Lögberg - 30.07.1953, Page 4
4
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN, 30. JÚLI, 1953
Lögberg
Ritstjóri: EINAR P. JÓNSSON
GefiS út hvern fimtudag af
THE COLUMBIA PRESS LIMITED
695 SARGENT AVENUE, WINNIPEG, MANITOBA
J. T. BECK, Manager
Utanáskrlft rltstjðrana:
EDITOR LÖGBERG, 695 SARGENT AVENUE, WINNIPEG, MAN.
PHONE 74-3411
Verð $5.00 um árið — Borgist fyrirfram
The ‘Lögberg" is printed and published by The Oolumbia Prees Ltd.
695 Sargent Avenue, Winnipeg, Manitoba, Canada
Authorized as Second Class Mail, Post Office Department, Ottawa
Hittumst heil á Gimli
Á mánudaginn hinn 3. ágúst verður hin árlega
íslendingadagshátíð haldin í skemtigarði Gimlibæjar
og ef að líkum ræður, má vænta þangað mikils fjöl-
mennis; forstöðunefndin hefir vandað hið bezta til alls
undirbúnings og þarf því eigi að efa, að mannfundur
þessi verði um alt hinn ánægjulegasti.
Sérstakan svip setur það að sjálfsögðu á hátíðina
að þessu sinni, að nokkur hluti skemtiskrár er helgaður
aldarafmæli Stephans G. Stephanssonar, eins hins
djúpúðgasta og stórbrotnasta ljóðskálds íslenzku þjóð-
arinnar að fornu og nýju, en ummælin um skáldið
fléttar prófessor Watson Kirkconnell inn í Canada
minni sitt; er hann gerkunnugur ljóðum skáldsins og
hefir manna mest útbreitt þekkingu á íslenzkri ljóða-
gerð meðal enskumælandi lýðs með vönduðum ljóða-
þýðingum sínum; við, sem höfum átt því láni að fagna
að eiga með honum nokkra samleið, hlökkum til endur-
funda við hann á Gimli.
Kærkominn gestur, séra Eiinar Sturlaugsson pró-
fastur á Patreksfirði, sem hingað kemur í boði Mani-
tobaháskólans, flytur ræðuna fyrir minni íslands og
verður því vitaskuld alment fagnað. Séra Einar er þegar
að góðu kunnur íslendingum vestan hafs vegna hinnar
höfðinglegu blaða og tímaritagjafar hans til íslenzka
bókasafnsins við háskóla þessa fylkis; hann mun hafa
í hyggju að heimsækja flestar bygðir íslendinga hér
vestra á vegum Þjóðræknisfélagsins og mun honum
hvarvetna fagnað verða.
íslendingadagurinn hefir enn sem fyr mikilvægt
þjóðræknislegt gildi til brunns að bera; þann dag verða
allir eitt.
Þjóðræknisfélagið þarf að færa út kvíar og ná til
sem allra flestra hvort heldur sem mælt er á íslenzka
eða enska tungu. Og hvað ætti að vera því til fyrir-
stöðu, að sérhvert mannsbarn, er næsta íslendinga-
dag sækir skrásetjist í Þjóðræknisfélagið?
☆ ☆ ☆
Falleg og fræðimannleg ritgerð
í nýlega útkomnu hefti af tímaritinu The Icelandic
Canadian, 'er að finna fallega og fræðimannlega ritgerð
eftir W. J. Lindal dómara um krýningu Elízabetar
drottningar og hefir ritgerðin nú verið gefin út í sér-
prenti og er það vel, því að hún á erindi til sem allra
flestra lesenda.
í bréfi til höfundar farast kunnum fræðimanni af
enskum uppruna, Arthur Wood, sem er í þjónustu
National Employment Service, meðal annars þannig
orð:
„Ég finn hjá mér hvöt til að flytja þér hugheilar
samfagnaðaróskir.
Þessa síðustu mánuði hefir margt verið ritað og
sagt um krýninguna, en ég get í fullri alvöru fullvissað
þig um það, að ég hefi ekki komið auga á neitt, er betur
sé til lestrar fallið né varpi skýrara ljósi á efnið en
ræðan, sem þú fluttir í viðurvist nemendahópsins við
Daniel Mclntyre skólann; slík ræða verðskuldar það
vissulega áð hún hún sé birt í sérprenti og ég tel víst,
að nemendur myndu eigi aðeins fagna því heldur og
margir aðrir.
