Óðinn - 01.01.1932, Blaðsíða 30

Óðinn - 01.01.1932, Blaðsíða 30
30 ÓÐ I N N Kvæði og vísur. Eftir Benedikt P. Gröndnl. Gaman og alvörubragur til hr. bóksala Guðm. Gamalíelssonar á fimtugsafmæli hans 25. nóv. 1921. Hamingjan þjer hossi dátt, heilla-vinur, dag og nátt! Saga, laus við fólsku-fár, fimtiu nú heiðurs ár ritar inn í »reikning« þinn, og ritar gulli bókstafinn. Pví »saldóin» mun sýna þar, að svikalaus þín æfin var. ★ ★ * Marga holla hugarsmíð þú hefur sent á »þrykk» fyr’ iýð bæði’ í prósa og póesí, já, pistla og guðspjöll nærri því, og grallara marga, svo gelur hver gaulað kerling á landi hjer fult eins vel og hann frægi Pjetur, þótt fagurt gali hann sumar og vetur. Og biblíur hefur þú bundið inn bæði í dýra og orma skinD, oggyltþærí sniðum úr gullnámunni, sem grófu þeir suður i Vatnsmýrinni! Nei, þetta er lygi — þú slyngur »slóst« þjer slatta af íslandsbanka gulii. Pað dugir ei, þótt hann Dúi bulli um »dauðan« banka! — Par gull þú tókst þjer. Og löngum barstu ljetta brá, því Ijúf þjer verði ellin grá! Og hress og glaður í hugar borg þú hefur þrammað um lífsins torg, og ekkert skeytt um andviðrin, nje önug »maura«-fúlviðrin; en hugsað mest um bjartans ró og hlegið jafnt á landi og sjó. Aldrei hefur þú iðkað dans, en óspart heima hjá Rósinkranz »vittiglieðunum« varpað fram, og vill þó hvorugur ykkar »dramm«.— Og þú hefur siglt um öll heimsins höf og heimsótt tvisvar hann Björn í Gröi! í Paris og London »legið við« og líka róið hjer fram á Svið! í Kaupinhöfn gekstu sem köttur grár, af kónginum þáðirðu »Lemon«-tár. Með Arna þú fórst í Berlínar-borg. Pið Bismark löbbuðuð þar um torg! Og þá var nú spjölluð þýskan rik, og þá var nú gasprað um pólitík! Pú heyrðir Leipzig hornaflokk og heima’ í Kjósinni spunnið á rokk! Og Lorelei-hörpuslátt lieyrðir þú, en hún fjekk ei gint þig, sú káta frú — þú bara tókst ofan þinn brennivíns-hatt og báturinn áfram sjer snúðugt vatt! En »pían« varð hvumsa og hörpuna misti, en heilsinna slapst þú og varst sá fyrsti, er sigldir heill yfir þau gjálfrar-göng. En gumar ei síðan fá heyrt þann söng. Ó, hefði’ ’ann Heine heyrt þessa sögu, sá hefði víst gert eina listuga bögu! Og ei fæ jeg talið alla þá spretti, sem átt hefur þú á þessum hnetti, en ætti’ jeg að setja það allt á blað, heil Odyssevsdrápa mundi það! x ★ * Nú þökk fyrir hálfa heiðurs-öld! hljóttu sólfagurt æfikvöld dáðríkan eftir daginn, og dagurinn verði langur, sem byggir þú þennan bæinn, og bagalaus æ þinn gangur. Nú þökk fyrir ötult þarfa-starf! Pjóðinni gafstu dýran arf, er þroska má þegnsins anda, og þau munu lengi standa menningarverkin þín völdu. Pau vara öld fram af öldu. Já, þökk fyrir hálfa heiðursöid! Og hamingjan fyrir þjer beri skjöld og gefi’, að þú lifir sem lengst meðal vor, og Ijetti þjer hvert þitt heiðurs spor. Hún gefi þjer elli eins varma og vor, Vale carissime! Gradulor! Símskeyti til Hannesar S. Blöndals á sextugsafmæli hans. Lifðu stráheill sjerhvert sinn — þitt sextíu ára drekk jeg minni — uns hallar þú þjer, Hannes minn, að himnarikis veðdeildinni. Sfmskeyti til sr. Ásmundar Gíslasonar prófasts á Hálsi á 50 ára afmæli hans. Lífsins öldur ljúft þjer dúi, Ijóðafjöldinn ósk þá ber. Fjúkin köldu frá þjer snúi. Fái skjöld sinn gæfan þjer. Hálfa öldin var sem vor, væni höldur. Gradulor! Símskeyti. Halld. Pórðarson bókbindari sjötugur. Æskumanna ástvinur, öllum hýr og góðsamur, sjötugur, en síungur, sjertu jafnan blessaður! Hvað er mitt Iíf? Hvað er mitt lif? — Ein lítil grein í lífsins miklu bók. Hvað er mitt líf? — Eitt lauf á meið, sem lifsins stormur skók. Hvað er mitt lít? — Ein bára blá, sem berst um eilíf höf. Hvað er mitl líf? — Eitt örsmátt ljós, sem ei samt slökt fær gröf. Úr brjefi til sr. Ásmundar Gíslasonar á Hálsi árið 1919. »HrollIausar kveðjur« hef jeg fengið frá þjer, fornvinur ástkær, nú um sólhvörf döpur. Ó, hversu hlýtl! þar engin nepja nöpur næddi um hjartað, sólskin var þá hjá mjer. Fjörugt þinn andi fór á kostum mestu frjálslegur, bjartsýnn, skemtilega glettinn, eins og til forna tókstu töfrasprettinn. Tárhreinar hjartans þakkir hafðu bestu. Heilræði. Mínúturnar máttu ei missa svona, drengui! Lifið hleypur hart sem fley, hratt að dauða gengur. ★ * * Hver æskustund, sem illa’ er sóað braut, í ellínni fær valdið sárri þraut. ★ ★ * Vegarspoltann veldu þjer, vinur, heldur lengri, en að hleypa’ í keldu ker á kaf með gætni engri. ★ * * Um að gera að alt sje rjelt, engum neitt má skeika; alt á sinn stað altaf sett, ekki’ er gott að reika. ★ ★ # Pótt hamingjusamur sjertu, samt altaf gætinn vertu. Pví æfina sina veit enginn öll fyr en hún er gengin,

x

Óðinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.