Óðinn - 01.01.1932, Page 48

Óðinn - 01.01.1932, Page 48
48 ÓÐINN veg og Danmörk, hann sem talað er um í »Undir- búningsárunum«, og biskup Bang og sjera Klavnes, buðu mjer heim til sín er fundunum væri lokið. Eitt kvöld vorum vjer eftir kl. 8 heima hjá biskup Bang, vjer vorum eitthvað 20, nærri því frá jafnmörgum þjóðum. — Síðast krupum vjer niður allir saman og báðum hátt, hver á sínu máli. Biskupnum þótti vænt um að heyra mig biðja á íslensku og faðmaði mig að sjer. Einn af forgöngumönnum fundarins var prins Óskar Bernadotte, sonur Óskars II. Svíakonungs, stór mað- ur vexti og heldur stórskorinn í andliti. Hann var þá formaður sænska K. F. U. M.-sambandsins. Konung- ur hafði ætlað að koma til Kristjaníu þá daga, en var hindraður af einhverjum störfum í Gautaborg. Hann bauð í veitslu öllum fulltrúunum, um 11 hundr- uð, sem höfðu fulltrúaumboð, aðrir fundarmenn, um 9 hundruð, voru gestir fundarins. Var það boð haldið í konungshöllinni kl. 5 síðdegis, og hafði prinsinn for- sæti í umboði konungs. — Þegar komið var inn í höllina var kvenfólki, sem með var boðið, en það voru konur ýmsra fulltrúanna, vísað inn í fatageymslu til hægri handar, en karlmönnum til vinstri. Tókst þá svo óheppilega til að prófessor frá Peking var vísað inn kvennamegin. Viltust þjónarnir á því, að hann var í síðum, kínverskum silkibúnungi, með langa hárfljettu niður á bak. Þegar hann sá sig umkringdan af tóm- um konum, sem voru að snurfusa sig, varð hann dauðhræddur og flúði hið skjótasta, og komst inn til karlmannanna. Vakti þetta græskulaust gaman hjá mönnum. Síðan var gestum vísað inn í móttökusalinn og stóð prinsinn við dyrnar, og bauð menn velkomna. Adjútant hans tók á móti kortunum og kynti prins- inum þjóðerni manna og sagði prinsinn fáein orð við hvern, ýmist á ensku, þýsku eða frönsku, og á sænsku við alla Skandinava. Við mig sagði hann á sænsku: »Velkominn með svala frá jöklum og hita frá Heklu*. — Eftir móttökuna var gengið í afarstóran matsal og voru borð meðfram veggjum. Voru á einum stað diskar og áhöld og á öðrum maturinn. Það var borð- að standandi og hjálpuðu menn hver öðrum og var mikinn veisluklið að heyra hvaðanæfa. Voru gnóg- leg föng og marga rjetti um að velja. Gekk sú máltíð greitt og stóð yfir góðan hálf-tíma. Alt var svo frjáist og óþvingað. Eitthvað annað en að sitja með saman- klemda arma við borð í 2—4 tíma. Að áti loknu tal- aði prinsinn og bar veislugestunum kveðju konungs og lýsti því, hvílík gleði það væri að hafa svo marg- ar þjóðir samankomnar í höfuðstað ríkisins. Var gjörð- ur besti rómur að ræðunni og síðan dreifðust menn um sali hallarinnar í flokkum. — Að endingu kom stór söngflokkur og söng nokkur lög, og þar á meðal: »Sjá þann hin mikla flokk sem fjöll,« með lagi Griegs, sem þá var óþekt. Söng sænskur prestur það sem sóló, sjera Lundén frá Gautaborg, nafnfrægur einsöngvari og söng kórið undir bocka chinsa og urðu allir hrifnir. Eftir það fór lagið að ryðja sjer til rúms á Norður- löndum. — Svo fóru menn að tínast burtu, og þegar gengið var niður stigann, stóðu þar þjónar í röðum og buðu vindla. Varð jeg því feginn og reykti með mestu ánægju. Þetta var ógn algengur vindill. ]eg hitti úti á tröppunum mann frá Bayern. Hann furð- aði sig á því, að jeg skyldi reykja konunglegan vindil eins og einhvern njóla; kvaðst hann geyma sinn til minja og ætla að gefa föður sínum hann, er heim kæmi, því að hann hjeldi svo mikið upp á alt, sem konunglegt væri. Mjer fanst minn vera nákvæmlega eins og dágóðir vindlar, sem maður fær hjá öðrum dauðlegum mönnum. Si Vísa eftir Gest Pálsson. (Þessa vísu afhenti Gestur Pálsson skáld Lárusi H. Bjarnason, síðar hæstarjettardómara, á afmælisdag Lár- usar 27. marts 1885. — L. H. B. hafði hjálpað honum eitthvað i bili við útgáfu »Suðra«): Skemtu þjer við að skoða skritna lifsins boða, glópsku’ og vit og gæfu’ og þraut. Orktu ótal sögur, orktu kvæði’ og bögur, Iýstu sannri lífsins braut. © Elsta þingvfsan, sem menn vita til að kveðin hafi verið, er eftir Benedikt Gröndal um Jón alþm. i Tandraseli, en B. Gr. var þing- skrifari fyrst eftir að Alþingi var endurreist, og er vís- an skrifuð á handrit af ræðu, sem Jón hjelt en Gröndal skrifaði: Líkur Andra þings við þrá, þrár í randajeli, riður gandreið Alþingi’ á Jón í Tandraseli. Rikisprentsmiðjan Gutenberg.

x

Óðinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.