Óðinn - 01.01.1932, Blaðsíða 46

Óðinn - 01.01.1932, Blaðsíða 46
46 ÓÐINN Brynjólfur Árnason framkv.stj. Þessar myndir eru af Brynjólfi Árnasyni framkvæmda- stjóra, sem andaðist á Akureyri 14. nóv. 1927, og konu hans Valborgu, sem er dönsk að ætt, fædd Larsen. Brynjólfur var fæddur 7. ágúst 1886 á Saurbæ í Eyja- firði. Foreldrar hans voru Árni Jónsson og Liija Ólafs- dóttir, sem þá bjuggu þar á nokkrum liluta jarðarinnar, en fluttust siðan að Melgerði t sömu sveit og bjuggu þar í nokkur ár myndarbúi. Tíu ára gamall misti Brynj- ólfur föður sinn, en móðir hans giftist aftur Hallgrimi Jónssyni frá Hólshúsum og reistu þau bú á Kambsfelli, en fluttust þaðan aftur eftir tvö ár að Miklagarði. Ólst Brynjólfur upp hjá móður sinni og stjúpa uns hann gekk inn í Latínuskólann haustið 1905, en þaðan útskrif- aðist hann vorið 1910. Síðan stundaði hann nokkur ár laganám við Háskólann i Kaupmannahöfn, en tók ekki próf. Hneigðist hugur hans að kaupsýslu síð- ustu háskólaárin, eins og margraannaraum líktleyti, þegar gróðahugur stríðs- áranna var i algleymingi. Brynjólfur settist að hjer heima 1918 og varð framkvæmdastjóri Súkku- laðiverksmiðjunnar Freyja i Reykjavik, og var hann að nokkru leyti eigandi hennar. En á krepputím- unum, sem gengu hjer yfir nokkru siöar, átti verk- smiöjan örðugt uppdrátt- ar, enda voru þá nokkrar hömlur lagðar á starfsemi hennar af stjórnarvöldum landsins. — — Mun hún hafa hætt starfsemi 1922. Fluttist Brynjólfur 1924 til Akureyrar ogstundaði þar málaflutning og innheimtu- störf það sem eftir var æfinnar. Að honum látnum flutt- ist kona hans til foreldra sinna i Kaupmannahöfn. Brynjólfur var hvers manns hugljúfi og urðu allir, sem náin kynni höfðu af honum, vinir hans. Varð hann mörgum harmdauði, er hann hnje i valinn fyrir aldur fram. Ó. J. Hv. »Það var nú verra,* sagði jeg, »en eruð þjer viss um það?« — »]á«, sagði hún. — »Þjer hatið þá Guð og bölvið honum?«—»Nei, nei, hvernig ætti jeg að gjöra það; hann hefur altaf verið mjer svo góður*. »]á, en þeir sem drýgja syndina móti Heilögum anda, hata Guð og vilja ekkert af honum þiggja, og þeir hata Jesúm og hans orð og ákalla hann aldrei, og þegar Heilagur andi minnir þá á að biðja, segja þeir: Svei þjer, og skirpa á hann. — Þetta gjörið þjer ekki«. »Nei«, sagði hún, »það er satt«. »Þegar jeg heyrði yður hljóða í alla nótt og vera áð hrópa á Guð og Jesúm Krist, þá hugsaði jeg, að hvað sem þessi kona kann að hafa drýgt, hefur hún ekki drýgt syndina móti Heilögum anda«. ]eg gat svo sannfært hana um þetta og hjelt því fram, að Jesús mundi reka út illu andana. Hún andvarpaði stundum þungan og rak upp einstaka hljóð, en var annars róleg. Allir farþegarnir voru komnir niður smátt og smátt og hlustuðu á, og það var eins hljótt og í kirkju. Svo spurði hún, hvort ekki væri hægt að syngja. Jú, jeg hafði með mjer danska sálmabók og nokkur eintök af dönskum sunnudagaskóla- söngvum. Jeg útbýtti þeim meðal farþeganna og svo sungum vjer: »Vor Guð er borg á bjargi traust*. Þegar komið var fram í 3. versið fór hún að gráta, heitt og hljótt. Mjer þótti vænt um, því jeg vissi að henni mundi ljetta við það. Svo las jeg kafla úr nýja- testamentinu á dönsku og bað stutta bæn. Svo sung- um við eitthvert vers. Hún grjet ennþá, og var al- veg róleg og þakkaði fyrir. Svo sagði jeg: »Nú farið þjer inn og háttið og svo verðið þjer sofnuð eftir litla stund og sofið í nótt, og svo tölum við saman á

x

Óðinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.