Þú hefir sérstakt lag á því að raða niður kjarna-
atriðum án þess að frásögnin taki á sig kaldrænt sagn-
ritunarform; ég hafði óblandna ánægju af lestri
áminstrar ritgerðar."
☆ ☆ ☆
Stjómmólaspádómar
Leiðtogi C. C. F.-flokksins, Mr. Coldwell, sem um
þessar mundir er á ferðalagi um Vesturlandið í kosn-
ingaerindum, lét það verða eitt sitt fyrsta verk eftir
komu sína til þessarar borgar, að spá fyrir um örlög
íhaldsflokksins í kosningunum og eftir því að dæma
ætti útreið sú, sem sá flokkur fær, að verða alt annað
en glæsileg; hann tjáði sig hárvissan um það, að íhaldið,
með Mr. Drew í fararbroddi, gæti ekki undir neinum
* kringumstæðum náð á vald sitt nema í mesta lagi
fjórum til fimm þingsætum vestan vatnanna miklu, en
í Quebec myndi það fremur tapa en vinna á; það væri
þar af leiðandi auðsætt, að ekki kæmi til nokkurra mála,
að íhaldið fengi myndað stjórn að afloknum kosningum.
Á hinn bóginn virtist Mr. Coldwell harla vongóður
um stóraukið fylgi flokks síns í kosningunum, einkum
þó í Saskatchewan, þar sem hann taldi líkur á að flokk-
urinn hlyti öll þingsætin, seytján að tölu. Svo mæla
börn, sem vilja, segir hið fornkvðna, en fáir munu á
þessu stigi málsins hallast á þá sveif, að Mr. Gardiner
sé í pólitískum skilningi dauðadæmdur í Saskatchewan
hvað, sem öðrum þar vestra líður.
Fréttir fró ríkisútvarpi íslands
Framhald af bls. 1
gær til Noregs, en þar verður
hann viðstaddur kirkjuhátíð í
Niðarósi, er minnst verður 800
ára afmælis erkibiskupsstólsins
þar. Alíir yfirbiskupar Norður-
landa prédika í dómkirkjunni f
Þrándheimi á hátíðinni.
☆
Veður hefir verið blítt að
undanförnu og mikil árgæzka til
lands og sjávar. Spretta er ágæt
bæði á túni og engjum, sláttur
byrjaði miklu fyrr en venjulega
og víða hefir allt náðst inn, sem
losað hefir verið, og það ágæt-
lega verkað. Horfur eru á góðri
kartöfluuppskeru. Síldarafli hef-
ir verið hpjög góður að undan-
förnu, einhver veiði alla daga
vikunnar og stundum mjög góð.
Fólksekla hefir tafið fyrir sölt-
un, en starfsfólki á söltunar-
stöðvunum hefir fjölgað mikið,
eftir að fregnir tóku að berast
um góða síldveiði. Á miðviku-
dagskvöld hafði verið saltað í
51.271 tunnu á öllu landinu, þar
af í 28.207 tunnur á Siglufirði,
en sama dag í fyrra hafði verið
saltað í aðeins 633 tunnur á öllu
landinu. Mikið hefir verið salt-
að síðan á miðvikudagskvöld,
því að veiði hefir verið ágæt, og
og einnig hefir talsvert farið í
bræðslu. í fyrradag var saltað í
6717 tunnur og sennilega hefir
meira verið saltað í gær, því að
síldveiðin var sérlega góð í
fyrrinótt.
☆
Fiskaflinn í maímánuði á öllu
landinu varð 40.720 lestir eða um
7.500 lestum meiri en í sama
mánuði í fyrra. Fyrstu fimm
mánuði ársins nam fiskaflinn
rúmlega 185.000 lestum eða um
10.000 leséum meira en á sama
tíma í fyrra. Af þessu fiskmagni
fóru 56.500 lestir í frystingu, í
herzlu nær því 69.000 lestir og til
söltunar tæplega 58.000 lestir.
☆
Síðastliðinn mánudag hafði
sanddæluskipið Sansú flutt sam-
tals 112.000 lestir af skeljasandi
í sandþró fyrirhugaðrar sements-
verksmiðju á Akranesi. Sandin-
um er dælt úr botni Faxaflóa og
hefir verið dælt á sama stað á
litlum bletti af þeim ferkíló-
metra, sem afmarkaður hafði
verið.
☆
í júnímánuði s.l. varð vöru-
skiptajöfnuðurinn óhagstæður
um tæpar 50 miljónir króna. Inn
voru fluttar vörur fyrir röskar
108 miljónir en út fyrir 58 milj-
ónir. Fyrri helming þessa árs
var vöruskiptajöfnuðurinn óhag-
stæður um 201,3 miljónir króna.
