Óðinn - 01.01.1932, Page 35
ÓÐINN
35
Ólafur J. Hvanndal.
óðinn hefur áður, í 22. árg. (1926) flutt
mynd og æfiágrip ólafs Hvanndal, og er þar
sagt frá stofnun
prentmyndagerð-
ar hans og þeim
erfiðleikum, sem
hann átti við að
striða meðan
hann var að
koma þvi fyrir-
tæki á fót. En
nú er það orðið
fast i sessi, hefur
aukið tæki sin,
fengið stærra
húsrúm og meiri
og meiri verkefni
eftir því sem árin
liðu.Sýnir það sig
betur og betur,
hvert nauðsynja-
verk það var,
að koma prent-
myndagerðinni
hjer upp, og á
dugnaður ólafs
og þrautsegja, á-
hugi hans á verk-
inu og listfengi,
alla viðurkenn-
ingu skilið. Tveir
menn vinna nú
með honum að
prentmyndagerð-
inni og bafa nóg
að starfa allan
ársins hring, því
notkun mynda í
blöð, timarit og
bækur fer sivaxandi. — 1 greininni hjer næst á
undan er sagt frá bróður Ólafs, Gisla bónda í
Galtavík, sem dáinn er fyrir nokkrum árum, og
hafa þeir bræðurnir báðir verið miklir dugnað-
aðarmenn, hvor á sínu sviði. Faðir þeirra, Jón
bóndi ólafsson í Galtavík, andaðist 1921, og er
mynd hans og æfiágrip í óðni 1922.
ólafur hefur haft áhuga á mörgu, hefur nokk-
uð fengist bæði við landbúnað og sjávarútveg, er
útlærður trjesmiður, lærður teiknari og skilta-
gerðarmaður, en hefur einnig fengist við verslun
og verið ferðamannatúlkur. Má af þessu sjá, að
maðurinn er fjölhæfur og að hann hefur haft
áræði til þess, að
leita fyrir sjer
ogbrjótastáfram,
þangað til verk-
efnið var fundið,
sem hann gat
fest yndi við, og
þar sem áhugi
hans og dugn-
aður gat að
fullu notið sín,
en það verkefni
fann hann í
prentmyndagerð-
inni, sem hann
hefur nú lengi
variðtilöllustarfi
sinu, enda líka
flutt með henni
nýja iðngrein inn
i landið. Prent-
myndagerð Ólafs
Hvanndal hefur
áður verið í húsi
prentsmiðjunnar
Gutenberg í t*ing-
holtsstræti.en var
í fyrra flutt í
steinhúsið í Mjó-
stræti 6, þar
sem prentsmiðj-
an Acta hefur
til skamms tíma
haft bækistöð
sina. Flestallar
myndir, sem ís-
lensk blöð og is-
lenskar bækur flytja nú af innlendum mönnum
og mannvirkjum, húsum, landslagi o. s. frv.
eru gerðar hjá ólafi Hvanndal. Hefur hann fylgt
þeirri reglu, að taka eitt eintak af hverri
mynd, sem hann hefur gert frá bvrjun, og festa
inn í stórar spjaldskrár til geymslu, og verður
það með tímanum dýrmætt safn, sem hann ætl-
ar Landsbókasafninu.
Olafur J. Hvanndal.