Lögberg - 30.07.1953, Blaðsíða 22
22
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN, 30. JÚLÍ, 1953
HVAÐ ER NIRVANA?
Framhald af bls. 18
ing á Nirvana, því þar verður
að sögn hver og einn að sjá með
sínum eigin augum.
☆
Hér skal tilfærður kafli, þar
sem Budda ræðir við nemanda
sinn um villu þeirra manna, sem
halda að þeir geti skilið Nirvana
með rökfræðilegum heilabrotum
og skynsemi án innri sjónar.
Þá sagði Mahamati við Budda:
— „Seg þú okkur, hvað Nirvana
er.“
Budda svaraði: — „Orðið
Nirvana er notað í mörgum mis-
munandi merkingum af ólíkum
mönnum. En þessu mmönnum
má skipta í fjóra flokka: Menn,
sem þjást eða óttast þjáninguna
og leita Nirvana. Heimspekinga,
sem reyna að skilgreina Nirvana.
Vissa tegund lærisveina, sem
hugsa um Nirvana í sambandi
við sína eigin persónu. Og loks
er til Nirvana hinna upplýstu.
Þeir, sem þjást eða óttast
þjáninguna, hugsa um Nirvana
sem undankomu og endurgjald.
Þeir ímynda sér að Nirvana sé
dauði skynfæranna og þeirrar
hugarstarfsemi, sem þau fóstra.
Þeir vita ekki að heimsandinn
og Nirvana er eitt, og að þessi
veröld lífs og dauða og Nirvana
er óaðskiljanlegt. Þessar fáfróðu
sálir tala um mismunandi leiðir
til frelsunar í stað þess að hug-
leiða hið ótakmarkanlega eðli
Nirvana. Þeir þekkja ekki eða
skilja ekki kenningu Buddanna
og halda sér fast við þá skoðun,
að Nirvana sé utan hugarstarf-
seminnar, og halda þannig áfram
að hringsnúast með hjóli lífs og
dauða.
Hinar margvíslegu hugmyndir
heimspekinganna um Nirvana
eiga sér í raun og sannleika
enga stoð í veruleikanum. —
Sumir heimspekingar halda að
Nirvana verði fundið þegar hug-
arstarfseminni lýkur, vegna
CONGRATU LATIONS
to the lcelandic People on the
Occasion of the 64th Anniversary
of their Annual Celebration Day
atGimli, August 3rd, 1953.
THOMAS P. HILLHOUSE, Q.C.
SELKIRK
MANITOBA
Með innilegum kveðjum
í tilefni af
íslendingadeginum
3. ágúst 1953.
D. J. LINDAL
FORD SALES AND SERVICE
Garage Repairs to all Cars
LUNDAR
MANITOBA
—
MARSHALL-WELLS’ STORE
N. K. McLEOD, owner ★
Complete Line of Hardware
GLENBORO MANITOBA
CONGRATU LATIONS
to the lcelandic People on the
Occasion of the 64th Anniversary
of their Annual Celebration Day
at Gimli, August 3rd7 1953.
GEO. D. SIMPSON
BOX COMPANY
MAIN and PARTRIDGE WEST KILDONAN
Phone 5-4339
þess að þau öfl sem byggja upp
einstaklingseðlið og veröld þess
eru numin burtu. — Eða að Nir-
vana verði fundið ef menn af-
neiti veröldinni og fallvaltleik
hennar. Sumir halda að Nirvana
sé ástand án allrar vitundar um
fortíð og nútíð, líkt og þegar
lampi þornar eða þegar sæti er
brennt eða þegar loginn slokkn-
ar vegna þess að eldsneytið
þrýtur. Þetta er skýrt af heim-
spekingunum sem hinn síðasti
dauði hugsunarinnar. — En þetta
er ekki Nirvana því Nirvana er
ekki dauði eða tóm.
Og heimspekingarnir halda á-
fram að tala um frelsun, líkt og
hún væri aðeins neikvæð. Þeir
tala um vinda, sem hætta að
blása, um menn, sem með sjálfs-
tamningu hætta að greina milli
þekkjandans og hins þekkta eða
losa sig við hugmyndina um
veruleika og hverfulleika, eða
.kasta fyrir borð hugmyndum
sínum um gott og illt, eða sigra
girndir sínar með þekkingu. í
þeirra augum er Nirvana frels-
un. — Sumir, sem sjá þjáning-
una í heimi formsins, óttast
hugmyndina um form og leita
hamingju í heimili formleys-
unnar. — Sumir segja, að með
því að kanna eðli einstaklinga
og lífsins í heild sinni megi
glögglega sjá að engin eyðing sé
til og allt í tilverunni sé eilíft.
Þessa eilífð kalla þeir Nirvana.
Aðrir sjá eilífðina í samruna ein-
staklingssálarinnar við heims-
sálina. Enn aðrir skoða alla hluti
sem kraftbirtingu þess guðdóms,
sem allt snýr til að lokum. —
Sumir halda, að til séu tvö upp-
runaleg fyrirbrigði, frumefnið
og frumandinn — og til þessara
tengsla er sköpun allra hluta
rakin. Sumir halda að heimurinn
skapist af'lögmáli orsaka og af-
leiðinga og enginn skapari sé
nauðsynlegur. Aðrir halda, að
guð skapi alla hluti að vild sinni.
Með því að binda sig við allar
þessar heimskulegu hugmyndir
losna þeir aldrei af svefnmóki
sínu, og þeir halda svo að þetta
svefnmók sé Nirvana.