☆
Nýlega er lokið smíði göngu-
brúar á Jökulsá í Lóni. Brú
þessi er 27 metra löng hengibrú,
þar sem kláfferjan er hjá Kollu-
múla, og er að henni mikil sam-
.göngubót, þar eð altítt er að fólk
uari þessa leið milli Fljótsdals-
héraðs og Skaftafellssýslu.
☆
Steingrímur Steinþórsson, for-
sætis- og félagsmálaráðherra,
setti 13. fund félagsmálaráðherra
Norðurlanda í Alþingishúsinu á
fimmtudaginn var. Það er fyrsti
fundur félagsmálaráðherrana,
sem haldinn er hér á landi, en
íslendingar hafa tekið virkan
þátt í fundahöldum þessum frá
1945. Forsætisráðherrann kvað
það vilja íslendinga, að auka
heldur samstarfið við hin Norð-
urlöndin en draga úr því. Hann
rakti það, sem áunnist hefir um
Með innilegum kveðjum
í tilefni af
íslendingadeginum
3. ágúst 1953.
T. J. CLEMENS
FUNERAL DIRECTOR
ASHERN MANITOBA
Serving the Interlake Territory
FIRÐSÍMANIR
ganga miklu greiðar
ef þér
HRINGID í NÚMERID!
* V
Hafið ávall við hendi lista yfir þau númer, sem
þér þuríið að ná lil yfir firðsímann. Gefið af-
greiðslunni hið rétta ulanbæjarnúmer og næst þá
viðlalið greiðar en ella. Ef þér vilið ekki um
númerið skuluð þér skrifa það niður og hafa við
hendi, er þér næst þurfið að ná sambandi!
MANITOBA TELEPHONE SYSTEM
Reykjavík var haldin. Aðal-
fundur Blaðamannasambands
Norðurlanda var einnig haldinn
í Reykjavík að þessu sinni, og
eru fulltrúarnir nýlega farnir
heim, hinrn síðustu fóru í gær-
morgun. Fram undan er norrænt
bindindisþing, sem á að hefjast í
Reykjavík í lok þessa mánaðar
og sækir það fjöldi manna af
Norðurlöndunum.
☆
í dag er Þorláksmessa og Skál-
holtshátíð haldin að venju, en
fyrir henni gengst Skálholts-
félagið, sem stofnað var til við-
reisnar Skálholtsstað. Messu-
gjörð önnuðust vígslubiskup
Skálholtsbiskupsdæmis, séra
Bjarni Jónsson, og séra Friðrik
Friðriksson, en meðal ræðu-
Minnumst
sameiginlegra erfða
á íslendingadeginum
á Gimli, 3. ágúst, 1953.
/
THORGEIRSON CO.
PRENTARAR
532 AGNES ST., WINNIPEG Phone 3-0971
gagnkvæm felagsleg rettindi hja
Norðurlgndaþjóðunum og gat
þess, að á þessum fundi ráð-
herrana, sem lýkur á morgun,
verða undirritaðir þrír Norður-
landasamningar: um gagnkvæma
veitingu mæðrahjálpar, — um
gagnkvæmi varðandi greiðslur
vegna skertrar starfshæfni, — og
um flutning milli sjúkrasamlags
og um sjúkrahjálp vegna dvalar
um stundarsakir. Allir félags-
málaráðherrar Norðurlanda sitja
fundinn. Forseti íslands tekur á
móti fundarmönnum á morgun.
☆
Nýlega er lokið fundi for-
manna samtaka atvinnuveitenda
á Norðurlöndum, sem háður var
í Reykjavík, og sömuleiðis nor-
rænni póstmálastefnu, sem 1
Verndið velmegun þjóðarinnar
>>
<r>
c>
w
H
Liberal frambjóðanda í Selkirkkjördæmi
WOOD, R.J. X
CONGRATULATIONS!
to the Icelandic People on the Occasion of the
64th Anniversary of their Annual Celebration
Day at Gimli, on August 3rd, 1953.
ALWAYS ASK YOUR GROCER FOR . . .
j BIITTERNUT BREAD
THE LOAF IN THE BRIGHT RED WRAPPER
| Old Fashioned Scone Loaf
A WONDERFULLY DIFFERENT BREAD
Canada Bread Co. Ltd.
J. S. FORREST, Manager
Phone 3-7144
PIES — D'NUTS — ROLLS — CAKES