynslunn-
ar. Bernhard Hart segir frá á-
hugsasömum, ungum sunnudags-
skólakennara, sem allt í einu
gerðist ákveðinn og ákafur guðs-
afneitari. Hann færði fimleg rök
fyrir sínum nýju skoðunum og
kvað langa og rækilega íhugun
hafa sannfært sig um, að enginn
Guð væri til .Hann var alveg
einlægur í þeirri sannfæringu
sinni, að hinar sterku röksemd-
ir, sem hann hafði á takteinum,
viðræður við sálfræðinginn
leiddu annað í ljós: Unnusta
hans hafði sagt honum upp og
trúlofast áhugasamasta starfs-
bróður hans við sunnudagsaskól-
ann. Hatrið á keppinautnum og
trygðrofanum varð ómeðvitað
að hatri á þeirri trú, sem verið
hafði öllum þrem grundvöllur
náinnar vináttu. Rökin komu
eftir á, voru skinástæður, sem
hann spann óafvitandi upp eða
heyjaði sér, vegna þess að hin
raunverulega orsök var óþægi-
leg og bæld.
Mörg svipuð dæmi eru til og
benda þau til þess, að mannvitið
og þekkingin séu ekki alltént
eins átakamikil um að hnekkja
trúnni og yfirborðið gefur til
kynna. Vanahugsun og hugsunar
tregða eru að verða sterkar und-
iröldur þess tízkustraums, sem
hnígur gegn trúnni. Og oftast er
það á vettvangi samvizkunnar
kostar það að byggja trúnni út.
Síðaboð trúarinnar koma mönn-
um fyrir sjónir sem helsi, fjötur
um fót. Menn sjá, að þau eru há-
leit, en hneigðir leita í aðra átt.
1 þeim átökum verður mörgum
feginmál, að kenningar trúarinn-
ar séu ekki annað en mannasetn-
ingar. Enginn vill viðurkenna,-
að hann stefni gegn betri vit-
und. Slíks vilja menn dylja
bæði sjálfa sig og aðra. Því
skellur skuldin á trúnni. Það er
þægilegri niðurstaða, að kristin-
dómurinn sé haldlaus en að
maður hafi rugðist sjálfur, svik-
ið sinn betri mann.
Jesús segir: „Sá, sem vill gjöra
vilja Guðs, mun komast að raun
um, hvort kenningin er frá Guði.
Sigurbjörn Einarsson
ALÞBL.
Minnumst
sameiginlegra erfða
á íslendingadeginum
á Gimli, 3. ágúst, 1953.
Dr. T. GREENBERG
814 SARGENT AVENUE
WINNIPEG. MANITOBA Phone 3-6196
Með innilegum kveðjum
í tilefni af
íslendingadeginum
3. ágúst 1953.
TIP TOP MEATS &
FROZEN FOOD LOCKERS
PHONE 101 GIMLI. MAN.
HAMINGJUÓSKIR
til íslenáinga \ tilefni af 64.
þjóðminningardegi þeirra
á Gimli, Man., 3. ágúst 1953
Frúin: — Hvað meinarðu eigin
lega með því að koma svona
seint heim?
Eiginmaðurinn (eftir of mörg
„hanastél"): — Elskan mín, hik,
ég flýtti mér heim, hik, vegna
þess, að ég hélt að þér leiddist að
vera ein, hik, en nú sé ég að ég
hefði alls ekki þurft þess, hik,
fyrst tvíburasystir þín er hjá,
hik, hik, þér!
☆
Á heimleið úr kirkjunni
Prófessorinn (utan við sig að
vanda): — Jæja, hver er það nú,
sem er utan við sig? — Þú
gleymdir regnhlífinni þinni í
kirkjunni, en ég mundi ekki að-
eins eftir þinni, heldur mundi ég
líka eftir minni!
Prófessorsfrúin: — Guð sé oss
næstur. Við vorum hvorugt með
regnhlíf, þegar við fórum í
kirkjuna!
4
H.O.HALLSON
KAUPMAÐUR OG AKURYRKJU
VERKFÆRA SALI
ERICKSDALE
MANITOBA
fea.
▼^y
DOMINION BRIDGE COMPANY
LIMITED
▼▼▼
Fabricators and Erectors of Structural Steel
for Buildings, Bridges, Tanks, etc.
702 CANADA BUILDING
WINNIPEG MANITOBA