Eimreiðin - 01.04.1919, Page 16
80
LAUNAMÁLIÐ
lEIMIiEIÐIN
hitt upp, ef þú aðeins vilt borga mér framvegis svo, að
eg geti tórt?
Nei, þjóðin sjálf ætti ekki að þiggja slíkt. Hún á ekki
að láta selja skuldir sínar með afföllum, eins og gert er
við skuldir óreiðumanna. Hún á að taka skrefið fult út.
Hún bæði getur það og hlýtur að vilja það.
það á að borga opinberum starfsmönnum vel, og heimta
líka mikið af þeim.
það á að gera vel við þá, sem vel vinna, en láta hina
fara. Það er og verður heilbrigðast og hollast hinu unga,
islenska riki.
M. J.
Yökudraumur.
Oft sé eg'.i anda
undarlegar sýnir.
Vökudraumar eru vinir mínir.
Dvaldi eg til dala
draumbliða nótt,
blómin á bala
blunduðu rótt.
— En fuglar fjallasala
fljúga til stranda. —
Oft sé eg í anda
er ársólin pá krýnir.
Vökudraumar eru vinir mínir.
Sviphýr er særinn
við sólarlag.
Góðan dag
blessar fjallablærinn.
Bi bí og blaka,
blundar nú drótt.
Bessa nótt
vil eg aleinn vaka.