Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1907, Síða 55

Eimreiðin - 01.05.1907, Síða 55
135 skilið millistigin í tilverunni, og of djúpúðugt til að sneiða sig hjá hinum miklu andstæðum, og taka ekki tillit hinna skelfilegu hörm- unga lífsíns. RAGNARÖK. Hve tilfinningin fyrir andstæðunum er rík, sýnir trúsögnin um heimsslitin eða »ragnarök« (o: endalok goð- anna): trúin á fimbulvetur eða að löndin sökkvi í sjó, að sólin verði gleypt af úlfum þeim, er ávalt elta hana, að baráttunni milli goða og jötna lúki með stórkostlegum bardaga, og að goðin — máttarstoðir og dýrlingar þjóðarinnar — þá eigi að láta líf sitt. En óhefnd eiga þau þó ekki að falla, því slíkt gat enginn Norður- landabúi hugsað sér; hinn ungi sonur Óðins, Víðarr, rífur sundur gin Fenrisúlfsins, og er þar þannig vísir til nýrrar kynslóðar af goðum og mönnum, sem geta látið framhald verða á lífinu, Lífs- aflinu er — þó í nauðatæpum mæli sé og með baráttu, þar sem tekið er á öllu, sem til er, — bjargað frá tortímingunni. Heimsbaráttan milli góða og jötna er ekki eingöngu norræn. Pað er miklu fremur sameiginlegt fyrir arisku þjóðirnar, að hugsa -sér t. d. þrumuvaldinn ásamt öllum hinum goðunum í daglegri baráttu við tröllin. Hjá Keltum er meira að segja getið um ógnar goðabardaga, sem hefir sams konar sorgarblæ yfir sér og ragna- rök. En þar sem Grikkir og Indverjar hafa horfið frá þessari hugsun — í lífsgleði eða lífsafneitun —, þá hafa Norðurlandabúar fylgt henni og rakið út í yztu æsar. Einna skyldust verður trú- sögn hjá persneska þjoðflokknum, er skýrir frá sífeldri baráttu milli hollvætta og meinvætta, er endar með höfuðbardaga, sem í ýmsum greinum líkist norrænu frásögninni. En einmitt líkingin sýnir um leið mismuninn. Hjá Persum er undirrót trúsagnarinnar andstæðan milli frjósemi og þurks, þar sem mannkyninu stöðugt er fléttað inn í sem vinnandi verkalýð; þar er því þessi trú til orðin meðal hjarðmanna og við plóginn. Undirrót norrænu heims- baráttunnar er aftur sumpart hernaður og sumpart þunglyndis heilabrot út af lífskjörunum; þar ber langtum minna á, að menn- irnir veiti goðunum lið; það eru ekki lifandi menn, heldur Ein- herjarnir frá Valhöll, er ríða til orustu við ragnarök. I trú Persa bryddir á bjartsýni starfsmannsins, sem gerir sér von um árangur; en í norrænu kvæðunum draumar heilabrotamannsins um að alt eigi að líða undir lok. EUNGLYNDI. Skáldskapur víkingaaldarinnar, eins og hann birtist í norrænum kvæðum frá 9. öld, og enn frekar frá 10. öld-

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.