Óðinn - 01.07.1922, Page 22

Óðinn - 01.07.1922, Page 22
70 ÓÐINN Guöni H. Johnsen kaupmaður. Guðni Hjörtur Johnsen, kaupmaður og útgerðar- maður, andaðist að heimili sínu í Vestmannaeyjum 18. janúar síðastliðið ár aðeins 32ja ára gamall, eftir stutta legu í taugaveiki. Foreldrar hans voru þau hjónin Anna Sigríður Arnadóttir Þórarinssonar frá Hofi í Oræfum og Jóhann J. Johnsen, kaupmaður í Vestmannaeyjum, dáinn 1893, sonur J. Johnsen kaup- manns á Djúpavogi. Ráku þeir feðgar, faðir og afi Jóhanns sál., lengi verslun á Austurlandi, Djúpavogi, Seyðisfirði og víðar. En móðir Jó- hanns var Guðfinna Jónsdóttir prests Austmanns á Ofanleiti í Vestmanna- eyjum Jónssonar prests á Kálfa- felli í Fljótshverfi, af Höfðabrekku- ætt, sem komin er af Eyjólfi lög- manni Einarssyni í Dal og Helgu dóttur Jóns biskups Arasonar. En móðir sjera Jóns Austmanns og amma Guðfinnu var Guðný Jóns- dóttir, dóttir hins nafnkunna pró- fasts Jóns Steingrímssonar á Kirkju- bæjarklaustri og Þórunnar Hannes- dóttur Scheving. Með fráfalli Guðna sál. var stórt skarð höggvið í borg- arahópinn í Vestmannaeyjum, og áttu Eyjarnar þar á bak að sjá góðum og nýtum dreng, enda átti hann þar miklum vinsældum að fagna, sökum prúðmannlegrar fram- komu, drenglundar sinnar, óeigingirni og hjálpsemi við aðra, og mun hans verða þar lengi minst sem hins besta manns. Guðni heitinn ólst upp hjá móður sinni — föður sinn misti hann, eins og áður er getið, þegar hann var í bernsku — og naut hjá henni guð- rækilegs og góðs uppeldis og menningar; var hann hjá henni þar til hann kvæntist, nema þann tíma, sem hann var til náms annarstaðar, á Verslunarskólanum í Reykjavík og víðar. Hann kvæntist rúmt tvítugur eftirlifandi ekkju sinni, Jóhönnu Erlendsdóttur trje- smíðameistara í Reykjavík, og lifir hún mann sinn ásamt 3 börnum þeirra, en eitt mistu þau í æsku. Á fyrstu búskaparárunum reisti hann sjer steinsteypu- hús, sem er eitt af myndarlegustu íbúðarhúsunum í Vestmannaeyjum, ásamt útihúsum og fiskhúsum, sljett- aði og ræktaði að fuilu stórt tún úr óræktuðum móa. Reglusemi og góð umgengni einkendi alt, sem hann hafði undir höndum. Hann var meðal frumherjanna í mótorbátaútvegnum, sem hefur gerbreytt Vest- mannaeyjum fjárhagslega; var og einn af þeim, sem fyrst studdu að því, að Vestmanneyingar öfluðu sjer björgunarbáts. Hann var fyrir nokkrum árum byrj- aður að reka verslun, og vann sjer þar, eins og ann- arstaðar, fullkomið traust, sökum áreiðanleika í öll- um viðskiftum. Guðni heitinn var með hæstu mönnum vexti, fríður sýnum og karlmannlegur, bókhneigður maður og greindur vel. Honum var og mjög sýnt um íþróttir, hugprúður og lá ekki á liði sínu. Þeim, er þetta ritar, er kunnugt um, að tvisvar lagði hann sig í beina lífshættu, fil að bjarga mönnum úr lífs- háska. Hann mun og hafa verið talinn einhver allra besti bjarg- sigamaður í Vestmannaeyjum, með- an hann lagði stund á það í upp- vextinum. En það er starf, sem ekki er heiglum hent. — Æfiferill þessa manns var ekki langur, en hann byrjaði lífsstarfið ungur, og starfaði meðan tími vanst, og var því búinn að framkvæma meira en gerist um marga á hans aldri. Og víst mun samborgurum Guðna sál. og öllum, sem kynni höfðu af honum, mikil eftirsjá að honum, sem sjálfsagt hefði átt eftir að vinna margt gott og nýtilegt starf, hefði honum enst aldur íil. Og æ munu vinir hans og vandamenn með söknuði geyma minninguna um hann og hinar mörgu ánægju- stundir, er þeir nutu á hinu skemtilega heimili þeirra hjóna. — Hann var jarðsunginn við Landakirkju í Vestmannaeyjum og hvílist þar í kirkjugarðinum við hlið ættmenna smna, er þar hvíla í fimm liðu. Fylgdi honum til grafar meiri mannfjöldi en dæmi hafa verið til áður þar í Eyjum. Vestmanneyingur, & Sumarblíðan. Þessi blíða’ er himneskt hnoss, hugans eyðir meinum. Náttúrunnar kærleikskoss kveykir líf í steinum. Fnjóskur. Guðni H. Johnsen.

x

Óðinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.