Óðinn - 01.01.1932, Blaðsíða 9

Óðinn - 01.01.1932, Blaðsíða 9
ÓÐINN 9 Freymóöur Jóhannsson málari. Hjer flytur Óðinn mynd af landskunnum islenskum listamanni, sem þó aldrei hafa ver- ið gerð þau skil opinberlega, sem getu hans og hæíileikum sæmir. Freymóður Jóhanns- son er fæddur 12. sept- ember 1895 í Stærra- Árskógi við Eyjafjörð. Foreldrar hans voru hjónin Hallfríður Jó- hannsdóltir og Jó- hann IJorvaldsson, sem voru af hinni fjöl- mennu Krossa- eða Böggvistaðaætt, en af þeirri ætt voru jafn- merkir menn og Jón- as Hallgrimsson og Jóhann Sigurjónsson. Yoru þeir Jóhann Sig- urjónsson í móðurætt og Freymóður í föður- ætt að öðrum og þriðja lið. Móðir Freymóðs er skáldhneigð og listelsk, en faðirinn var hagur maður með afbrigðum á trje og margskonar efni. Freymóður ólst upp við fátækt og misti föður sinn er hann var 14 ára að aldri. Flutt- ist móðir hans þá til Ak- ureyrar ásamt þremur börnum þeirra hjóna og var Freymóður yngstur þeirra. Varhonum komið þar í gagnfræðaskóla, er hann útskrifaðist úr 1915. Þá var Freymóður kennari farskólans í sveit sinni einn vetur, en fór svo til Reykjavik- ur og vann sem málaranemi hjá Ástu málara- meistara Árnadóttur fram til haustsins 1916. Gat hann þá fengið loforð um peninga á Akureyri til náms erlendis, og fór því til Kaupmanna- hafnar sama haustið með það fyrir augum að komast að námi við listaháskólann þar. kyrsta veturinn í -Höfn gekk hann í »Teknisk Selskabs Skole« og lauk það ár námi sem mál- arasveinn, en undirbjó sig jafnframt undir próf inn í listaháskólann, sem hann og tók með prýði haustið eftir. Var hann þá nemandi listaháskól- ans næsta ár og Rostrup Böyesen aðalkennari hans. Lauk Freymóður við forskólann á einum vetri, en það var talið þá alt að þriggja velra nám. Jafnframt lauk hann námi í báðum deildum perspektiv- skólans, en það var altaf talið tveggja vetra nám. Er hvorltveggja þetta svo fátitt að nærri má heita eins dæmi. í listaháskólanum voru þá 6 svo kölluð frí- pláss. Eitt þeirra losn- aði á nýári og fjekk Freymóður það, þó hann væri útlendingur, og má af því marka dugnað Freymóðs og álitið á honum. Kenn- ari hans í perspektiv- skólanum taldi honum trygg fyrstu verðlaun, ef hann gengi undir prófið um vorið. En hjer fór sem oftar um íslendinga, að efnaskortur hindraði, því loforðin um pen- ingalán,er honumhöfðu verið gefin, brugð- ust á miðju námsári. Varð Freymóður þá að hverfa heim þetta vor án þess að taka próf, enda voru þá (1918) illar aðstæður um peninga og atvinnu í Höfn, ekki síst fyrir útlendinga. Af íslendingum, sem voru við nám í listaháskólanum í Höfn samtimis Freymóði, má nefna Kjarval málara, Nínu Sæ- mundsson myndhöggvara og Sigurð Guðmunds- son húsameistara. Nú dvaldi Freymóður hjer heima um fjög- urra ára skeið. Fór hann fyrsta sumarið til Jan Mayen með Snorra-leiðangrinum frá Akureyri, málaði nokkrar myndir af eynni og skrifaði ferðasögu þeirra fjelaga, er birtist í Óðni og sið- ar i Lögbergi vestan hafs. Næsta ár kvongaðist Freymóður Jóhannsson.

x

Óðinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.