Öldin - 01.11.1894, Side 23

Öldin - 01.11.1894, Side 23
ÖLDIN. 183 Að svo mæltu varp tíinn vaski kaf- teinn sér í söðulinn og sveiflaði Katrínu slqálfandi á bak fyrir framan sig. Síðan þeystu öll af stað út í náttinyrkrið. En á 'eftir sér heyrðu þau óp og háreysti, og her- klukkurnar lcváðu við í hverjum turni. Öll Wurzborg hlustaði forviða og skildi ekki í hver ólæti hefði yflr dunið, sjálfa hina helgu nótt. Bernliarð liertogi og Bertel. Þrem mánuðum eftir þá atburði, sem frá var sagt í síðasta kafla, hittum vér aft- ur Bertel lautenant í forsal einum við liina herbúðalegu smáhirð, sem Bernharð her- togi Weimar hélt ýmist í Nassá eða ann- arstaðar, þar sem hann þóttist þurfa að sitja. Það er vordagur í marzmánuði 1633. Aðstoðar foringjar gengu út og inn, og hraðboðar skunduðu í allar áttir, því að hertoginn hafði yflr að sjá rnikinn hluta af Þýzkalandi sunnan og vestan og tímarnir voru all-ískyggilegir. Hinn ungi fyrirliði varð fyrst að bíða all-langa stund, en þá var honum fylgt inn tii hertogans. Hann leit annars hugaruppfrá skjölum sínum og landsuppdráttum, eins og liann biði eftir á- varpi, en Bertel þagði. “Hver eruð þér?” spurði hertoginn hart og þurlega. “Gustaf Bertel, við finska riddaraliðið hans hátignar”. “Hvað viljið þér?” Ungmeiinið blóðroðnaði við og svaraði engu. Hertoginn tók ettir því og leit við honum með óánægjusvip. “Ég skil það”, sagði hann loksins, “þér hafið að venju vcrið í barsmíði við þýzku fyrirliðana út úr kvennamálum. En ég þoli ekki slíka hluti. Hermaðurinn á að geyma sverð sitt handa ættjörðu sinni.” r “Eg liefi í engu barsmíði verið, náð- ugi herra.” “Enn verra en það? Þá eruð þér kom- inn til að biðjast heimfararleyfis til Finn- lands. Það fáið þér ekki; ég þarf manna minna við ; þér verðið kyr, þar sem þér eruð, lautenant. Farið þér vel.” “Ég kem ekki til að biðja um heim- fararleyfi.” “Nú, hvern fjandann eruð þér þá að erinda ? Getið þér ekki sagt það blátt á- fram ? Fljótt og fáort! Felið prestunum að lesa bænir, og stúlkunum að roðna!” “Þér hafið, náðugi herra, tekið á móti hring af Gustaf konungi.......” “Þess minnist ég ekki.” “.... sem hans hátign bað yður, lierra hertogi, að skila fyrirliða einum við líf- vörð hans.” Hcrtoginn strauk hendinni um sitt háa enni. “Sá fyrirliði er dauður,” mælti hann. “Ég er þcssi fyrirliði, herra. Eg varð sár við Luzen og féll óðara í hendur keis- arans mönnum.” Hertoginn benti Bertel að ganga nær sér, virti hann vandlega fyrir sér og sýnd- ist ánægjulegri cftir. “Lokið dyrunum,” mælti hann, “og sctjist hér hjá mér.” Bertel lilýddi, og varð brennheitur í kinnum af óþreyju. “Ungi maður,” sagði hertoginn, “þér berið vitnisburðinn um kynferði yðar á enninu, enda krefst ég eklci annara sann- ana. Móðir yðar er bóndadóttir frá Stór- kyro á Finnlandi og heitir Emerentia Ar- onsddóttir Bertela.” “Nei, herra hertogi. Sú kona sem þéf nefnið, er elzta systir mín, borin í fyrra hjónabandi föður míns. Ég hefi aldrei séð móður mína.” Ilertoginn liorfði á hann forviða. “Nú þá,” sagði liann seinlega, um leið og hann blaðaði í skjalaveski sínu, “við skulurn samt tala um þessa yðar systir, Emerent- iönu Aronsdóttur. Faðir hennar liafði sýnt Karli kynungi níunda góða þjónustu

x

Öldin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.