Óðinn - 01.01.1932, Qupperneq 8
8
Ó Ð I N N
Sandá, sem er stórt vatnsfall og hættuleg vegna
sandbleytu. Var vöxtur í henni vegna úrkom-
unnar, en þó komst jeg klaklaust yfir hana,
var hún ekki á sund nema stuttan kaíla.
Sandá fellur í Hvítá alllangt niður á afrjetti
Hreppamanna. IJegar þangað kom var snjórinn
farinn að minka og hvarf loks með öllu, er
lengra dró niður i hlíðarnar. Gat jeg þá látið
hestana grípa í jörð, sem hresti þá mikið. Jeg
hafði þann sið, að binda upp á þeim hestinum,
sem bar töskuna i það og það sinn, og láta
hann elta. Pegar snjórinn fór að minka stóð
töskuhesturinn, selti hömina í veðrið meðan
hann sá til mín, en tók svo sprettinn, þangað
til hann náði mjer, en þá stansaði hann og sneri
sjer við aftur. Svona var veðrið vont.
Klukkan 12 næstu nótt var jeg kominn ofan
að Gullfossi. Öskrið i honum ætlaði hreint að
æra mig og hestana, því að við vorum allir yfir
okkur þreyttir. Jeg var þá búinn að fá ónota-
lega suðu fyrir eyrun, sem blandaðist söng, hljóð-
færaslætti og öskrum, sem mjer fanst jeg heyra úr
öllum áttum. Eldglæringar og Ijós, sem öll voru
á fleygiferð, sá jeg þá hvervetna. Mun þetta hafa
stafað af svefnleysi og þvi, að hvassveðrið var
búið að lemja stöðugt á mjer höfuðið í rúman
sólarhring. Nálægt Gullfossi kom jeg að afrjeltar-
girðingu Hreppamanna og var þar hlið á. Þegar
jeg kom í gegn um hliðið, varð Sokki svo fjör-
ugur, að jeg varla gat haldið honum í skefjum.
Hjelt hann þá að við værum komnir nálægt bæj-
um. Nokkrum spöl neðar kom jeg á eyðijörð-
ina Hamarsholt. Hafði túnið ekki verið slegið um
sumarið. Standsaði jeg þar um hálftíma og ljet
hestana bíta. Þá fann jeg ekki til svefns og hafði
heldur enga matarlist.
Jeg Ieitaði að götu frá eyðibýlinu, sem jeg
bjóst við að mundi liggja til næsta bæjar, og fann
hana. Var nú veðrinu farið að slota og klukk-
an að ganga þrjú um nóttina kom jeg að beit-
arhúsum frá Tungufelli. I’ar vildu hestarnir setj-
ast að, enda voru þeir þá búnir að halda áfram
með lítilli hvíld í rúma 20 klukkutíma, og þar
sem jeg var þarna ókunnugur leiðum, rjeð jeg
af að bíða þar birtunnar.
Jeg ætlaði að lála hestana inn í húsið, en dyrn-
ar á því voru of litlar. Þarna var nógur hagi,
og ljet jeg hestana hafa reiðtygin til skjóls. Ljet
jeg fyrir berast i hlöðunni og gróf mig í heyið.
Jeg var nú orðinn allur talsvert votur og föt þau,
sem jeg hafði í töskunni blotnuðu í vatnsföllun-
um. Sótti því að mjer kuldi og var liðanin ill
þarna í hlöðunni. Gat jeg ekkert blundað, enda
fann þá ekki til þess, að jeg væri syfjaður. Strax
er skímaði, tók jeg hestana og reið ofan að
Tungufelli. tJar bjuggu öldruð hjón, Jón Árnason
og Sigríður Jónsdóttir. Tóku þau mjer eins og
best mátti verða. Jón gaf hestunum græna töðu,
en konan hitaði handa mjer mjólk og sauð súpu
með nýju lambaketi, er hún bar á borð fyrir
mig af mikilli rausn. Mjer varð ekki um sel, er
jeg sá mig í spegli þarna í Tungufelli. Andlitið
var þrútið mjög og augun blóðhlaupin.
1 Tungufelli var ekki annað svefnhús en bað-
stofan. Þegar jeg hafði hresl mig þar og þurkað,
kvaddi jeg þessi góðu hjón og fór ofan að Gíg-
jarhóli í Biskupstungum, sem er stuttur vegur.
Þar fjekk jeg að vera í tvær nætur við besta
beina hjá heiðurshjónunm Guðna Diðrikssyni
og Helgu Guðmundsdóttur. Klukkan 12 á fimtu-
dagsnótt gat jeg loks sofnað, eftir að hafa vakað
112 klukkutíma samfleytt. Svaf jeg þá 12 tíma i
einum dúr.
Það er að segja af Sigurði á Beinakeldu, að
þegar hann var að koma heim úr göngunum,
þóttist hann sjá mig í hálfrökkri riða Sokka og
teyma Bauð niður með læk einum norður í
i Svínadal. Taldi Sigurður mig þá af.
Tungnamenn fóru í göngur strax og jeg kom
suður. Sögðu þeir mjer að engum kunnugum
hefði dottið í hug að ríða Jökulfallið þar sem
þeir sáu slóð hesta minna yfir það. Undruðust
þeir það og þó hitt ekki minna, að jeg skyldi
koma hestunum upp úr flóafeninu, sem þeir
töldu vera alófært fyrir hesta.
Þess vil jeg geta að lokum, að nóttina, sem
jeg gekk um gólf í hríðinni, fanst mjer jafnan
einhver vera við hliðina á mjer, og stappa þegj-
andi í mig stálinu með að halda mjer vakandi.
Var þelta svo rikt í tilfinning minni, að mjer
fanst oft jeg verða að gá að þvi, til hvorrar hliðar
jeg sneri mjer við á röltinu, svo að jeg ræki mig
ekki á þann, er stöðugt gekk við hliðina á mjer.
Jeg gat þess í upphafi, að jeg hefði keypt Rauð
til ferðarinnar. Var hugmynd mín að selja hann
að henni lokinni. Við það hætti jeg alveg og lifir
hann hjá mjer í hárri elli. Sokka minn ljet jeg
fella 26 ára gamlan. Þann dag, sem hann var
skotinn, fór jeg einförum.
Jón H. Þorbergsson.