Aðrir halda að Nirvana sé sá
heimur, þar sem sjálf þeirra
ræður ríkjum óhindrað af öðr-
um sjálfum, líkt og marglitt stél
páfuglsins, eða þúsund flata
kristall, eða broddur þyrnis.
Sumir halda að veran sé Nirv-
ana. — Aðrir halda að ekki-veran
sé Nirvana. Aðrir segja, að ekki
sé rétt að greina á milli Nirvana
Gjafir fril Betel
Frá vinkonu í þakklátri minn-
ingu um Ásdísi Hinrickson,
$25.00.
Víðir Ladies Aid, $25.00.
Kvenfélag Frelsissafnaðar,
Baldur, Man., í minningu um
Mrs. Ingigerði Sveinson, $12.00.
Kristín Gauti, Toronto, í
minningu um Benedikt Jónas-
son, $5.00.
Mrs. Thora Laxdal, Mozart,
Sask., í minningu um eiginmann
sinn, Þorstein Sveinbjörn Lax-
dal, $20.00.
Mrs. J. I. Laxdal, Church-
bridge, Sask., 65.75.
Glenboro Lutheran Ladies Aid
Memorial Wreath Fund í minn-
ingu um Ingigerði Sveinsson,
$5.00.
Kvenfélagið Lilian, mjög
fallega borðdiska og bolla fyrir
12 manns.
Guðmundur Johnson, Betel,
“Pecon Rolls” fyrir alla á heim-
ilinu á afmæli hans.
Mrs. Margrét Albertson, Husa-
vick, blóðmör í kvöldmat fyrir
alla á heimilinu.
Lárus Nordal, smiður, Gimli,
viðgerðir upp á $5.00.
Mr. og Mrs. Guðjón Friðriks-
son, Betel, ísrjóma fyrir alla á
heimilinu á afmæli tveggja ára
veru þeirra þar.
Mr. og Mrs. Daníel Pétursson,
skyr og rjóma fyrir heimiliðið á
krýingardag drottningarinnar.
Mr. og Mrs. Baldwinson,
Baldwin Bakery, Winnipeg,
einn sjúkrastóll.
Miss Fríða Johnson, Toronto,
Ont., ísrjóma fyrir alla á heimil-
inu.
ORÐSKVIÐIR
Hversu miklu betra er að afla
isér vizku en gulls og ákjósan-
legra að afla sér hygginda en
silfurs. .
☆
Braut hreinskilinna er að forð-
ast illt; að varðveita sálu sína er
að gæta breytni sinnar.
☆
Drambsemin er undanfari tor-
tímingar og oflæti veit á fall.
☆
Betra er að vera lítillátur með
auðmjúkum en að skipta her-
fangi með dramblátum.
☆
Sá, sem gefur gætur að orðinu,
hreppir hamingju, og sæll er sá,
sem treystir á Jahve.
Orðskviðlrnir 16. kap.
CONGRATU LATIONS
to the lcelandic People on the
Occasion of the 64th Anniversary
of their Annual Celebration Day
at Gimli, August 3rd, 1953.
SARGENT FLORISTS
739 Sargenl Avenue WINNIPEG. Manitoba
Phone 74-4885
Minnumst
sameiginlegra erfða
á íslendingadeginum
á Gimli, 3. ágúst, 1953.
GIMLI THEATRE
HARRY GREENBERG, eigandi
og tilverunnar. Sumir halda að
Nirvana birtist þegar allir hafa
tileinkað sér hin tuttugu og
fimm sannindi, eða þegar kóng-
urinn tekur að ástunda hinar sex
dyggðir. Og til eru trúmenn sem
hyggja að Nirvana sé að komast
til paradísar.
öllum þessum hugmyndum er
hafnað, því þær eru tilraun til
að takmarka hið ótakmarkan-
lega. Surningunni er ósvarað og
hlið hins dýpsta leyndardóms
lokuð.
Indland, marz 1953
—Lesb. Mbl., 28. júlí
CONGRATU LATIONS
to the lcelandic People on the
Occasion of the 64th Anniversary
of their Annual Celebration Day
at Gimli, August 3rd, 1953.
Roberts & Whyte Ltd.
DRUGGISTS
Sargent at Sherbrook, Winnipeg
Phone 74-3353
Minnumst
sameiginlegra erfða
á íslendingadeginum
á Gimli, 3. ágúst, 1953.
Langrill's Funeral Home
W. F. Langrill
Licensed by Department of Health and Public Welfare
345 Eveline St. Selkirk, Man.
MINNUMST SAMEIGINLEGRA ERFÐA
á íslendingadeginum
á Gimli, 3. ágúst, 1953.
Notið
HAPPY GIRL
HVEITI
í alla yðar bökun
SOO LINE MILLS LIMITED
Higgins og Sutherland
WINNIPEG
GLENBORO CONSUMERS CO-OP.
Deálers in TRACTOR FUEL OIL AND GAS LUMBER SUPPLIES AND HARDWARE
•
Manager, M. C. COULING
GLENBORO Phone 100 MANITOBA
Minnumst
sameiginlegra erfða
á íslendingadeginum
á Gimli, 3. ágúst, 1953.
SIGLUNES MOTORS
Verzlar með
CHEVROLET, PONTIAC, OLDSMOBILE OG BUICK-BIF-
REIÐAR—CHEVROLET OG G.M.C.-FLUTNINGSBIFREIÐAR
VÉLAPARTAR AF FULLKOMNUSTU GERÐ
ASHERN. MANITOBA PHONE 30
I