Óðinn - 01.01.1932, Side 29

Óðinn - 01.01.1932, Side 29
Ó Ð I N N 29 Siguröur á Derunesi. Sigurður Antoníusson bóndi á Berunesi í Beruneshreppi í Suður-Múlasýslu er fæddur í Gautavík 7. marts 1859, sonur Antoniusar, frá Gautavik Antoníussonar bónda á Berunesi Jóns- sonar. Kona þessa Jóns, föður Antoniusar, var Þóra Guðmundsdóttir frá Dísastöðum i Breið- dal, Árnasonar, Jónssonar prests á Hálsi við Djúpavog (d. 1757), Gissurssonar. Móðir Sigurðar á Berunesi, kona Antoníusar, var Sigríður Sigurð- ardóltir, Gunn- laugssonar prests á Hallormsstað, Þórðarsonar. Sig- riður misti mann sinn, Antoníus, 1872, en giftist aftur 1873 Jóni Pjeturssyni frá Berufirði, og bjuggu þau á Berunesiþar tilár- ið 1883, en flutt- ust þá til Vestur- heims. Kona Sig- urðar á Berunesi er Jóhanna Jónsdóttir, fædd á Núpi á Berufjarðarströnd 21. febr. 1869. Jón faðir hennar var Einarsson, bónda í Meðalnesi Jónssonar og Þórdísar Erlendsdóttur. Þegar Jón Pjetursson fluttist til Vesturheims fjekk Sigurður 2/s parta úr Berunesi og keypti síðar Vs af Stefaníu systur sinni. Ekki fór hann þó sjálfur að búa á jörðinni fyr en alllöngu síðar, en bygði hana frænda sínum, Jóni Stefáns- syni, sem áður bjó í Gautavík, og var hjá hon- um vinnumaður. En nálægt aldamótunum tók Sigurður sjálfur við jörðinni, og 1902 kvæntist hann Jóhönnu konu sinni. Hafa þau eignast tvær dætur, Sigríði og Kristborgu. Jón Stefánson misti konu sína, Herdísi, sumarið 1899 og brá þá búi, en dvaldi hjá Sigurði til dauðadags. Áður en Jón Stefánsson hætti búskap var mikið búið að bæta jörðina, sljetta og girða bæði tún og engi og leggja vatnsleiðslu til bæjar. Hafði Sigurður haft forgöngu í þeim umbótum, enda hefur þeim verið vel við haldið og þær auknar, eftir að hann tók við, svo að jörðin er nú hálfu betri en þegar Jón Pjetursson vjek frá henni, eða vel það. 1926 kom Sigurður upp rafleiðslu, sem kostaði 5000 krónur. Sigurður varð fyrstur bænda hjer með túngirðingu, vatns- leiðslu og rafleiðslu, og líka fyrstur til þess að setja vjel í bát sinn. lbúðarhús sitt bygði hann upp 1907, og eru öll hús á jörðinni vel bygð og umgengni prýðileg. Á Berunesi er sóknar- kirkjan og hefur Sigurður hrest mikið upp á hana og kirkjugarðinn. Þar er einnig símstöð .. frá 1914. Er mikil mannaumferð á Berunesi og gest- risni þar við- brugðið, og var einnig svo með- an þau Jón og Herdís rjeðu þar búi. Ein varp- eyja fylgir jörð- inni og hefur Sigurður bætt varpið mikið, svo að eyjan gefur nú miklu meira af sjer en áður „ . var. Sigurð má Johanna a Berunesu telja bændafrom- uð hjer í sveit. Hann er annar efnaðsti bóndi sveitarinnar. En hann hefur miklu til kostað, og er það ekki alt hjer talið. Sigurður er maður í hærra lagi og þrekinn, en er nú orðinn nokkuð heilsuveill. í fyrstu finst manni hann vera íhalds- samur, ef ekki afturhaldssamur. En samt er öðru nær en að svo sje. Hann er sannur framfara- maður og hefur verið stoð og stylta sveitarinnar, sannur heiðurs- og sómamaður sinnar stjettar, og þau hjónin bæði. Auðvitað kemur altaf maður í manns stað. En vandfenginn verður maður í sæti Sigurðar, og óskum við sveitungar hans, að hann sitji þar sem lengst. G. S. 0 Brjef Gröndals. Sendibrjef frá Benedikt Sv. Gröndal til ýmsra manna, 055 frá nokkrum mönnum til hans, komu út siðastl. haust í Bókaverslun Porsteins Gísla- sonar, skemlileg brjef og segja hispurslaust frá ýmsu, sem hjer gerðist um það leyti, sem pau eru skrifuð. Kosta 4 kr.

x

Óðinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.