Óðinn - 01.07.1922, Page 1
OÐINN
7.—12. BLAÐ
]ÚLÍ—DESEMBER 1922
XVIII. ÁR
Sjera Ólafur Ólafsson fríkirkjuprestur.
Þann 1. sept. þ. á. ljet sjera Ólafur Ólafsson af
prestskap hjer í Reykjavík. Þar sem hjer er um að
ræða fráför svo alkunnugs prests, sem lengi hefur
starfað og mikið unnið, þykir
vel við eiga að segja nú eitt-
hvað frá því, sem á dagana
hefur drefið öll þessl ár. En
auðvitað er það ekki nema fátt
eitt, og mest undan og ofan af,
sem sagt verður frá í stuttu
máli af svo löngu prestskapar-
starfi, ekki síst hjá manni, sem
starfað hefur eins mikið í kyrð
og þögn á heimilunum, í sjúk-
dómum, sorgum og þrenging-
um, og sjera Ólafur hefur gert.
Það er áreiðanlega ekki minsta,
eða ómerkasta starfið, sem prest-
arnir hjer vinna þannig, þó fæst-
ar sögur fari af því, eins og
eðlilegt er.
Sjera Ólafur hefur verið þjón-
andi prestur á 43. ár, varð
kandídat með fyrstu einkunn
1880 og vígður í ágúst sama
ár, og giftist skömmu síðar Guð-
ríði Guðmundsdóttur prests í
Arnarbæli. Fyrst var hann í
Vogsósaprestakalli nær fjögur
ár, síðan í Guttormshaga um 9 ár, og loks í Arnar-
bæli í 10 ár, en þó þjónaði hann í 4'/* ár meðan hann
var í Guttormshaga einnig Landprestakalli og Efri-
Holtakalli, og var það mikil yfirsókn. Fríkirkjuprestur
hjer í Reykjavík var hann svo ráðinn 1902 og vígði
kirkju safnaðarins á sunnudaginn í föstuinngang, 22.
febr. 1903. Þessi kirkja reyndist þó brátt of lítil, og
var stækkuð, eða öllu heldur reist ný kirkja, sem
hann vígði aftur 12. nóv. 1905, og er það sú kirkja,
sem enn stendur hjer. Söfnuðurinn hefur vaxið mjög á
þessum árum, svo í rauninni er kirkjan nú aftur orðin
of lítil, enda hefur kirkjusókn ávalt verið óvenju góð
hjá sjera Ólafi. Það eru ekki
nein smáræðisstörf, sem prestur-
inn hefur þurft að inna af hendi
á þessum árum, eins og sjá má
af því, að á þessu tímabili hafa
fæðst í söfnuðinum 3360 börn,
dáið um 1450 manns, fermd
um 1550 ungmenni, verið gift
1112 hjón og auk þess haldn-
ar um 1000 guðsþjónustur. Þetta
verða undir 9 þús. ýmiskonar
bein embættisverk, auk ýmsra
annara anna og erfiðis, sem
óhjákvæmilega eru því samfara,
að rækja slíkt embætti vel og al-
úðlega, svo að ekki er að undra,
þó einn maður sje tekinn að
lýjast á því, eftir 20 ára þjón-
ustu í söfnuði, sem sjálfsagt má
telja um 9 þúsund manns. Þó
hefur safnaðarfólk aldrei kvart-
að um það, að sjera Ólafur ynni
ekki störf sín eins reglulega og
eins vel og áður, heldur er það
hann sjálfur, sem hefur óskað
þess, að hætta þeim áður held-
ur en hann fari að láta á sjá, og koma að söfnuð-
inum ungum kröftum og óþreyttum, eins og hann telur
honum fyrir bestu. Þó segist sjera Ólafur álíta, að ef
vel eigi að vera í framtíðinni veiti ekki af tveimur
prestum við söfnuðinn, eins og er hjer við dómkirkj-
una, ef ekki eigi að vera hætta á því að slíta kröftum
þessa eina um aldur fram.
Auðvitað hafa prestsstörfin verið aðalstörf sjera
Ólafs, en þó hefur hann einnig fengið afkastað all-
Sjera Ólafur Ólafsson.