Óðinn - 01.07.1922, Side 19
OÐINN
67
Þessara og annara hlufa vegna var Þ. jafnan allan
sinn búskap búhöldur góður og með efnabestu bænd-
um sveitar sinnar. Hann unni þessari sveit hugástum,
enda hafði varið allri sinni löngu æfi í hennar þarfir,
og frá því hann var á 4. ári á einum og sama stað,
Grund, eða nær 75 ár. Allir Svínvetningar og fjöldi
Húnvetninga sakna því vinar úr stað, nú, er hann er
horfinn, því Þorsteinn sál. var aldrei flysjungsvinur,
heldur sannvinur. — ]eg hlakkaði altaf til, þegar jeg
átti von á Þorsteini heim til mín, og af vandalaus-
um mönnum, er jeg hef kynst, hlakka jeg fáa til að
finna hinumegin meir en Þorstein frá Grund.
St. M. ].
&
Ólafur Bergsveinsson.
Hann er fæddur í Sviðnum í Flateyrarhreppi, 1.
okt. 1867, foreldrar hans voru Bergsveinn Olafsson
óðalsbóndi í Sviðnum Teitssonar, en kona Olafs var
Björg Eyólfsdóttir dbrm. í Svefneyjum, eyjajarlsins,
er Matthías Jochumsson svo kallar og það með rjettu.
Kona Bergsveins og móðir Olafs var Ingveldur Skúla-
dóttir, mikils formanns og sjósóknara ]ónssonar, frá
Hallsbæ á Hellissandi undir Snæfellsjökli. Olafur ólst
upp hjá Olafi afa sínum og nam þar smíðar bæði á
trje og járn af honum, er þjóðhagan mátti kalla.
Hjá honum var hann þar til hann, 22. júlí 1892, gift-
ist Ólínu Jóhönnu Jónsdóttur, Þórðarsonar, vel met-
ins bónda á Barðaströnd, en kona ]óns var Kristín
Daníelsdóttir Hjaltasonar, Jónssonar prests að Stað í
Steingrímsfirði.
Vorið 1894 fóru þau að búa á Hvallátrum, og
hafa búið þar síðan miklu rausnarbúi, því efni fóru
árlega vaxandi, sökum mikils dugnaðar og framsýni.
Alls hafa þau eignast 9 börn, en mistu 1 pilt, 18 ára
gamlan, Eyólf að nafni, vel efnilegan, og var þeim
mikil eftirsjá að honum. Þess utan hafa þau alið upp
5 börn að mestu, og má telja það stórvirki, þar sem
barnahópurinn var svo mikill, enda lýsir þetta því, að
konan er samtaka bóndanum, og stjórn og hagsýni
hefur verið góð, eins innanhúss og utan.
Börn sín hafa þau hjón ástundað að menta sem
best, eitt á saumastofu og matreiðsluskóla, annað á
búnaðarskóla, þriðja á kvennaskóla, fjórða á sam-
vinnuskóla, fimta á gagnfræðaskóla, o. s. frv., enda
eru öll börnin mannvænleg, greind vel og námfús.
Ólafur hefur verið 18 ár í hreppsnefnd og oft þótt
sópa að honum þar sem víðar, og enda þótt stund-
um óvæginn, þegar svo hefur skift máli á mannfund-
um, að honum hefur' þótt kenna smámensku í skoð-
unum annara, því skapið er stórt og dómgreindin
góð. Hjálpsemi hans er kunn hjer um allar sveitir í
þörfum annara, og skal hjer að eins tekið eitt dæmi,
að síðasta harðindaveturinn, þegar margir áttu bágt,
tók hann 3 kýr af fátækum mönnum í öðrum sveit-
um og hjelt þeim þangað til grös greru. Hvað oft
hann hefur hlaupið undir bagga með hreppsbúum
skal ótalið, en oft hefur það verið, og síðast næsta
vor, svo að um munaði. — Hús öll á jörðinni hefur
Ólafur bygt að nýju,
og það svo góð og
stór, að hjer norðan-
megin Breiðafjarðar er
hvergi eins. Um jarða-
bætur má segja hið
sama. Nú er nálega öll
eyjan orðin að sljettu
túni og matjurtagörð-
um, enda er ánægja
að koma í Látur (sem
vanalega er kallað),
ganga þar norður á
hæðirnar, og líta yfir
öll mannvirkin, og þá
dettur manni í hug:
mikið hefur verið unnið hjer og ekki með styrk af
landsfje. Nú er svo komið að Ólafur hefur keypt SA af
jörðinni, sem er 116 hundruð að dýrleika, og mun lítið
í skuld. Næstliðið ár fjekk hann verðlaun úr styrktar-
sjóði Kristjáns konungs 9. (og átti það sannarlega skilið)
fyrir dugnað í búnaði. Hann er ram-íslenskur í anda,
og ann af alhuga ættjörðu sinni og öllum framförum.
Með búskapnum hefur hann stundað skipa- og báta-
smíði, mest á vetrum, og er ekki fyrir alla að gera það,
enda mun hann alls hafa smíðað^ nálægt 100 báta.
Það er mikið, og er auðþekt handlagið að fegurð,
frá annara smíðum. Ólafur hefu*- verið karlmenni að
burðum, en nú er heilsan biluð, og er það skaði stór
fyrir Flateyrarhrepp og fleiri.
Sveitungi.
0
Ólafur Bergsveinsson.