Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1907, Qupperneq 19

Eimreiðin - 01.05.1907, Qupperneq 19
99 komu langbuxur, háar mjög; en smámsaman urðu þær líkari því, sem nú tíðkast. Sama snið var á sparibuxum og hversdagsbuxum, enda urðu sparibuxurnar vanalega að hversdagsbuxum, er þær fyrntust. Að ofan voru menn hvern dag í »úlpum«: þær höfðu sniðlausan bol og stand- kraga, náðu niður á mjaðmir og voru oftast kræktar að framan með krókapörum. Til sparibúnings höfðu menn fyrst að ofanverðu stutt- treyjur, er varla náðu niður á miðjan búk. En þær lögðust brátt niður og voru þá teknar upp »mussur«, mjaðmasíðar. Voru þær eigi ólíkar því sem »jakkar« eru nú, og mun mega kalla þá framhald af mussunum. Fyrst höfðu menn alment »pípuhatta« á höfði frá bæ. En er þeir upp- lituðust, voru þeir lækkaðir og svo hafðir hverndag. Bráðum komu þó kollóttir hattar, oft gráleitir, og höfuðföt urðu fjölbreyttari með tímanum. Ferðaregnföt voru fyrst síðhempur: víðir vaðmálsbolir, skósíðir, klofnir að aftan neðan til, hneptir framan, en þó oft með koparpari efst; ermar víðar. Hlífðu þær vel, en þóttu brátt ófagrar og lögðust niður. Tókust þá upp svo nefndar »kafeyjur«. Þær voru líka með ermum, en ekki eins víðar og höfðu belti spent um mittið.. Fylgdi þeim kragi, sem náði niður fyrir beltið og var aftast áfastur þeim um hálsmálið. Þær þóttu tilkomumiklar útlits. Þó hafa þær nú horfið fyrir útlendum regnfötum. Um kvenna búning skal þess getið, að fyrrum höfðu þær ekki »líf- stykki« né »bol«, sem nú tíðkast, heldur upphlut, sem festur var ofan við pilsið (var upphlutur þess), hafði föst hlýru, sem lágu yfir axlirnar, svo ekki þurfti að herða um sig, Að framan var hann reimaður saman með stímaðri reim, er dregin var í lykkjur á börmunum. Þær lykkjur voru kallaðar »millur« og voru oftast úr kopar, stundum þó úr tini, en úr silfri á spari-upphlutum hinna efnaðri. Reimin var fest við efstu mill- una eða neðstu, en hafði á fremri endanum millunál, til að draga reimina gegnum augun á millunum, og var hún jafnan úr sama efni og þær. Borðar voru á börmunum, fyrir aftan millurnar, sinn á hvorum, og á bakinu voru 3 borðar: voru tveir beygðir út að hlýrunum, en miðborð- inn var beinn. Þeir voru oftast kniplaðir. Þó voru gullvírs-borðar á sumum spari-upphlutum. Að öðru leyti var ytri búningur kvenna líkur því sem hann er enn. — Sokkabönd voru þá ofin á fæti sér, oft fallega röndótt. Þau voru breið og svo löng, að þeim var 3- eða 4-vafið um fótinn og endanum svo brugðið undir. Var vafið því breitt og þurfti ekki að vera allfast til að halda sokkunum uppi, Nú eru þau orðin fágæt. Hefir kvenfólk tíðast teygjubönd, er í búðum fást; eru þau góð meðan »teygjan« helzt í þeim, en það er sjaldan lengi. Sumar hnýta »strimlum« um fæturna. Sparibúningur kvenna var, þá er ég man fyrst, alment orðinn peysu- búningur, hér um bil eins og hann er enn: pils, peysa, svunta og húfa með skúf og silfurhólk. Þó var peysan þá oftast prjónuð og þéttar fell- ingar neðan á henni að aftan. Bæði bandið og prjónið á peysunni og húfunni var vandað sem bezt. Svo átti og flest kvenfólk hátíðabúning, og var hann nokkuð mismunandi. Fvrst er ég man, sá ég fáeinar gamlar konur í hempum, sem áður höfðu verið almennar. Þær voru skósíðar, aðsniðnar ofantil og breiðir flosborðar á börmunum niður í gegn. Þeim fylgdu lausakragar um hálsinn, að lögun eigi ólíkir pípukrögum presta, en miklu minni. Efni þeirra var oft eigi annað ee hattbarð, fóðrað með r
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.