Eimreiðin - 01.04.1919, Side 15
EIMREIÐINI
LAUNAMALIÐ
79
að ákveða, hve mikils virði krónan sé, miðað við nauð-
sjmjar. Þetta er og mjög auðvelt, og þarf ekki annað en
láta Hagstofuna reikna þetta út. þetta hefir hún gert að
undanförnu að miklu leyti, og eftir öllum gögnum eru
2,60 kr. nú jafngildar 1,00 kr. fyrir ófriðinn. Eftir þessu
á því nú að gjalda starfsmönnum þjóðarinnar. Star/smenn
landsins eiga að ]á kr 2,60 fgrir hverja kr. 1,00 af sann-
gjörnum launum 1914. Það eru sanngjörn laun nú og ekki
einn eyrir fram yfir.
En nú voru launin 1914 ekki sanngjörn laun. Það ját-
aði jafnvel launamálanefndin, sem þó fór mikils til of
skamt í launakröfunum. Það á því ekki að miða við
launin eins og þau voru þá, heldur eins og þau áttu að
vera.
Og svo verður að gæta þess, að nú eru liðin mörg
dýrtíðarár, sem starfsmenn landsins hafa orðið að bera
án verulegrar uppbótar.
Launakrafan hlýtur því að vera þessi, þótt ekki sé farið
eitt fet fram úr tullkominni sanngirni:
1. Að launaupphæðin 1914 sé ákveðin hæfileg.
2. Að sú launaupphæð sé lögð til grundvallar, og eftir
henni reiknuð sanngirnislaun fyrir undanfarin dýr-
tíðarár eftir verðlagsskrá, og það greitt starfsmönn-
unum nú, sem á hefir brostið, og loks
3. Að launin verði hér eftir reiknuð á þennan hátt, eftir
verðlagsskrá, er sýni sanngildi peninga.
Hverju á að slá af þessu með sanngirni? Engu. Em-
bættismenn hafa að vísu slegið stórlega af þessum kröf-
um til samkomulags. Þeir hafa boðið, að reikna mætti
eftir laununum eins og þau voru 1914, þótt þau væru of
lág. Og þeir hafa boðið að gefa þjóðinni upp skuldina
frá dj'rtíðarárunum. En er þetta i rauninni nokkuð fagurt,
að sýna þjóðfélaginu, sem á að vera sanngjarnasti vinnu-
veitandinn og fyrirmjmd annara vinnuveitenda, fram á,
hvað sé sanngirniskrafa, en segja um leið: En af því að
eg get ekki búist við því af þér, að þú borgir mér nokk-
urn tíma alt, sem eg á hjá þér, þá skal eg gefa þér alt