Óðinn - 01.07.1922, Qupperneq 33

Óðinn - 01.07.1922, Qupperneq 33
ÓÐINN 81 Jón Ólafsson. enn er á lífi. — ]ón sál. bætti Galtarvík mjög, festi kaup á henni og bygði þar snoturt timburhús, hlöður og önnur hús, girti tún og engjar, og sljettaði túnið allmikið; hann var iðju- og starfsmaður hinn mesti, mjög vel látinn og hinn vandaðasti til orða og verka. Konum sínum báðum reyndist hann ástríkur eigin- maður og börnum sínum góður og umhyggjusamur faðir. — Börn hans af fyrra hjónabandi, sem á lífi eru, eru þessi: Sigríður, gift Bjarna Jónssyni bónda í Gerði á Akranesi: eiga 3 börn. Einar verslunarstjóri í Kefla- vík; á eitt barn. Ólafur Hvanndal prentmyndasmiður (chemigraph) í Reykjavík. Þórey, gift J. I. Gangvish í Saskatoon í Ameríku. Sigurdís, gift Ingiberg Þor- kelssyni trjesmíðameistara í Hafnarfirði; eiga 4 börn. Jónína Sesselja, gift Jóni Þórarinssyni í Gerðum í Garði; eiga 4 börn. Gísli bóndi í Vtri-Galtar-vík, kvæntur Guðborgu Ingimundsdóttur; eiga 2 börn. Jón sál. Ólafsson ljest 27. febrúar 1921, og var jarðsunginn að Innra-Hólmi 10. marts. Fylgdi honum margt af sveitungum hans til grafar. Hann lætur eftir sig gott mannorð og fagra minningu hjá ættingjum sínum og öðrum, er kynni höfðu af honum, eftir langt og heiðarlegt æfistarf. Einar Thorlacius. Jón Ólafsson frá Galtarvík. Dagroði dvínar, dimmir senn og kveldar; röðull hnígur í ránar skaut. Oldungur fylgir eyglóar dæmi, sá er hjer lengi sæmdar naut. Bygðin sem bóndi bestu kosta unni fylgir þjer nú á fremsta stig. Þakklát en þögul, þín hin göfga fóstra með klökkum huga kveður þig. Sólgulli sáir sumardísin bráðum, gróandi kemur í góðs manns spor. Avaxtar orðstír öldunga vorra þráð og í vændum þjóðlífs vor. Aldánna hilling öldurmenni föllnu hlýleg í bragði hampar dátt — minningu mannsins morgungyðja lyftir sólskini mót úr síðstu nátt. Guðm. Friðjónsson. Sl Staka. Þær sem að sjer ugga síst, er aftanroðinn kætir, mega oftast eiga víst, að árdagsroðinn vætir. Fnjóskur. sz

x

Óðinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.