Lögberg - 30.07.1953, Blaðsíða 20

Lögberg - 30.07.1953, Blaðsíða 20
20 LÖGBERG, FIMMTUDAGINN, 30. JÚU, 1953 Sykur í skuggsjánni Sykur er hægt að vinna úr furðulegustu efnum. í Brazilíu er það unnið úr sérstakri gras- tegund, og á Suður-Italíu, eink- um á Sikiley, er það unnið úr trjátegund einni. En einhverjir vísindamenn komust að raun um að sykurtegund þessi er hið ágætasta hægðalyf. Aðrar sykur- námur eru: algeng jurt eins og mosi, sjávargróður og úrgangs- pappír. Samkvæmt amerískum skógarhöggsskýrslum fæst úr einu tonni af sagi hálft tonn af sykri. ☆ Það var hægt að þakka Napo- leonsstyrjöldunum það, að menn fóru að framleiða sykur úr róf- um. Frakkland einangraðist og gat ekki fengið sykur frá útlönd- um. Árið 1811 tókst Benjamín Delesser að gera sykur úr róf- um. Þegar keisaranum barst þetta til eyrna varð hann svo glaður, að hann heiðraði upp- finningamanninn með nafn- bótum. ☆ Læknar í Nýja-Sjálandi þykj- ast hafa sannað, að skortur á sykri í líkamsvef manna orsaki glæpahneigð. Flest þessara ein- kenna hverfa, þegar viðkomandi fær aukinn sykurskammt. Blóð- sýnishorn, sem tekin hafa verið af glæpamönnum í Nýja-Sjá- landi hafa leitt í ljós, að þeir þjást allir meira og minna af sykurskorti. ☆ Sykurinn gerði níu milljónir innfæddra manna á Vestur- Indíum að þrælum. Þrælahaldið leiddi til vöruskipta á þrælum, saltfiski og rommi. Sykurfram- leiðendurnir á Kúbu fengu á- huga á hinum ódýra vinnu- krafti, þrælunum, en þrælarnir urðu að fá mat. Þá var fluttur inn fyrir þá saltfiskur frá Ame- ríku. í stað fisksins var látinn sykur. í Ameríku var skipt á sykrinum og rommi, er sent var til Afríku og þaðan komu fleiri þrælar. ☆ Það er hægt að breyta salti í sykur. Stór hluti af sykurfram- leiðslu heimsins er gerður úr sykurrófum, sem nærast af salti. Sykurrófan er komin af sjávar- jurt, sem lifir 1 salti í sjónum. í stríðinu, þegar skortur var á áburði, var í sumum löndum notað salt og reyndist það ágætur áburður. ☆ Seint á 17. öld voru margir prestar andvígir sykri og alls konar sykurvörum, og þeim tókst að fá marga ofsafengna menn til fylgdar við sig. Prestur nokkur í Mexíkó var æfur yfir því að sykurbryðjandi konur gerðu helgispjöll í kirkju hjá honum, og hótaði hann að setja þær út af sakramentinu, ef þær hættu ekki þessum ósóma. Kon-^ urnar urðu hræddar, og prestur- inn áleit, að hann hefði talað um fyrir þeim. Dag nokkurn eftir guðsþjónustu þáði hann sykur, sem honum var boðinn af konu nokkurri. Daginn eftir dó hann úr eitrun. Svo er sagt að síðan hafi konur getað brutt sykur óátalið meðan á prédikun stend- ur í sókn þessari. ☆ Fram á 15. öld var sykur að- eins notaður sem lyf. En eftir því sem verzlunin við Austur- lönd jókst, varð sykur algengur meðal hirða og stórmenna. Verð- ið var svo hátt, að eingöngu þeir ríkustu gátu keypt sykur. Það er ekki fyrr en löngu seinna, sem hann er viðurkennd nauðsynja- vara. —HeimilisblaðiS Með innilegum kveðjum í tilefni af íslendingadeginum 3. ágúst 1953. McARTHUR, APPLEBY & McARTHUR BARRISTERS and SOLICITORS C. V. McARTHUR, Q.C. WILLIAM R. APPLEBY, B.A., L.L.B. R. BROCK McARTHUR, L.L.B. 801-7 Somerset Building WINNIPEG TELEPHONE 92-7541 LÁTIÐ ATKVÆDI YÐAR VERÐA ÁHRIFARÍKT MEÐ VITURLEGRI ATKVÆÐAGREIÐSLU Þann 10. ágúst verður það í fyrsta sinn, er hundruð þúsunda nýrra Canadamanna greiða atkvæði í almennum kosningum. Samkvæmt aðferðum leynilegrar atkvæðagreiðslu getið þér greitt atkvæði hvaða frambjóðanda sem er, án þess að nokkur viti um það. í þessu felst fjöregg lýðræðisins. Látið áhrifa atkvæðis yðar gæta með viturlegri atkvæðagreiðslu. Hugfestið, að Progressive Conservative flokkurinn berst fyrir mörgum umbótum, sem Canada þarfnast. Hann er ákveðinn í að lækka skatta, koma upp nýjum húsum, þar sem aðeins þurfi að greiða tíu af hundraða til að byrja með og íryggja vægar afborganir á mánuði. Hann mun annast um hagkvæmilegar heilsutryggingar handa fjölskyldu yðcir, og gera ábyggilegar ráðstafanir gegn áróðri kommúnista. Og hann mun endurvekja virðingu fyrir þinginu og losa þjóðina við einræði Liberal-ráðherranna. Er þér greiðið Progressive Conservative atkvæði, greiðið þér atkvæði með betra Canada. VITIÐ ÞÉR ÞETTA? Vitið þér, að til þess að fá Progressive Conservative stjórn í Ottawa, verðið þér að greiða frambjóðendum Progressive Conservative flokksins atkvæði í kjördæmum yðar? Vitið þér nafn Progressive Conservative frambjóðandans í kjördæmi yðar? Vitið þér, að þér getið fengið nafn P.C. frambjóðandans hjá klúbbnum yðar eða fundarfélagi? Vitið þér, að einungis með því að kjósa P.C. stjórn, fáið þér iægri skatta, ný hús gegn lágri fyrirfram greiðslu og alþjóðar- heilsutryggingar? LÁTIÐ FÁNA FRELSINS BLAKTA VIÐ HUN ÞANN 10. ÁGÚST Greiðið Progressive Conservatíve atkvœði Published by authority of the National Progressive Conservative Association. Kjósendur Selkirk Kjördæmis GREIÐ ATKVÆÐI ÞANN 10. ÁGÚST MEÐ HÖRMULEGUR ATBURÐUR Síðastliðinn föstudag lézt hér í borginni af völdum bíla- áreksturs Lúðvík Erlendur Anderson um langt skeið starfs- maður Canadian Bank of Com- merce, 49 ára, prúður maður og einkar vinsæll; hann var borinn og barnfæddur í Winnipeg og átti hér heima alla sína ævi; hann var búsettur að 922 Sherburn Street og var kunnur vegna áhuga síns á íþróttum. Auk ekkju sinnar, Jean, lætur Mr. Anderson eftir sig tvö börn, Margréti og Bill, ásamt tveim bræðrum, Ralph í Detroit og Gest í Grand Rapids, Mich. Kveðjuathöfn um þennan mæta mann fór fram frá útfarar- stofu Thompson’s á þriðjudag- inn. ^ Okkar a dVlilli Sagt Eftir GUÐNÝJU GÖMLU Er nokkuð yndislegra en fagur sumarmorgun? Loftið er svo hressandi og tært, að það minnir á ódáins fegurð. Á þessum tíma leysi ég af hendi flest þau störf varðandi heimilishald, sem erfið eru og þreytandi. — En komi svo hitasvækja er á daginn líður, get ég að loknum önnum tekið mér góða hvíld. Þetta kalla ég að spara starfskrafta. Því reyna ekki aðrir það líka? ---------☆---------- Sumarið í Canada er tími hvíldar og hollra skemtana; nýtur þá fj.ölskyldan oft sameigin- legs fagnaðar úti í sveit, eða í garðinum við heimilið. En hvar, sem slíkur fagnaður er haldinn kemur flestum saman um það, að nauð- synlegt sé að hafa við hendi hið ljúffenga DEMPSTER’S brauð; þér getið fengið Dempsters hjá matvöru- kaupmanninum, en hafi hann það ekki í búðinni, getur hann útvegað það. Brauð er mikill orkugjafi, og í sumarhitanum er það óviðjafnanlegt. Dempsters brauð eru ljúffeng og auðug að bætiefnum. ---------☆---------- Hér er uppástunga, sem forðar yður frá mörgum óþægindum, ekki einungis yfir sumarið, heldur allan ársins hring. Látið IMPERIAL BANKANN, bankann, sem góð afgreiðsla skapaði, annast um bókhald yðar. í gegnum hlaupareikninga í IMPERIAL BANKANUM getið þér með ávísun greitt alla ýðar reikninga. Haldin er skrá yfir öll innlegg yðar og þær ávísanir, sem þér gefið út. Þetta er gert mánaðarlega og hinar notuðu ávísanir gilda sem kvittanir. Lætur þetta ekki vel í eyra? Er þetta ekki hagkvæmilegt? Forstjóri IMPERIAL BANKANS í umhverfi yðar skýrir með ánægju fyrir yður notkun hlaupareiknings. Með innilegum kveðjum í tilefni af íslendingadeginum 3. ágúst 1953. The Maple Leaf Creamery J. BRECKMAN, eigwndi og forstjóri LUNDAR MANITOBA Breaks the Price Barrier And presents to the women of Canada . . . in fact, to “Everywoman” from the coed and young careerist to the matron and dowager . . . the wonderful opportunity to meet their fur needs now for many a Winter to come . .. the opportunity most carefully planned and brought to unequalled fulfilment in HOLT RENFREW#S SUMMER SALE OF FURS H.R. solicits and welcomes your visit . . . see the furs . . . try them on . . . consult our fur experts . . . and without obligation on your part. Then shop thé town . . . compare quality for quality . . . value for value . . . price for price . . . and convince yourself that H.R. PRICES ARE UNRIVALLED! BARYLUK, Mike Published by authority of the Selkirk Progressive Conservative Association. HOLT RENFREW Portago at Carlton

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.